Ægir - 01.08.2006, Blaðsíða 11
11
F I S K V I N N S L A
Kópavogur hefur aldrei verið
talinn mikill sjávarútvegsbær.
Engu að síður er það svo að í
bænum er afar öflug fisk-
vinnsla og það sem meira er
að umrætt vinnslufyrirtæki er
það stærsta í heiminum í
vinnslu á ýsu í fimm punda
pakkningar. Fyrirtækið er Ís-
fiskur, sem hefur verið starf-
rækt í fjórðung af öld.
Til að byrja með var Ísfisk-
ur með starfsemi við Kársnes-
braut og var fyrst og fremst í
því að vinna ýsu fyrir innan-
landsmarkað. Núverandi
vinnsluhús fyrirtækisins við
Hafnarbraut var síðan byggt
fyrir fimmtán árum og starf-
semin hefur síðan vaxið og
dafnað. Hafin var vinnsla á
ýsu í fimm punda pakkningar
til úflutnings á Bandaríkja-
markað og enn þann dag í
dag er það uppistaðan í starf-
semi fyrirtækisins.
Sérhæfing í ýsu
„Við sérhæfum okkur í
vinnslu á ýsu í fimm punda
pakkningar og höfum náð
mjög góðum árangri. Við selj-
um ýsuna í gegnum Icelandic
USA í Bandaríkjunum og
okkar framleiðsla er á bilinu
50-60% af því heildarmagni af
ýsu í fimm punda pakkning-
um sem Icelandic USA dreifir
og selur í Bandaríkjunum.
Staðreyndin er sú að við
erum í dag stærstir í heimin-
um í framleiðslu á ýsu í þess-
ar pakkningar,“ segir Albert
Svavarsson, framkvæmda-
stjóri og aðaleigandi Ísfisks,
en hann á meirihlutann í fyr-
irtækinu á móti þeim bræðr-
um Óskari og Karli Karlssyni,
sem byggðu fyrirtækið upp af
miklum myndarskap en hafa
nú smám saman verið að
minnka sinn eignarhlut.
Hjá fyrirtækinu starfa um
30 manns, erlendir starfs-
menn eru þar í miklum meiri-
hluta, en raunar hafa margir
þeirra starfað hér á landi
árum saman.
Um 2.500 tonn af hráefni á
ári
Í gegnum vinnslu Ísfisks fara
um 2.500 - 3.000 tonn á ári
og er nær allt hráefni keypt á
fiskmörkuðum. Albert segir
að fleiri kostir en gallar séu
því samfara að kaupa hráefn-
ið á fiskmörkuðum. Hráefnis-
gæði séu ótvíræð, enda sé
alltaf verið að vinna glænýtt
hráefni. Hins vegar sé því
ekki að leyna að margir þeir
bátar sem leggi upp á fisk-
mörkuðunum séu smábátar
og eigi erfitt með að sækja
hráefnið þegar veður séu vá-
lynd. Þess vegna komi þeir
dagar yfir vetrarmánuðina að
lítið framboð sé á mörkuðun-
um.
Ætla að stækka vinnsluna í
vetur
Til stendur að auka vinnsluna
hjá Ísfiski. Í vetur er ráðgerð
600 fermetra viðbygging við
núverandi hús við Hafnar-
braut, sem þýðir í raun 80%
stækkun á núverandi vinnslu-
rými. Þetta þýðir að stefnan
er tekin á að vinna úr 3.500 -
4.000 tonnum á ári.
„Við ætlum að halda okkar
stöðu á Bandaríkjamarkaði
og höfum ekki í hyggju að
draga úr framleiðslunni inn á
þann markað, þó svo að doll-
arinn hafi verið okkur eilítið
andsnúinn á síðustu misser-
um. En framleiðsluaukning
gefur okkur færi á að hasla
okkur líka völl inn á aðra
markaði. Til dæmis hefur ver-
ið góður markaður fyrir ýsu í
Bretlandi. Það er út af fyrir
ekki æskilegt að hafa öll egg-
in í sömu körfunni. Þess
vegna höfum við líka verið
að horfa til Evrópu,“ segir Al-
bert Svavarsson.
Is
„
le
e
P
Ísfiskur hefur sérhæft sig í vinnslu á ýsu í hinum klassísku fimm punda pakkning-
um.
Ísfiskur hefur sérhæft sig í vinnslu á
ýsu fyrir Bandaríkjamarkað:
Stærstir í heim-
inum í fimm
punda pakkn-
ingum í ýsu
Um 2.500 tonn af hráefni fara nú í gegnum vinnsluna hjá Ísfiski, en með stækkun
vinnslunnar í vetur er stefnan að auka hráefnisflæðið í 3.500 til 4.000 tonn á ári.
aegirsept2006 10/11/06 2:54 PM Page 11