Reykjavík - 13.06.2015, Side 1
niðurhal
einfalt
ótakmarkað
6.990
ljósleiðari ljósnet
vortex.is 525 2400
Varmadælur
Besta loft í loft dæla
sem SP í Svíþjóð
hefur prófað
Hvammsdal 4, 190 Vogar. Sími: 546 9500
Gsm: 892 8030. www.lofttaekni.is
INVERTER SYSTEM
Sparnaðar
orkuflokkur
A +++
Vinnum fyrir öll tryggingafélögin
Útvegum bifreið meðan á viðgerð stendur
Bílaréttingar & sprautun Sævars
Skútuvogi 12h - 104 Rvík - Sími 568-9620 - Netfang: bilaretting@bilaretting.is - www.bilaretting.is
Nethyl 2, Sími: 587 0600,
www.tomstundahusid.is
Finnið okkur á facebook.
Plastmódel til
samsettningar
í miklu úrvali.
Bíldshöfði 18 - Sími: 587 0600
ww .t sid.is
i r á facebook
VI
KU
BL
AÐREYKJAVÍK
13. Júní 2015 • 22. tölublað 6. árgangur
Fáir einstaklingar ráðandi í sjávarútvegsfyrirtækjum:
Innan við hundrað manns
hagnast mest á kvótanum
Ætla má að um eða innan við eitthundrað einstaklingar fái megnið af þeim arði sem
verður af veiðum og vinnslu hér við land.
Í viðamikilli úttekt Reykjavíkur viku-
blaðs var reynt að grafast fyrir um hvaða
einstaklingar væru að baki þeim sjávar-
útvegsfyrirtækjum sem fá úthlutað meiru
en einu prósenti af heildarkvótanum við
Ísland. Úttektin, sem þó er ekki tæmandi,
leiðir í ljós að tiltölulega fáir einstaklingar
eru að baki þessum fyrirtækjum, eru ýmist
ráðandi í rekstri þeirra, eða eiga áberandi
stóra eigarhluti. Þetta fólk er að baki um 20
fyrirtækjum sem samanlagt fá úthlutað um
þremur fjórðu af öllum kvóta hér við land.
HB Grandi og Brim eru þær stórútgerðir
sem mest eru áberandi í höfuðborginni,
en grófum dráttum virðast tveir til þrír
einstaklingar vera algjörlega ráðandi í
þessum fyrirtækjum. Sjá bls. 8.
Þrátt fyrir miklar breytingar í gegnum tíðina og þær umfangsmiklu framkvæmdir sem nú standa í miðbæ Reykjavíkur, er eins
og sumt breytist aldrei. Háir sem lágir, ungir sem aldnir standa í röð eftir pulsu.