Fjarðarpósturinn - 19.03.2015, Page 4
4 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015
FJÖRÐUR Páll B. Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Ársæll Ó.
sölufulltrúi
896 6076, as@remax.is
Lækjargötu 34d, Hafnarfirði
Vantar eignir á skrá
Mikil eftirspurn! Frítt söluverðmat
S: 698 83 84
Öll alhliða jarðvinna
Snjómokstur | Lagnavinna
Lóðarvinna og frágangur
sími 698 384
gröfuverk@grofuverk.is
Á hverju ári slasast fólkt og
lamast. Við það umbyltist líf
viðkomandi og hans nánustu og
sá slasaði getur ekki lengur
unnið. Hinn slasaði verður
nánast tekjulaus fyrir utan þær
örorkubætur sem í boði eru.
Að auki veikist fólk af MND
og MS og fleiri sjúk dóm um sem
getur dregið fólk í hjólastól.
Safna í styrktarsjóð
Samtökin „Við stólum á þig“
voru stofnuð sl. haust til að
hjálpa fólki sem lendir í hjólastól
og eru að hefja sölu á tauburðar
pokum til að safna fé í öflugan
styrktarsjóð. Pétur H. Sigur
gunn arsson er hvatamaður að
stofn un samtakanna segir að
kerf ið bjóði ekki upp á neitt
öryggis net fyrir fólk í þessari
stöðu, því miður. „Það eina sem
er í boði er svokallað sérþarfalán
frá Íbúðalánasjóði sem er lán að
hámarki 8 milljónir með veði í
íbúðinni, verðtryggt og ber 4,2%
vexti. Það er ekki upplífgandi
verandi kominn á örorkubætur
og standa frammi fyrir því að
búa á meðferðarstofnun sem eftir
er fjarri sínum nánustu ættingj
um,“ segir Pétur.
Allir vilja að sjálfsögðu geta
búið áfram heima hjá sér með
sinni fjölskyldu eftir svona áföll.
Skilyrði til að geta búið áfram
heima hjá sér er að íbúðin sé
þannig úr garði gerð að fólk í
hjólastólum geti farið um íbúðina
hindrunarlaust. Sumir eiga þess
ekki kost vegna þess að því
fylgir mikill kostnaður að breyta
íbúð svo að fólk í hjólastólum
geti búið þar. Þröskulda þarf að
fjarlægja, jafnvel breikka hurðir,
setja lyftibúnað á efri skápa,
breyta bað og salernisaðstöðu
og jafnvel þarf að breyta aðgengi
að húsi.
Í samstarfi við fyrirtæki
Á mánudaginn var verkefninu
formlega hleypt af stokkunum er
undirritaðir voru samningar við
þrjú fyrirtæki sem kosta ákveðið
magn af pokum til sölu og fá í
stað merki sitt á pokana. Ætlunin
er að sögn Péturs að fá íþrótta
félög til að ganga í hús og selja
innkaupatöskur ásamt rúllu af
maísruslapokum.
Ætlunin er að fá miklu fleiri
fyrir tæki og bæjarfélög til sam
starfs í þessu landsverkefni.
Lágmarksmagn sem fyrirtæki
þurfa að kosta eru 250 töskur.
Ætlunin er að búið verði að
safna styrktarfyrirtækjum fyrir
10. apríl nk.
Þeir forsvarsmenn fyrirtækja
og bæjarfélaga sem hafa áhuga á
að taka þátt í verkefninu eru
hvattir til að senda tölvupóst á
vidstolum@vidstolum.is
F.v.: Birna Katrín Ragnarsdóttir frá RB-rúmum, Pétur H. Sigurgunnarsson, Bergur Helgason frá
Aðalskoðun, Sigfús Tómasson frá Rafgeymasölunni og Guðjón Sigurðsson frá MND félaginu.
„Við stólum á þig!“
Stofna sjóð til að styrkja breytingar á húsnæði hjólastólsnotenda
Tónlistarnemendur slógu
í gegn með Ný dönsk
Dagana 27. og 28. febrúar hélt
hljómsveitin Ný dönsk tónleika í
Bæjarbíó. Fyrir tónleikana sendi
Jón Ólafsson hljómsveitarsjóri
Tónlistarskóla Hafnar fjarðar
fyrirspurn um hvort hugsanlegt
væri að einhverjir nem endur
skólans væru til í að leika eitt af
lögum hljóm sveitarinnar. Peter
Tompkins óbó og saxófón
kennari brást vel við þessari
fyrirspurn og útsetti fyrir sína
nemendur lagið Á sama tíma að
ári með Ný dönsk. Hópurinn
stóð sig frábærlega á tónleikunum
og hreinlega sló í gegn.
Á Rótarýdeginum laugar
daginn 28. febrúar léku þær Inga
Steinunn Henningsdóttir, Katla
Garðarsdóttir og Bergþóra Gests
dóttir klarinettunemendur
Ármanns Helgasonar nokkur lög
í Húsi Bjarna riddara þar sem
Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar var
með mjög áhugaverða dagskrá.
Stúlkurnar léku mjög fallega og
voru skólanum sínum til mikils
sóma.
Nemendur Peter Tompkins sem léku á tónleikum með Ný dönsk.
Tríóið sem lék á Rótarýdeginum.
Lj
ós
m
.:
S
ig
ur
jó
n
P
ét
ur
ss
on
Það var létt yfir nemendum í 5.
bekk Víðistaðaskóla þegar þau
komu öll á Hrafnistu til að fá
súkkulaðiköku með rjóma. Var
súkkulaðikakan borin fram sem
þakklæti fyrir vikulegan lestur
krakkanna fyrir heimilisfólk og
eldri borgara í dagdvöl á
Hrafnistu.
Hafa börnin síðan í október sl.
komið vikulega, einn bekkur í
einu, og lesið upphátt. Með
þessu slá börnin tvær flugur í
einu, æfa sig í að lesa upphátt og
gleðja eldri borgara. Þeir voru
svo sannarlega glaðir þeir sem
blaðamaður Fjarðarpóstsins náði
í og dásömuðu börnin. Ekki
aðeins fyrir yndislegan lestur
heldur einnig fyrir hvað þau
væru prúð og hjálpsöm. Þá voru
dæmi um að börn hefðu lesið
frumsamdar sögur og einn
nemandinn tók gítarinn sinn með
og spilaði fyrir sinn lestrarvin.
Börnin sögðust hafa haft mjög
gaman af lestrinum og sögðust
hafa lesið ýmislegt, bæði ljóð og
sögur.
Þarna kvöddu börnin sinn
lestrarvin og það var eftirsjá fyrir
heimilisfólkið að sjá á eftir
þessum hressu krökkum en
vonandi verður áframhald á
þessu skemmtilega samvinnu
verkefni.
Allir voru ánægðir, heimilisfólkið og krakkarnir.
Það var ekki amalegt að fá súkkulaðiköku með rjóma í hádeginu.
Lestur þakkaður með súkkulaðiköku
5. bekkingar í Víðistaðaskóla heilluðu heimilisfólk á Hrafnistu
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n