Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.03.2012, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 29.03.2012, Blaðsíða 13
13VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 29. Mars 2012 Sími 425 2100 | fyrirspurnir@kadeco.is Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar Nánari upplýsingar um Ásbrú má finna á www.asbru.is og hjá Kadeco sem hefur frá árinu 2006 leitt uppbyggingu á Ásbrú. Mánudaginn 2. apríl kl. 12:00 til 14:00 Brian Tracy á Ásbrú Opinn fyrirlesturmeð einum fremsta fyrirlesara heims í Andrews leikhúsinu á Ásbrú Brian Tracy er í fremstu röð fyrirlesara heims um persónulegan árangur, sjálfshvatningu og stjórnun. Framsetning hans á efninu einkennist af þeirri meginhugsun að hún sé einföld, hagnýt og í þannig búningi að þú getir undir eins farið að nýta þér það við úrlausn þeirra verkefna sem þú ert að glíma við. Fyrirlestrar Brian Tracy hvetja þátttakendur til góðra verka. Þú munt ganga út með ársjóð af hagnýtri þekkingu, ráðum og aðferðum sem þú getur strax farið að nota til að gera betur hvort heldur sem er í vinnunni, náminu eða í einkalífinu. Þessi fyrirlestur er stutt yfirlit þess besta og nýjasta úr Árangurssmiðju Tracy. Þekkinguna setur hann fram í ljósi þess hversu vel hann þekkir orðið til á Íslandi. Þú lærir það besta sem Brian hefur lært á örtíu ára ferli sínum á sviði sjálfshvatningar og persónulegs árangurs. Þú ert þinnar gæfu smiður – þessi námsstefna er verkfærakistan sem hjálpar þér að smíða þér það líf sem þig dreymir um og sækist eftir. Tækifærið er núna! Aðgangur ókeypis

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.