Fjarðarpósturinn - 01.04.2015, Síða 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2015
Það er komin upp skemmtilega
einkennileg staða í hafnfirskum
stjórnmálum. Faglega ráðinn
bæjarstjóri, ráðinn af meirihluta
Sjálfstæðisflokks og Bjartri
framtíð hefur sagt einkavæðingu
undir forystu Sjálfstæðisflokks
ins stríð á hendur. Hann hefur sagt einka fram
kvæmdasamninga sem sveitarfélögin gerðu með
Hafnarfjörð í fararbroddi verstu samninga sem þau
hafa gert. Það hlakkar í Samfylkingarfólki sem fylkir
liði með bæjarstjóranum sem þeir hafa verið að
gagnrýna af því málstaðurinn hentar þeim.
Sjálfstæðismenn þegja þunnu hljóði því þó aðrir hafi
ráðið ríkjum í Sjálfstæðisflokknum í þá daga, þá er
þetta hið vandræðalegasta mál og sennilega getur
enginn bæjarfulltrúi í dag varið þá. Jafnvel er farið
svo langt að gagnrýna fyrri meirihluta fyrir að hafa
ekki nýtt síðustu 8 ár til að „lagfæra“ þá. Reyndar
voru fjölmargir samningar yfirteknir þegar
Fasteignafélög urðu gjaldþrota í röðum. Það má því
segja að það hafi verið heppni í óheppninni þó engin
heppni hafi fylgt fjármálahruninu.
Það verður því gaman að sjá alla flokka fylkja lið
með bæjarstjóra í baráttunni að semja við eigendur
Áslandsskóla eða finna aðra lóð ella og byggja eigin
skóla.
Þau áform hafnarstjórnar að ætla að áminna
starfsmann Hafnarfjarðarhafnar fyrir sakir sem
enginn hefur skilið ætlar að draga langan dilk á eftir
sér. Mikil leynd hefur hvílt yfir málinu og vísað hefur
verið til trúnaðar vegna þess að málið sé starfs
mannamál. Samt hafa menn í yfirlýsingum upplýst
um það sem enginn mátti greinilega vita. Þó því hafi
verið neitað að hafnarstjóri hafi neitað að hefja
áminngarferil kemur það fram í fylgiskjali með
fundargerð bæjarráðs í síðustu viku. Auðvitað vissu
þetta flestir, annað kom ekki til greina. Hafnarstjóri
hefði brotið stjórnsýslulög hefði hann hafið
áminningarferil enda voru engar sannanir til í málinu.
Hann taldi enga ástæðu til áminningar og því neitaði
hann að ráðast gegn starfsmanni sínum á jafn
lúalegan hátt og meirihluti hafnarstjórnar gerði. Svo
tekur steininn úr þegar birt er minnisblað lögfræðings
Sambands íslenskra sveitarfélaga sem blessar það að
pólitíkus blandi sér í starfsmannamál. Þetta er sami
lögfræðingur og var aðili að málinu er hann leiðbeindi
hafnarstjórn við mislukkaðan áminningarferilinn. Var
þetta árás á hafnarstjórann? Fyrir hvað? Hann
óhlýðnaðist sínum yfirboðurum. Var hann áminntur?
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Skírdagur, 2. apríl
Fermingarmessur
kl. 11 og kl. 13.30
Passíusálmar 36-41
sungnir kl. 17-19
Heilög kvöldmáltíð kl. 18
Prestur sr. Þórhildur Ólafs.
Föstudagurinn langi
Kyrrðarstund kl. 11
Magnea Tómasdóttir syngur úr passíusálmunum.
Lesið úr píslarsögunni. Organisti Guðmundur
Sigurðsson. Prestur Jón Helgi Þórarinsson.
Passíusálmar 42-50
sungnir kl. 17-19
Páskadagur
Hátíðarmessa kl. 8 árd.
Sr. Þórhildur Ólafs predikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr .Jóni Helga Þórarinssyni.
Barbörukórinn syngur.
Organisti Guðmundur Sigurðsson.
Morgunverður í Hásölum Strandbergs
eftir messuna.
Hátíðarmessa á Sólvangi
kl. 15
www.hafnarfjardarkirkja.is.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
1914 - 2014
Föstudagurinn langi
Kyrrðarstund við
krossinn kl. 17
(Ath. breyttan tíma.)
Dagskrá í tali og tónum sem tengist
atburðum föstudagsins langa. Kór og
hljómsveit kirkjunnar leiða sönginn undir
stjórn Arnar Arnarsonar.
Páskadagur
Hátíðarguðsþjónusta
kl. 8 árdegis
Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða sönginn
undir stjórn Arnar Arnarsonar. Boðið er til
morgunverðar í safnaðarheimilinu að
guðsþjónustu lokinni
Fylgist með okkur á www.frikirkja.is
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Föstudagurinn langi, 3. apríl
Lestur valinna Passíusálma
kl. 17-18
Gömlu lagboðar sálmanna leiknir
á ýmis hljóðfæri.
Páskadagur, 5. apríl
Hátíðarmessa kl. 11
Sunnudagaskóli á sama tíma.
www.astjarnarkirkja.is
Víðistaðakirkja
Bænadagar og páskar
Skírdagur
Fermingarmessa
kl. 10.30
Föstudagurinn langi
Helgistund kl. 11
Umsjón: María Gunnarsdóttir guðfræðingur,
Helga Þórdís leikur á orgel.
Páskadagur
Hátíðarguðsþjónusta kl. 8
Morgunkaffi á eftir.
www.vidistadakirkja.is
Haukar tryggðu oddaleik
Klemmdir upp að vegg náðu Haukar að tryggja sér
oddaleik gegn Keflavík í úrslitakeppninni í körfubolta
karla. Með flottum lokafjórðungi sigruðu Haukar á
útivelli og hreinn oddaleikur verður því á Ásvöllum á
morgun, skírdag kl. 16 að Ásvöllum. Þá verður fjör.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n