Víkurfréttir - 29.03.2012, Blaðsíða 21
21VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 29. Mars 2012
MINNUM Á
fe r mingar skey t i
SKÁTANNA
Nöfn fermingarbarna er að finna á heimasíðu skátafélagsins www.skatafelag.is eða www.heidabuar.is
Hægt er að senda skeyti á heimasíðu félagsins allan sólarhringinn
Opnunartími skeytasölu að Hringbraut 101, er frá kl. 13:00 - 18:00 neðangreinda fermingardaga.
1. apríl Y-Njarðvík - 5. apríl Y-Njarðvík - 15. apríl Holtaskóli, Garður og Sandgerði - 22.
apríl Heiðarskóli - 29. apríl Myllubakkaskóli, Garður og Sandgerði
Sendum fermingarbörnum og fjölskyldum þeirra hamingjuóskir á fermingardaginn
MIÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR Á SUÐURNESJUM
Guðríður
Magnúsdóttir,
Ökukennari,
S. 891 9123,
Ö-2020
Einar
Magnússon,
Tannlæknir
ZEDRA
Föt fyrir allar konur
Verslunarkjarnanum Fitjum Reykjanesbæ
20% afsláttur
á vordögum í Reykjanesbæ
29 mars til 2 apríl
Verið velkomin
Sími 568-8585
Ný og betri „Saga lounge“, betri stofa Icelandair í Leifs-
stöð, hefur verið opnuð eftir gagn-
gerar breytingar. Icelandair hefur
á síðustu árum lagt aukna áherslu
á náttúru og menningu Íslands í
þjónustu og ímynd fyrirtækisins
og taka breytingarnar á „Saga lo-
unge“ mið af því. Stofan er á sama
stað og áður í Leifsstöð, en nú
stærri, opnari og bjartari með
innréttingum og skreytingum
sem vísa til sterkra íslenskra róta
Icelandair.
Framboð og umsvif Icelandair
hafa aldrei verið jafn mikil og nú
á 75 ára afmælisárinu. Icelandair
sýndi enn og aftur hversu hratt og
lipurlega fyrirtækið getur brugðist
við þegar aðstæður breytast snögg-
lega eins og gerðist við eldgosið í
Eyjafjallajökli. Flugáætlun félagsins
hefur stækkað ört á undanförnum
árum og verður framboð á sætum
14% meira á þessu ári en hinu síð-
asta. Þessi auknu umsvif hafa kallað
á breytingar á hinu vinsæla „Saga
lounge“.
Auk breytinga á umhverfi í „Saga
lounge“ verður boðið upp á ýmsar
nýjungar í veitingum og þjónustu.
Einnig verður 75 ára sögu Ice-
landair gert hátt undir höfði með
ljósmyndum og skreytingum.
Leikmyndahönnuðirnir Eggert
Ketilsson og Stígur Steinþórsson
höfðu umsjón með breytingunum
en aðalverktaki við breytingarnar
var TSA, Trésmiðja Stefáns og Ara.
Þá sá Arnbjörn Óskarsson um raf-
lagnir.
Ný betri stofa Icelandair opnuð
Auk breytinga á umhverfi í „Saga lounge“ verður boðið upp á ýmsar nýj-
ungar í veitingum og þjónustu. Einnig verður 75 ára sögu Icelandair gert
hátt undir höfði með ljósmyndum og skreytingum.
Birkir Hólm forstjóri Icelandair og Hlynur Sigurðsson frá ÍSAVÍA
opnuðu betri stofuna formlega.
Arnbjörn Óskarsson rafverktaki, Stefán Einarsson frá TSA, Eggert Ketilsson
og Stígur Steinþórsson hönnuðir og Ari Einarsson frá TSA.
VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson