Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.05.2008, Blaðsíða 23

Víkurfréttir - 22.05.2008, Blaðsíða 23
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 22. MAÍ 2008 23STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM AF STAÐ á Reykjanesið: 4. ferð, laugardaginn 24. maí, kl. 11, Stór höfða stíg ur, Djúpavatnsleið/ Hrútagjá - Krýsuvíkurvegur/Bláfjalla- leið. 7 km Upp hafs stað ur: Akið frá Hafnarfirði Krýsuvíkurleið og beygið til hægri við skilti sem á stendur Djúpavatn, akið Djúpavatnsleið í um 6 km að skilti þar sem á stendur Hrúta- gjá. Stórhöfðastígur er hluti af þjóðleið milli Krýsuvíkur og Hafnarfjarðar. Gengið verður frá Hrútagjá og Stórhöfðastíg fylgt í Brunntorfur, að mótum Krýsuvíkurvegar og Bláfjalla- leiðar. Svæðið býr yfir mikilli náttúru- og jarðfræðisögu sem leiðsögumenn munu miðla á leiðinni. Áætlað er að gangan taki ca. 3-4 klst. með fræðslu- stoppum. Ferðamálasamtök Suðurnesja hafa látið stika leiðina. Frekar auðveld leið. Gott er að vera með nesti og í góðum skóm. Allir á eigin ábyrgð. Akstur til baka kr. 500. Frítt fyrir börn. Gangan er fjórða ferð af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykja- nesskaganum sem farnar verða í maí ´08. Boðið er upp á þátt- tökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 3 - 5 gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír heppnir fá útivistarvörur frá Cintamani. Dregið verður eftir síðustu gönguna. Þátttakendur eru beðnir um að muna eftir að taka þátttökuseðla með í ferðir. Gönguferðin er í boði Ferðamálasamtaka Suðurnesja og sjf menningarmiðlunar. Nánari upplýsingar um ferðir: www.sjfmenningarmidlun.is sjf@internet.is/gsm. 6918828 AF STAÐ á Reykjanesið – gönguferðir í maí Mynd SJF. Fjallið eina.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.