Ægir - 01.08.2006, Blaðsíða 34
34
H V A L I R
Eftir því sem næst verður
komist hafa stjórnvöld ekki
tekið um það ákvörðun hvort
Íslendingar hefji aftur hval-
veiðar í atvinnuskyni. Ægir
hefur leitað eftir upplýsingum
frá sjávarútvegsráðuneytinu
um málið en þar liggja þær
ekki á lausu. Ljóst er að
margir þrýsta mjög á um að
hvalveiðar verði hafnar hið
snarasta, en andstaðan er
líka heldur betur til staðar.
Endurbætur í Hvalfirði
Á meðan stjórnvöld liggja
undir feldi og komast að nið-
urstöðu um málið er unnið á
fullu við að gera upp hval-
stöðina í Hvalfirði, sem hefur
staðið tóm síðan 1989. Hvalur
hf. sem á og rekur hvalbát-
ana, sem jafn lengi hafa legið
við festar í Reykjavíkurhöfn,
hefur sömuleiðis yfirfarið
einn hvalbátanna, Hval 9, og
var hann reyndar tekinn upp
í slipp sl. sumar. Þar á bæ
vilja menn vera klárir í bátana
ef kallið kemur úr stjórnar-
ráðinu. Þegar Íslendingar
gengu aftur í Alþjóðahval-
veiðiráðið árið 2001 settu þeir
fyrirvara um að hefja ekki
veiðar að nýju næstu fimm
árin. Þessi fyrirvara er úr gildi
fallinn og af þeim sökum
gætu stjórnvöld ákveðið að
hefja hvalveiðar í atvinnu-
skyni á nýjan leik, án þess að
fara á svig við eigin skuld-
bindingar.
Hrefnurannsóknirnar halda
áfram
Á sama tíma og menn velta
vöngum yfir því hvort fara
eigi aftur í hvalveiðar í at-
vinnuskyni halda rannsókna-
veiðar á hrefnu áfram, en
þær hófust fyrir þremur
árum. Þegar lagt var í verk-
efnið var gert ráð fyrir að
veiða 200 hrefnur og nú þeg-
ar hefur 161 hrefna verið
veidd. Stefnt er að því að
sýnatöku vegna rannsókn-
anna ljúki næsta sumar, en
þær hafa það að markmiði að
afla grunnþekkingar á fæðu-
vistfræði hrefnunnar hér við
land. Með greiningu maga-
innihalds er aflað annarra
gagna sem nauðsynleg eru til
að meta afrán hrefnu á hin-
um ýmsu fæðutegundum. Þar
má nefna rannsóknir á orku-
búskap, árstíðabundnum
breytingum í fjölda og út-
breiðslu, og fæðuþörf. Þá
verður unnið að þróun fjöl-
stofnalíkans svo meta megi
vistfræðilegt samspil hrefnu
og annarra tegunda.
Samkvæmt upplýsingum
Hafró er í rannsóknum á
hrefnunni einnig verið að
skoða stofngerð hrefnu í
Norður-Atlantshafi með erfða-
fræðilegum aðferðum og
gervitunglamerkingum, kanna
sníkjudýr og heilsufar dýra í
hrefnustofninum, safna upp-
lýsingum um þætti eins og
aldur og viðkomu hrefnu við
landið, að kanna magn líf-
rænna og ólífrænna mengun-
arefna í hinum ýmsu líffærum
og að meta gagnsemi ýmissa
nýrra rannsóknaaðferða með
samanburði við hefðbundnar
aðferðir.
Sandsílið algengasta fæðu-
tegundin
Samkvæmt frumniðurstöðum
úr þessari rannsókn var sand-
síli algengasta fæðutegund
hrefnunnar og fannst það í
um 60% greindra maga. Aðrar
algengar fæðutegundir voru
þorskur, loðna, áta, ýsa og
fleiri fisktegundir. Samanbor-
ið við takmörkuð fyrirliggj-
andi gögn áður en rannsókn-
in hófst, var talsvert meira af
þorski og sandsíli nú og að
sama skapi minna af átu og
loðnu. Mikill breytileiki virð-
ist vera í fæðunni eftir haf-
svæðum.
Sumarið 2004 voru sett
gervitunglamerki á 7 hrefnur
í Faxaflóa. Ein þeirra tók sér
ferð á hendur suður fyrir
Kanaríeyjar í nóvember-des-
ember, þetta voru merkilegar
niðurstöður og gáfu til kynna
ákveðnar vísbendingar um
vetursetu hrefnunnar.
Aftur hvalveiðar?
Hvalbátar Hvals hf. í Reykjavíkurhöfn. Einn þeirra, Hvalur 9, var tekinn í slipp í sumar og er því klár í slaginn, ef til kemur.
aegirsept2006 10/11/06 2:54 PM Page 34