Reykjavík - 13.06.2015, Blaðsíða 4
4 13. Júní 2015REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Verum næs
Rauði krossinn fór nýlega af stað með aldeilis frábært verkefni sem ber heitið „Vertu næs“ (www.vert-
unaes.is). Um er að ræða tveggja ára ver-
kefni sem hvetur fólk til að koma fram að
virðingu við hvort annað og leggur áherslu
á að uppruni fólks, litarhaft eða trúarbrögð
eiga ekki að skipta máli í samskiptum við
hvort annað (www.vertunaes.is).
Verkefnið er frábært en um leið er það
svolítið dapurlegt til þess að hugsa að
koma þurfi á verkefnum til að vekja fólk
til umhugsunar um að vera vingjarnlegur
við náungann, óháð uppruna, litarhafti
eða trúarbrögðum.
Verkefnið fékk mig til að hugsa um
fleiri þætti í okkar litla og oft reiða sam-
félagi. Og hvað við megum oftar vera næs
við fólk í kringum okkur. Nýjar kannanir
benda sem betur fer til þess að Íslendingar
séu almennt viðkunnanlegir við erlenda
ferðamenn þó svo að töluverðs pirrings
gæti stundum vegna til dæmis umferð-
araukningar sem þeir valda, stundum
finnst fólki helst til mikið af þeim og að
vondar túristabúðir hafi sprottið upp
vegna þeirra (sumsé, lundasjoppur). Það
er merkileg tilhneiging, allt að því rasísk,
hvað maður heyrir oft talað um „ túrista“
í neikvæðum tóni. Samt er þetta bara
venjulegt fólk eins og við; eini munurinn
er sá að þetta fólk er ekki heima hjá sér
heldur í heimsókn hjá okkur. Jú, það er
reyndar yfirleitt klætt í útivistarfatnað í
miðbænum, líka í góðu veðri. Og fyrir
vikið er stundum eins og heimamönnum
finnist í lagi að tala niður til þeirra og
vera ekki næs.
Við megum líka alveg vera meira næs í
umferðinni. Stundum er eins og fólk flykk-
ist í fylkingar skv. ferðmáta. Gangandi,
hjólandi, akandi og í strætó og allir óvinir.
Gangandi upplifa ógnun frá hjólandi og
öllum sem leggja upp á stétt, hjólandi upp-
lifa ógnun frá akandi og allir á hnefanum
að komast sína leið. Auðvitað er þetta ekki
alveg svona hábölvað en ef allir eru aðeins
meira næs út í umferðinni og taka tillit þá
gengur borgarlífið betur fyrir sig. Þessi sýn
byggir á því að við viðurkennum rétt allra
til að ferðast eins og þeir vilja, gangandi,
hjólandi, akandi og með Strætó; að akandi
sætti sig við að sumstaðar eru ekki hjól-
reiðastígar og að hjólandi þurfa stundum
að nota göturnar. Að hjólandi virði alltaf
umferðarreglur, sérstaklega rauð ljós,
stöðvunarskyldu, lýsingu á veturnar og
þar fram eftir götunum. Að gangandi gangi
ekki á hjólastígum og svo framvegis.
Nýlega húðskammaði yngsta þing-
kona Alþingis þingheim fyrir ókurteisi.
Að hennar mati er fólk greinilega ekki
mjög næs samskipti á þessum vinnustað.
Þetta viðhorf gegnsýrir reyndar stjórn-
málaumræðuna almennt á Íslandi. Það
er stundum eins og fólki finnist í lagi að
kalla annað fólk aumingja og hálfvita fyrir
það eitt að vera flokksbundinn flokki sem
maður er ekki sáttur við. Stundum virðist
vera í lagi að úthúða fólki með persónu-
legum dónaskap og níði fyrir það eitt að
vera á öndverðum meiði í ýmsum málum.
Sem þó er grundvöllur þess að búa í samfé-
lagi þar sem lýðræði er virt og heiðrað; þ.e.
að geta skiptst á skoðunum og virt skoð-
anir annarra – og verið næs á sama tíma.
Nú kann að hljóma eins og ég sé að
setja mig hér í hásæti þess sem er alltaf
hrikalega næs. En það er ég svo sannarlega
ekki. Ég hef alveg öskrað á hálfvita í um-
ferðinni (inní bílnum mínum samt, sko)
tuddast áfram á hjólinu mínu á rauðu ljósi.
