Reykjavík - 13.06.2015, Qupperneq 14
14 13. Júní 2015REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Hjólaleiðir í Reykjavík:
Alla þessa
leið á korteri!
Fyrir nokkrum árum sá ég „korters-kortið“ af Reykjavík í fyrsta sinn. Höfundur þess,
Pálmi Freyr Randversson, vann hjá
borginni og ég var strax mjög hrifin
ef þessari nálgun. Hugmyndin var að
sýna hversu langt er hægt að fara um
borgina á 15 mínútum, hjólandi eða
gangandi. Og það er bísna langt sem
maður kemst með því að trampa fót-
stigin þennan tíma.
Í síðustu viku rakst ég svo á heima-
síðu sem hefur farið enn lengra með
þessa skemmtilegu vinnu; www.
bikecitizens. net og ferð þar inn á 06.
Rooute planner. Þá er les heimasíðan
staðsetningu tölvunnar/snjallsímans
og ætti að fara með ykkur beint til
Reykjavíkur. Og þá er hægt að hefja
leikinn.
Heimilisfang – Hlemmur, Reykjavík,
5 mínútur á hjóli, áreynslulítið, borg-
arhjól – Route og vefurinn spinnur eins
og kónguló, allar leiðirnar sem þú ættir
að geta hjólað innan þessa tímamarka.
Svo má leika sér með tíma, erfiðleika-
stig og hjólhestategundir. Einnig er
hægt að finna út hve lengi verið er að
hjóla á milli staða. Hlemmur – Hamra-
borg; 5,1 km 18 mín.
Síðan er unnin af austurískum snill-
ingum og borgir heimsins eru að tikka
inn, ein af annarri, þar á meðal Reykja-
vík. Bakgrunnurinn er fenginn úr
Open street map sem allir geta hjálpast
að við að mata með kortaupplýsingum.
Ég hef áður sagt það og segi það enn
og aftur: Reykjavík er frábær hjólaborg.
Nú er lag fyrir okkur hjólreiðamenn
að sannfæra enn fleiri um að koma
með út að hjóla – þó ekki væri nema
til að tryggja betur okkar eigið öryggi.
Vísindi heimsins benda til þess að því
fleiri sem hjóla, því öruggari verðum
við í umferðinni. Nýja heimasíðan er
stórskemmtilegt tæki til að kynna á
kaffistofunni. Endilega prófið.
Einkarekið Apótek
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Fyrirtæki
húsFélög
Við gerum tilboð í reglubundna ræstingu
ykkur að kostnaðarlausu.sími 89 89 566
www.þrif.is / www.thrif.net / netfang: thrif@centrum.is
Fyrirtæki
húsFélög
Við gerum tilboð í reglubundna ræstingu
ykkur að kostnaðarlausu.sími 89 89 566
w.þ if.is / www.thrif.net / netfang: th if@centrum.is
Fyrirtæki
húsFélög
Við gerum tilboð í reglubundna ræstingu
ykkur að kostnaðarlausu.sími 89 89 566
www.þrif.is / www.thrif.net / netfang: thrif@centrum.is
Við gerum tilboð í reglubundna
ræstingu ykkur að kostnaðarlausu.
Höfum rútur af öllum
stærðum og gerðum,
vel búnar til aksturs
hvort sem er innan-
eða utanbæjar.
ÞÓRSMÖRK OG
LANDMANNALAUGAR
Daglegar ferðir frá 13. júní til 15. september.
Ekið í Langadal, Bása og að skála í
Landmannalaugum. Tilvalið að fara dagsferð
eða gista á milli ferða. Skoðið tímatöflur og
brottfararstaði á trex.is.
Hesthálsi 10 - 110 Reykjavík - sími: 587 6000 - info@trex.is - www.trex.is
TAKTU RÚTU!
Bókanir &upplýsingar á TREX.IS
LEITIÐ TILBOÐA!
Sesselja Traustadóttir, Hjólafærni á
íslandi
Flóran í borgarlandinu
Haldið verður upp á samnor-rænan Dag villtra blóma sunnudaginn 14. júní. Í
Reykjavík verður boðið upp á tvær
leiðsagðar gönguferðir um náttúruna
í borgarlandinu; í Elliðaárdal kl. 11,
þar sem mæting er við hesthús Fáks
við Sprengisand og Fossvogi kl. 14,
en ar er mæting við Ylströndina í
Nauthólsvík. Fjallað verður um gróð-
urfar svæðanna og plöntur greindar
til tegunda. Gestir eru hvattir til að
taka með sér flóruhandbækur og
stækkunargler. Þátttaka er ókeypis
og allir velkomnir, segir í fréttatil-
kynningu.
Nýtt skólahús í Úlfarsárdal
Hluti nemenda Dalskóla í Úlfarsárdal hefur að undanförnu unnið verk-
efni um það hvernig þau sjá fyrir
sér nýjan skóla í hverfinu. Þau hafa
átt fundi með arkitektum skólans og
verkfræðingi, hannað skólastofur,
skólahúsgögn og skólalóð, segir á
vef borgarinnar. Þau sýndu afrakstur
vinnu sinnar við skólaslit í vikunni.
Boðið var upp á mikla köku sem gerð
hafði verið sem líkan af skólanum
nýja. Einnig var búið að hengja upp
myndir af framtíðarskólanum utan á
færanlegar kennslustofur sem eru við
byggingasvæðið.
Fyrsta skóflustunga að nýbyggingu
verður tekin í ágúst, er fullyrt á vef
borgarinnar, og í beinu framhaldi eiga
framkvæmdir að hefjast. Til stendur
að fyrsti áfangi hins nýja skólahús-
næðis verði tekin í notkun næsta
haust, en að húsið verði að fullu ririð
árið 2019. Skólinn verður í tveggja
hæða byggingu sem mun liggja með-
fram Úlfarsbraut og mynda keðju til
austurs og tengjast menningarmið-
stöð, almenningsbókasafni, sund-
laug og íþróttahúsi Fram, segir á vef
Reykjavíkurborgar.
Frábær vefur sem sýnir þér á einu augnabliki hversu langt þú hjólar á t.d. 5
mín. www.bikecitizens.net
Dagur B. Eggertsson ræðir við skólabörn. Á minni myndinni má sjá nemendur
skoða líkan að nýja skólahúsnæðinu.