Víkurfréttir - 15.10.2009, Qupperneq 19
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM 19VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 15. OKTÓBER 2009
Innlánsvextir
á betri kjörum
Samanburður sýnir að Sparisjóðurinn í Keflavík býður betri innlánsvexti en almennt gerist.
Við hvetjum þig til að kynna þér málið ítarlega og gera samanburð.
– á betri kjörum.
Við lögum okkur að þínum þörfum.
Óverðtryggðir reikningar Verðtryggðir reikningar
PM reikningur 6,70% Bakhjarl
Gullárareikningur 8,10% Áskriftarreikningur
Netreikningur 6,90% - 8,50% Framtíðarreikningur
4,35%
4,60%
4,90%
Miðað er við vexti sem gilda frá 1. október
Lava Strings, sameiginleg gítarsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og
Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar, heldur
tónleika í Bíósal Duushúsa, mánudaginn 19.
október kl.20.00.
Tónleikarnir eru liður í undirbúningi
sveitarinnar fyrir viku tónleikaferð til
Barcelona, sem hefst 22. október n.k.
Tónleikarnir eru jafnframt fjáröflunartónleikar,
en allur ágóði af tónleikunum rennur í
ferðasjóð hópsins.
Efnisskráin einkennist af Flamenco-tónlist
og annarri spænskri tónlist, en auk þess eru
íslensk verk á efnisskránni. Lava Strings skipa
14 gítarleikarar, 1 bassaleikari, 1 trompetleikari
og 1 cajon-trommuleikari. Auk þess bregða 2
gítarleikarar fyrir sig raf-gítarnum.
Aðgangseyrir er frjáls en tónleikagestir eru
hvattir til að styrkja þennan frábæra hóp.
Suðurnesjamenn eru hvattir til að fjölmenna
á þessa einstæðu tónleika og drekka í sig hin
suðrænu áhrif sem þar „svífa yfir vötnum“.
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar og Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar:
Gítartónleikar í Bíósal Duushúsa
,,Það er okkur algjörlega
óskiljanlegt hvers vegna
formaður bæjarráðs Grinda-
víkur ákvað að gera Járngerði
að kynningarriti fyrir sjálfa
sig. Þar reynir hún að mikla
sjálfa sig með þvi að lítillækka
pólitíska andstæðinga sína og
það á kostnað bæjarins“
Þannig hljóðar upphaf yfirlýsingar sem stjórn Sjálfstæðisfélags
Grindavíkur hefur sent frá sér vegna útgáfu blaðsins
Járngerðar sem bæjarfélagið gefur út. Stjórn félagsins
gagnrýnir harðlega skrif oddvita Framsóknarflokksins í
blaðinu.
„Þetta blað hefur hingað til verið algjörlega óháð og engar
pólitískar greinar né önnur skrif bæjafulltrúa hafa verið
í því þar til nú. Nú er nóg komið. Við viljum alls ekki að
bæjarsjóður beri kostnað af pólitískum skrifum bæjarfulltrúa
hvorki á heimasíðu bæjarins né í Járngerði. Við viljum benda
oddvita Framsóknarflokksins á að halda úti heimasíðu sjálf
ef hún hefur svona mikla þörf á því að kynna sjálfa sig,“ segir
í yfirlýsingu Sjálfstæðisfélagsins, sem birt er á heimasíðu
bæjarins.
„Nú er nóg komið“
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði á þriðjudagskvöld
ökumann grunaðan um akstur undir áhrifum ávana- og
fíkniefna. Hann var á ferð í Reykjanesbæ. Um fimm grömm
af kannabisefnum fundust við leit í bifreiðinni. Gerð
var húsleit heima hjá ökumanninum, og fundust þar 130
kannabisplöntur á mismunandi ræktunarstigum, 156 gr. af
tilbúnu kannabisefni, tæki og tól til ræktunar og áhöld til
fíkniefnanotkunar.
Vímaður undir stýri og
með ræktun heima hjá sér
Auglýsingasíminn er 421 0001