Svo horfi ég stundum á fólk sem beinlínis
gengur á hjólreiðastígum borgarinnar með
drápsglampa í augum. Ég reyni að hemja
mig t.d. á Facebook gagnvart þeim sem
ég er ósammála í þjóðfélagsumræðunni
en ekki (alltaf) heima hjá mér. Ég er því
kannski bara að skrifa þennan pistil til
sjálfrar mín. Og allra hinna sem mega al-
veg við því að sýna meira umburðarlyndi
og oftar. Og bara vera næs.
Það var kannski dæmt til að gerast, enda þótt mér hefði í alvörunni ekki dottið það í hug. Það reyndist þó verða svo að stjórnmálamaður, kjörinn fulltrúi, legðist svo lágt að beina spjótum sínum að fötluðum íbúum borgarinnar.
Að reyna að skapa ótta við fólk sem ekki getur borið hönd fyrir höfuð sér í því
skyni að græða kannski einhver atkvæði. Niðurstaðan getur samt aðeins orðið ein.
Við erum einhverju nær um hvaða mann slíkir stjórnmálamenn hafa að geyma.
Framsókn og flugvallarvinir völdu mann í mannréttindaráð. Svo var bakkað út úr
því samdægurs þegar upplýst var að sá virtist beinlínis hafa það að hugsjón að sumir
skuli hafa minni réttindi en aðrir. Fólk varpaði öndinni léttar, en var ástæða til þess?
Ég spyr mig að minnsta kosti eftir greinina sem núverandi fulltrúi Framsóknar
og flugvallarvina sendi blaðinu í síðustu viku. Þar er reynt að spila á tilfinningar
ótta og fordóma og skapa óöryggi meðal íbúa.
Málið snýst um þjónustukjarna í Seljahverfi. Þar búa nokkrar manneskjur sem
glíma við ýmsa fötlun.
Haldinn var fjölmennur íbúafundur í Seljakirkju á dögunum á vegum íbúasamtaka
sem þekktust eru fyrir baráttu fyrir mislægum gatnamótum. Þar voru fulltrúar
borgarinnar krafðir svara um hverjir ættu að eiga þarna heimili. Frá þjónustu-
kjarnanum og að kirkjunni eru aðeins örfáir tugir metra og ekkert hús á milli.
Þannig gátu íbúar þjónustukjarnans séð út um gluggann sinn hvernig fólk arkaði
tugum saman inn í guðshúsið, heimili náungakærleikans. Það er eðlilegt að fólk
óski svara við breytingum í sínu nánasta umhverfi. En stórlega má draga í efa að
þetta hafi verið heppilegasta leiðin.
Ítarleg grein hefur síðan verið gerð fyrir stöðu mála í velferðarráði borgarinnar.
Það sýna gögn sem ég óskaði eftir frá borginni og eru birt hér í blaðinu. Svona
þjónustukjarnar eru um alla borg. Þarna starfar líka fólk á vegum borgarinnar við að
aðstoða þessar manneskjur. Því þetta eru fyrst og fremst manneskjur. Samborgarar.
Samt stígur fram varaborgarfulltrúi og fulltrúi í mannréttindaráði og skrifar: „Hvað
er að gerast? Í hvað stefnir? Geta börnin verið örugg, ein úti að leik?“
En ómerkilegt. En sorglegt að kjörinn fulltrúi skuli í alvöru reyna að gera sér að
pólitískri féþúfu fatlað fólk sem getur ekki varið sig.
Ég skal annars svara þessari spurningu mannréttindafulltrúa framsóknar. Og ég er
óhræddur við að svara henni af fullkominni sannfæringu og öryggi: Nei! Á meðan
strætisvagnar taka beygjur á tveimur hjólum á næsta horni og á meðan bílstjórar
aka á 60 kílómetra hraða á klukkustund innan hverfis þar sem hámarkshraðinn
er 30, þá verða börnin aldrei örugg. Íbúasamtök bíleigenda gætu íhugað það.
En að fulltrúi í mannréttindaráði skuli reyna að draga upp þá mynd af fötluðu
fólki að börnum stafi ógn af, er til fullkominnar skammar. Þetta er svo ómerkileg
pólitík að ég á ekki orð yfir hana.
