Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1939, Blaðsíða 3

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1939, Blaðsíða 3
II. árg. 2. tbl. 1939. MAL OG MENNING Til félagsmanna. Tvær ólíkar skáldsögur. Með þessu hefti fá félagsmenn í hendur skáldsöguna Austan- vindar og vestan, eftir Nobelsverðlaunahöfundinn Pearl Buck. Er þessi saga kom fyrst út í Ameríku, vakti hún mikla eftir- tekt, og varð uppliafið að frægðarorði skáldkonunnar, þó að skáldsagnaflokkurinn, sem hefst með Góðu landi, þyki mesta ritverk hennar. Austanvindar og vestan stingur mjög í stúf við bók eins og Móðurina eftir Gorki. Hún lýsir yfirstéttarfjölskyldu í Kína, fáguðum siðum, aldagrónum, óbifanlegum venjum, en þó í sterkum árekstrum við nýja erlenda siði. Það eru andstæð- urnar milli austursins og vestursins, sem höfundurinn hregður Ijósi yfir, andstæðurnar milli liinna tveggja heima, Kina og Ameriku, sérstaklega í ytri háttum og lífsvenjum. Þeir, sem eru óánægðir með Móðurina, þola ekki „áróður" hennar gegn keis- araharðstjórninni rússnesku, koma ekki auga á hina skáldlegu fegurð og dýpt, þykir sagan beizk og miskunnarlaus og rista of djúpt í félagslegar meinsemdir, fá hér bók af allt öðru tagi, hógværa, fágaða, dregna mildri sættandi hendi konunnar. Ég vona hins vegar, að þeir, sem hrifnastir eru af Móðurinni, eigi frjálslyndi til að meta listfengi þessarar sögu, þó að þeim kunni að þykja efni hennar fjarlægt sér, svo að austrið og vestrið i félagi okkar eigi eftir að sættast á báðar sögurnar og mætast, eins og í bók Pearl Buck, í nýrri einingu frjálslyndari, rýmri sjónarmiða á skáldverkum. Rit um íbúðir og hýbýlaprýði verður fimmta bók Máls og menningar. Ákvörðun hefur verið tekin um val fimmtu bókarinnar í ár. Verður það rit um hagkvæma innréttingu á húsum í sveitum og bæjum, byggingarstíl, hentug og ódýr húsgögn, umgengni á heimilum, hýbýlaprýði, hreinlæti, skipulag húsagarða o. fl. Bók- in verður skreytt allmiklu af myndum og teikningum. Ég býst við, að útgáfan verði sem mest sniðin eftir „Vatnajökli", en get- ur þó varla orðið eins stór bók. Þetta verður nýstárlegt rit, það Ittl malogmemhino ■III 25

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.