Víkurfréttir - 22.03.2012, Qupperneq 9
9VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 22. Mars 2012
Dagana 30. og 31. mars mun Icelandair hót-elið í Keflavík að slá upp fiskiveislu og gera
fiskiðnaðinum á Suðurnesjum hátt undir höfði og
kynna þær afurðir sem verið er að vinna á svæðinu á
innanlandsmarkað og til útflutnings. Hátíðin hefur
fengið nafnið „Óður til hafsins“.
Fyrirtæki munu kynna sína vöru og kokkarnir á Vocal
restaurant, sem er staðsettur á hótelinu, munu aðstoða
við framsetningu og matreiðslu. Kynningin fer fram í
Kjarna og í veislusölum hótelsins.
Boðið verður upp á tónlist og öl á tilboðsverði. Einnig
verður vínkynning á staðnum og þá verða listamenn
með sýningar.
Á föstudeginum verður kynning fyrir fagfólk í mat-
vælaiðni og sérstaka boðsgesti. Matreiðslumeistarinn
Ragnar Ómarsson verður gestakokkur á Vocal og ætlar
að bjóða upp á fiskihlaðborð sem matreitt verður úr
hráefni frá þátttakendum í hátíðinni.
Laugardaginn 31. mars frá kl. 15-18 verður almenn-
ingi boðið á hátíðina og að kynna sér það sjávarfang
sem unnið er með á Suðurnesjum bæði á innanlands-
markað og til útflutnings. Nú þegar hafa um 15 fyrir-
tæki á svæðinu boðað þátttöku sína og framleiðsla
þeirra er eins ólík og fyrirtækin eru mörg. Pláss er fyrir
fleiri og geta þeir haft samband við hótelið.
Á laugardagskvöldinu frá klukkan 18 verður fiskihlað-
borð Hjá Ragnari Ómarssyni, lauflétt tónlist og góð
stemming.
Hver ert þú?
Ásta María Jónasar- og Berg-
lindardóttir. Ég er 16 og hálfs árs
dama úr Keflavík,
ótrúlega ráðrík
með öflugt ímynd-
unarafl. Fólk vill
meina að ég sé
stjórnsöm, mér
finnst það ekki
en ég hef samt
unun af því að
segja fólki fyrir verkum.
Hver eru áhugamál þín?
Ætli það sé ekki söngur og leiklist
þar sem ég kann ekkert í íþróttum.
Hvenær byrjaðir þú að syngja?
Líklegast í móðurkviði, en
steig fyrst á svið í 3. bekk.
Hvers vegna tekur þú þátt
í þessum tónleikum?
Það er bara svo ótrúlega gaman
að safna nýjum minningum í
safnið og svo erfitt að sleppa
takinu af elsku Myllubakkaskóla!
Finnst þér þetta spenn-
andi verkefni?
Heldur betur og gaman að
fá að vera hluti af því.
Hver eru framtíðarplönin þín?
Frekar sorgleg eins og er en ég ætla
að byrja á því að klára skólann svo
leiðir bara eitt af öðru, kannski
maður rati bara aftur í Mylluna.
Hverjar eru þínar bestu minn-
ingar úr Myllubakkaskóla?
Þær eru margar góðar, en í uppá-
haldi eru allir tónleikarnir og leik-
ritin sem við höfum sett upp! Man
þó aðallega eftir mistökunum eins
og einu sinni þegar við héldum
jólatónleika og við sungum Að-
fangadagskvöld og ein okkar gat
ekki sungið lagið rétt og söng
Aðfangadaggaskvöld. Svo einu
sinni á generalprufu missti stelpa
pilsið niðrum sig, býst við að
það hafi verið frekar vandræða-
legar aðstæður. Svo gleymi ég því
aldrei þegar við sátum 18 ellefu
ára krakkar inni í skólastofunni að
læra þegar það kemur þessi líka
risavaxna býfluga inn. Kennarinn
var fyrstur út og eftir sátum við
og gátum okkur hvergi hreyft.
›› Herdís Birta Sölvadóttir
›› Óður til hafsins á Icelandair hótelinu í Keflavík um aðra helgi:
›› Ásta María Jónasar- og Berglindardóttir
MIÐASALA Í MYLLUBAKKASKÓLA Í DAG KL.17-19
Hver ert þú?
Herdís Birta Sölvadóttir. Ég er í
fjórða bekk í Myllubakkaskóla.
Hvenær byrjaðir
þú að syngja?
Veit ekki, ég hef
alltaf verið að
syngja frá því ég
var pínulítil.
Finnst þér spenn-
andi að taka þátt í
svona tónleikum?
Já rosalega spennandi. Gaman
að fá að syngja með svona
flottum tónlistarmönnum.
Ertu vön að koma fram?
Já frekar, ég hef mikið sungið
í Myllubakkaskóla og svo tók
ég þátt í Jólasögu hjá Leikfélagi
Keflavíkur núna fyrir jólin.
Hvað ætlar þú að verða
þegar þú verður stór?
Ég er ekki alveg búin að ákveða
mig, en það væri kannski gaman
að vera söng- eða leikkona.
Spennandi að taka
þátt í tónleikunum
Fiskihátíð með fjölbreyttu úrvali
sjávarfangs frá Suðurnesjum
Ótrúlega gaman að
safna nýjum minningum
Fimmtudaginn 22.mars verður líf og ör í Verslu-
narmiðstöð Grindavíkur. Opið er til kl:22 Léttar veitin-
gar, Breytt útlit, dreigið í happadrætti og frábær tilboð.
Komið og gerið ykkur glaðan dag í Grindavík.
Betra Hár s:426-9800
Verslunarmiðstöð Grindavíkur Víkurbraut 62
Hlökkum til að sjá ykkur
Frábær
ar vöru
r
á góðu
verði
Betra Hár
Höfum tekið inn
Total Results línuna frá
Matrix .