Reykjavík - 13.06.2015, Blaðsíða 8
8 13. Júní 2015REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Hverjir fá kvótann?
- 1. hluti
Ein af stórum fréttum vikunnar var að Hafrannsóknarstofnun leggur til
að auka megi þorskkvótann við Ísland um 23 þúsund tonn. Góðar fréttir
eru líka af ýsunni segja fjölmiðlar. Efnahagur landins hvílir á veiðum og
vinnslu. En enda þótt svo sé, eru þeir ekki margir sem eru á bak við þau
fyrirtæki sem fá úthlutað kvóta til þess að sækja þessi verðmæti og hafa
af þeim arð.
Ætla má að um eða innan við eitthund-
rað einstaklingar fái megnið af þeim
arði sem verður af veiðum og vinnslu
hér við land.
Í viðamikilli úttekt Reykjavíkur
vikublaðs, var reynt að grafast fyrir
um hvaða einstaklingar væru að baki
þeim sjávarútvegsfyrirtækjum sem
fá úthlutað meiru en einu prósenti af
heildarkvótanum við Ísland. Úttektin,
sem þó er ekki tæmandi, leiðir í ljós
að tiltölulega fáir einstaklingar eru að
baki þessum fyrirtækjum, eru ýmist
ráðandi í rekstri þeirra, eða eiga áber-
andi stóra eigarhluti. Þetta fólk er að
baki um 20 fyrirtækjum sem saman-
lagt fá úthlutað um þremur fjórðu af
öllum kvóta hér við land. HB Grandi
og Brim eru þær stórútgerðir sem
mest eru áberandi í höfuðborginni.
Yfir 15 prósent af heildarkvótanum
við landið fellur þessum fyrirtækjum í
skaut. En í grófum dráttum má ætla að
tveir til þrír einstaklingar séu ráðandi í
þessum fyrirtækjum. Þessir menn eru
Guðmundur Kristjánsson, kenndur
við Brim og Kristján Loftsson, fram-
kvæmdastjóri Hvals hf. , sem ásamt
systur sinni Birnu er lang stærsti hlut-
hafinn í HB Granda. Ætla má að þau
séu ráðandi fyrir um 43 prósentum
hlutafjár í almenningshlutafélaginu.
Það er mun stærri hlutur en lífeyr-
issjóðir eiga samanlagt í félaginu, en
hlutafar eru alls um 1.750 samkvæmt
upplýsingum á heimasíðu félagsins.
Litlar breytingar
Fyrir nokkrum árum var birt í fréttum
Stöðvar 2 úttekt þar sem fjallað var um
einstaklingana að baki sjávarútvegsfyr-
irtækjunum. Sú úttekt sýndi að um 70
manns væru að baki 70 prósentum af
úthlutuðum kvóta. Sú úttekt átti við
árið 2009. Síðan hafa orðið nokkrar
breytingar á eignarhaldi sjávarútvegs-
fyrirtækja. HB Grandi hefur verið
skráður á markað og þar eru lífeyr-
issjóðir nú áberandi í hópi hluthafa.
Fyrirtækið Stálskip í Hafnarfirði seldi
frá sér skip og kvóta og útgerðin Berg-
ur-Huginn hefur fengið nýja eigendur.
Þetta hefur þó ekki mikil áhrif á
heildarmyndina. Stærstu eigendur HB
Granda eru til að mynda þeir sömu og
enda þótt Stálskipafjölskyldan sé hætt
útgerð og Magnús Kristinsson sé ekki
lengur skráður eigandi Bergs-Hugins,
þá er upp til hópa sama fólkið sem er
að baki þessum fyrirtækjum.
Afmörkun
Efnið er afmarkað með því að miða
við fyrirtæki sem fá úthlutað einu pró-
sentustigi eða meira af heildarkvóta
við Ísland, mælt í þorskígildistonnum,
eins og Fiskistofa kynnir úthlutunina.
Stuðst er við lista yfir þessi fyrirtæki
sem finna má á vefsíðu Fiskistofu.
Dæmi eru um að eignarhlutir í
sjávarútvegsfyrirtækjunum séu skráð
beint á einstaklinga en algengara er
að beinir eignarhlutir séu skráðir á
ýmis hlutafélög eða einkahlutafélög.