Hvernig getur á því staðið að enginn fulltrúi meirihlutans eða Sjálfstæðisflokksins
hefur staðið upp og komið þeim til varnar sem ekki geta sjálf borið hönd fyrir
höfuð sér? Hvaða skilaboð ætli felist í þögninni?
Ingimar Karl Helgason
LEIÐARI
Ómerkileg
pólitík
Hliðvarsla
Það vekur athygli Stundarinnar og fleiri
að aðstoðarmaður mennta- og menn-
ingarmálaráðherra yfirheyri fjölmiðla-
fólk sem óskar viðtals við ráðherra, hvort
til standi að spyrja um tengsl hans við
Orku Energy. Upplýst hefur verið að
viðkomandi hefur átt í persónulegum
tengslum við félagið og fjárhagslegum
tengslum við fyrirsvarsmenn þess.
Ekki bókaskatturinn
Þeim fjölgar um 90 prósent sem aldrei
lesa bók, sló Fréttablaðið upp í vikunni.
Samkvæmt könnun sem gerð var fyrir
Félag bókaútgefenda hafa 13 prósent
landsmanna aldrei lesið bók. Þetta hlut-
fall var 7 prósent fyrir nokkrum árum.
Þetta eru vond tíðindi. Menntamálaráð-
herra segir að bókaskatti verði ekki kennt
um þessa stöðu, enda sé svo stutt síðan
hann var hækkaður. Hann segir þó að
fylgst verði með því hvaða afleiðingar
hækkun á bókaskatti hefur.
Góðar fréttir
Frosti Sigurjónsson formaður efnahags-
og viðskiptanefndar Alþingis vill ekki
erlent eignarhald á bankanana. Vill ekki
að arðurinn fari úr landi. Þetta hlýtur
að kalla á almenna breytingu og myndi
væntanlega þýða að erlend stórfyrir-
tæki munu ekki geta sent milljarða arð
og gróða beint úr landi. Í annan stað
hlýtur þetta að skrúfa fyrir það að Ís-
lendingar geymi eignir sínar hér á landi í
útlenskum skúffufyrirtækjum og skatta-
skjólum.
Leynigögnin
Skattrannsóknarstjóri er loks komin
með gögn í hendur sem sýna tengsl Ís-
lendinga við á milli 400 og 500 félög í
skattaskjólum. Það verður fróðlegt að
fylgjast með vinnu skattrannsóknar-
stjóra, en margir hafa spurt hvort ekki
væri réttast hreinlega að birta lista yfir
eigendur skattaskjólsfélaga.
Jafnað niður
Viðskiptaráðið birtir mánaðargamlar
tölur á vefsíðu sinni sem ýmsir fjölmiðlar
stukku á í vikunni. Þar er greint frá því
að opinberir starfsmenn séu oftar frá
vinnu vegna veikinda heldur en starfs-
fólk á almenna vinnumarkaðnum. Það
vekur athygli að Viðskiptaráð dregur
þá ályktun af þessu að best sé að draga
úr starfstengdum réttindum opinberra
starfsmanna. Þannig verði jöfnuð
réttindi á vinnumarkaði. Ekki virð-
ist hvarfla að neinum að jafna heldur
réttindin á almennum vinnumarkaði
upp á við og styrkja og efla réttindi
launafólks.
Helmingur
Önnur hver kona sem starfar við þjón-
ustu hefur verið áreitt kynferðislega við
vinnu. Þetta á við bæði kyn því í allt hafa
um 40 prósent starfsfólks í þjónustu-
störfum verið áreitt kynferðislega við
vinnu, en líklegra er að konur séu áreittar
af yfirmönnum sínum. Þetta sýnir ný
rannsókn sem Steinunn Rögnvalds-
dóttir, félags- og kynjafræðingur, vann
fyrir Starfsgreinasambandið.
Í FRÉTTUMUmmæli með erindi:
„Að sinna mörgum sjúklingum í einu
sem þurfa á flókinni krabbameinslyf-
jagjöf að halda þarfnast mikillar ná-
kvæmni, kunnáttu og hæfni til þess
að bregðast við öllum mögulegum
fylgikvillum sem upp geta komið. Það
má ekkert bregða út af og mistök geta
orðið ansi dýrkeypt. Ég get ekki með
nokkru móti skilið af hverju minn
launaseðill endurspeglar á engan hátt
þá miklu ábyrgð sem ég axla og þá 4
ára háskólamenntun sem ég hef lokið
til þess að sinna minni vinnu.“
- Ingibjörg
Guðmundsdóttir,
hjúkrunarfræðingur
á dagdeild blóð- og
krabbameins-
lækninga í grein í
Fréttablaðinu.