Sú keðja hefur verið rakin til einstak-
linga, yfirleitt með því að fara í gegnum
ársreikninga félaganna. Tekið skal
fram að hér er eingöngu fjallað um
eigendur fyrirtækjananna eins og nýj-
ustu tiltækar upplýsingar sýna. Sjónum
er helst beint að stórum/ráðandi hlut-
höfum, en í fjölmörgum tilvikum eru
hluthafar margir og eiga lítinn hlut
hver. Hinir stærstu fá væntanlega arð
í takti við eignarhlut. Taka má fram
að í úttektinni hefur ekki verið farið
sérstaklega yfir stjórnir fyrirtækjanna
eða reynt að greina valdahlutföll eða
blokkir sérstaklega innan eigendahóps
einstakra fyrirtækja.
22 fyrirtæki
22 fyrirtæki falla í þann flokk að fá
úthlutað einu prósentustigi eða meira
af heildarkvótanum og fá í eigin nafni
í heildina úthlutað 71,62% af heildar-
kvótanum við Ísland. Þó er ekki allt
sem sýnist. Þannig eru eignatengsl
milli sumra fyrirtækjanna við önnur
sjávarútvegsfyrirtæki sem fá innan
við prósent úthlutað í eigin nafni.
Athugun á þessu efni var ekki tæm-
andi, en nefna má sem dæmi að Ísfé-
lagið í Vestmannaeyjum á útgerðina
Dala-Rafn og tengsl eru á milli Brims
og annarra útgerða, t.d. K. G. Fiskverk-
unar sem fær úthlutað rétt undir einu
prósenti af heildarkvótanum. Í grófum
dráttum má ætla að þessi 22 fyrirtæki,
eða eigendur þeirra öllu heldur, fái út-
hlutað um 73 prósentum kvótans, hátt
í þremur fjórðu alls kvóta hér við land.
Einstaklingar
Á milli 90-100 einstaklingar eru í
hópi helstu eigendur þessara fyrir-
tækja þegar eignakeðjan hefur verið
rakin. Rétt er að nefna að lífeyrissjóðir,
skráð fyrirtæki og kaupfélög eru tekin út fyrir sviga í þessum efnum. Þá má
halda því til haga að smærri hluthafar,
sem eiga jafnvel ekki nema brot úr pró-
senti, eru ekki í þessum hópi. Enda
þótt um 70 manns hafi verið á bak við
70 prósent af kvótanum árið 2009, skv.
úttekt fréttastofu Stöðvar 2, þá má geta
þess að þessi yfirferð sem miðast við
yfirstandandi fiskveiðiár, er örlítið ná-
kvæmari en úttekt Stöðvar 2. Það veit
höfundur þessarar úttektar, því hann
vann sjálfur þá úttekt sem Stöð 2 birti
hér um árið. Þetta skýrist einkum af að
nákvæmari upplýsingar um hluthafa
nokkrurra félaga, til dæmis Gjögurs
frá Grenivík, voru aðgengilegar að
þessu sinni.
Tengsl
Innbyrðis eru ýmis tengsl milli fyr-
irtækjanna 22. Nefna má að Sam-
herji á Útgerðarfélag Akureyringa.
Sömuleiðis eiga Samherji og Gjögur
sameiginlega Síldarvinnsluna, en svo
á Síldarvinnslan aftur útgerðina Berg-
-Hugin.
Guðmundur Kristjánsson og
Hjálmar bróðir hans eiga Brim, KG
fiskverkun og eru þar að auki með
umtalsverðan hlut í Vinnslustöðinni
í Vestmannaeyjum.
Völd, áhrif og peningalegur ágóði
þeirra einstaklinga sem eru að baki
þessum fyrirtækjum geta því verið
mun meiri en ætla má við fyrstu sýn.
Verðmæti
Skjóta má á virði þessa kvóta sem fyr-
irtækjum í eigu þessara einstaklinga fá
úthlutað. Verð á kvóta liggur alla jafna
ekki á yfirborðinu. Hins vegar urðu
þau tíðindi á síðasta ári að útgerðin
Stálskip í Hafnarfirði seldi togara sinn
Þór og allan kvóta til annarra útvegs-
fyrirtækja. Verðið sem eigendur Stál-
skipa fengu fyrir kvótann hefur aldrei
verið gefið út. Hins vegar var greint
frá því í DV í apríl í fyrra að 8 millj-
arðar króna hafi fengist fyrir kvótann.
Þetta eru vitaskuld slumpfræði nokkur,
en Stálskip fengu úthlutað um einu
prósenti af heildarkvótanum, mælt
í þorskígildistonnum. Þannig mætti
gróflega áætla að virði 100% af kvót-
anum sem úthlutað er við Ísland megi
meta til 800 milljarða króna. Af því má
svo aftur leiða að kvóti fyrirtækjanna
í úrtakinu sé um 584 milljarða króna
virði.
Í kringum 100 einstaklingar eru svo
aftur á bak við stærstan hluta þeirra
verðmæta.
Verðmæti auðlindar
Nýlega voru birtar fréttir um að reynt
væri að meta auðlindir til lands og
sjávar til beinharðra peninga. Fram
kom í viðtali fréttastofu Rúv við Sigurð
Jóhannesson hagfræðing við Háskóla
Íslands að fiskurinn væri metinn á
1.100-1.200 milljarða króna. Jarðhiti
til húshitunar væri metinn á 230 til
460 milljarða og raforka 20 til 100
milljarða króna. „Sem er þá eitthvað
4 til 6 milljónir á hvert mannsbarn,“
segir Sigurður. Þessi tala er vitaskuld
nokkuð rúmt meðaltal. Ætla má að
þeir einstaklingar sem eru ráðandi yfir
verðmætustu auðlindinni, ef marka
má yfirlit Sigurðar Jóhannessonar,
fái heldur meira í sinn hlut og flestir
miklu minna.
Í næstu tölublöðum Reykjavíkur
vikublaðs er stefnt að því að fara nánar
yfir þessi mál og upplýsa lesendur um
hverjir það eru sem fá arðinn af þeim
gæðum sem fólgin eru í þessari verð-
mætustu auðlind landsmanna.
ÚTTEKT
Ingimar Karl
Helgason
Kristján og Birna
Félagið Vogun er lang stærsti hlut-
hafinn í HB Granda. Grandi er
sömuleiðis það fyrirtæki sem mestan
kvóta fær úthlutað, tæplega 11 pró-
sentum af heildarkvótanum, sam-
kvæmt lista Fiskistofu.
Vogun á 33,51 prósent í HB Granda.
Vogun er svo aftur í 99 prósenta eigu
Hvals hf. Hluthafar í Hval hf. skipta
tugum, eru um eitthundrað eða þar um
um bil, samkvæmt nýjasta ársreikningi
félagsins.
Stærsti hluthafinn er Fiskveiðihluta-
félagið Venus sem á um 40 prósenta
hlut. Þar eiga Kristján Loftsson og
Birna Loftsdóttir stærstan hlut.
Hampiðjan á líka ríflegan hlut í HB
Granda, er þriðji stærsti hluthafinn
með 8,79 prósenta hlut. Vogun og
Fiskveiðihlutafélagið Venus, sem áður
voru nefnd, eiga yfir 50 prósenta hlut
í Hampiðjunni.
Fiskveiðihlutafélagið Venus á svo
aftur í eigin nafni 0,65 prósenta beinan
hlut í HB Granda.
Þessir aðilar eiga því samanlagt
42,95 prósenta hlut í almennings-
hlutafélaginu HB Granda í gegnum
þessi félög.
Þess má geta að Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, forstjóri HB Granda, er jafn-
framt stjórnarformaður Hampiðjunnar.
Mikill arður
Á árinu 2014 lagði stjórn Hvals til
að upp undir milljarður króna yrði
greiddur í arð til hluthafa. Bróður-
parturinn af hagnaði félagsins það ár,
kom til af eignarhlutnum í Vogun,
Af því hafa eigendur Fiskveiðihluta-
félagsins Venusar fengið bróðurpart
í sinn hlut, um 400 milljónir króna.
Smærri hluthafar hafa eðlilega
fengið minna, en benda má á að eins
prósents hlutur hefði skilað um tíu
milljónum króna í arð það árið.
Fyrirtækin og hlutfall af kvótanum:
HB Grandi hf. 10.67%
Samherji Ísland ehf. 5.98%
Þorbjörn hf 5.49%
FISK-Seafood ehf. 4.84%
Brim hf 4.51%
Vísir hf 4.05%
Vinnslustöðin hf 3.99%
Rammi hf 3.98%
Skinney-Þinganes hf 3.81%
Síldarvinnslan hf 3.19%
Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf 3.10%
Nesfiskur ehf 2.39%
Gjögur hf 2.32%
Ísfélag Vestmannaeyja hf 2.09%
Útgerðarfélag Akureyringa ehf 1.98%
Ögurvík hf 1.86%
Bergur-Huginn ehf 1.51%
Jakob Valgeir ehf 1.33%
Eskja hf 1.29%
Loðnuvinnslan hf 1.14%
Guðmundur Runólfsson hf 1.06%
Stakkavík ehf 1.04%
Guðmundur Kristjánsson er kenndur
við Brim. Hann hefur ítök víða.
Kristján Loftsson á stóran hlut í HB
Granda ásamt systur sinni.