Falleinkunn
Ekki hafa fagnaðarlæti ráðherranna
farið framhjá neinum, en þeir hreykja
sér af ákafri skrautsýningu í Hörpu-
nni, þar sem væntanlegt afnám gjald-
eyrishafta var kynnt. Þetta var ekki
ósvipað sams konar lúðrablæstri þegar
tilkynnt var um tugmilljarða gjafir til
efnamesta fólks landsins undir nafni
einhverrar leiðréttingar. Á meðan
gleymdist algerlega að sömu ráðherrar
og ríkisstjórn fá fullkomna og algera
falleinkunn fyrir að láta heilbrigð-
iskerfið liðast í sundur á sinni vakt og
og finnst mörgum ótrúlegt að ríkis-
stjórn sitji enn
með slík afglöp
á ferilskránni.
Karlremba?
Fyrir löngu blasir við að kvennastétt-
irnar úr BHM eru svo lífsnauðsyn-
legar Landspítalanum að það eitt að
þær leggi niður störf hluta af dag-
vinnutíma setur allt starf hans úr
skorðum. Það sér það hver maður að
stjórnvöld verða að horfast í augu við
þessa stöðu og semja. Þögn til skiptis
við hótanir er aðferðarfræði sem ekki
hefur gengið hingað til og mun síður
en svo ganga úr þessu.
Grátkórinn vaknar
Friðrik J. Arngrímsson fór í eina tíð
fyrir LÍÚ og líkti útgerðarmönnum í
milljarðagróða við fórnarlömb nasista
fyrir að greiða
loksins eitthvað
gjald fyrir að-
gang að auðlind
í eigu íslensks
a lmennings.
Friðrik er enn
á sveimi og skrifaði grein í Morgun-
blaðið í vikunni. Þar kallaði hann
þá sem hafa staðið að undirskrift-
arsöfnun um sjávarauðlindina og
kallaði „sófakomma“ með áberandi
niðrandi hætti.
Yfir 50 þúsund manns hafa undir-
ritað áskorun til forsetans um að vísa í
þjóðaratkvæðagreiðslu hverjum þeim
lögum þar sem kvóta er úthlutað til
meira en árs í senn. Tilefni þessa er
makrílfrumvarpið svokallaða.
Ekki er hún góð málefnastaðan hjá
þeim sem ekki eiga önnur verkfæri
en að uppnefna fólk sem berst fyrir
hagsmunum almennings.
Grasrótin
Morgunblaðið birtist fólki oftar
og oftar inn um lúgu í svonefndri
aldreifingu. Við slíkt tækifæri var
á forsíðu blaðsins fjallað með afar
jákvæðum hætti um einkarekið
sjúkrahús í Ármúla í Reykavík. Rætt
var um að eigendur ynnu þar sjálfir og
framtakið allt látið líta út eins og gras-
rótar og hugsjónastarf heil-
brigðisstarfsfólks. Síðan
kemur í ljós og ekki á
síðum Morgunblaðsins að
Ásdís Halla Bragadóttir
er þarna að baki, og
fleiri, en sú hin sama
situr raunar í stjórn
fjölmiðilsins …
HÉÐAN OG ÞAÐAN …
REYKJAVÍK VIKUBLAÐ
22. TBL. 6. ÁRGANGUR 2015
ÚTGEFANDI: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466,
netfang: amundi@fotspor.is. Framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang:
as@fotspor.is. Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími
578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is, Veffang: fotspor.is, Ritstjóri: Ingimar Karl Helgason, sími:
659-3442 netfang: ingimarkarlhelgason@gmail.com, Blaðamaður: Atli Þór Fanndal. Netfang: atli@
thorfanndal.com. Menningarblaðamaður: Arnhildur Lilý Karlsdóttir. Netfang: arnhildurlily@gmail.com.
Umbrot: Prentsnið, Prentun: Landsprent, 50.000 eintök. Dreifing:
FRÍBLAÐINU ER DREIFT Í 50.000 E INTÖKUM
Í ALLAR ÍBÚÐIR Í REYKJAVÍK.
Höfundur er
Dóra Magnúsdóttir
Varaborgarfulltrúi
Samfylkingarinnar