Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 16.04.2015, Blaðsíða 2

Fjarðarpósturinn - 16.04.2015, Blaðsíða 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2015 Hinn sakleysislegi bæjarlækur okkar Hafnfirðinga, Hamars­ kots lækurinn hefur í einni svipan orðið að stórhættulegum stað þar sem slys var á stað þar sem fæstir ef enginn taldi svo hættu­ legan. Eflaust hafa fleiri en ég hugsað um hættuna sem stafaði af sakleysislegu en hyldjúpu lóninu ofan við stíflu en ekki haft hugmynd um að fossinn neðan við stífluna gæti verið þessi ógnvaldur sem hann reyndist vera. Átta ára dreng er haldið sofandi í öndunarvél eftir að krafturinn í vatnflaumnum hélt honum niðri en allt er gert til að bjarga lífi hans. 12 ára bróður hans, sem ætlaði að koma bróður sínum til bjargar, var naumlega bjargað með endurlífgun. Það var fyrir snarræði 11 ára systur þeirra sem hringdi eftir aðstoð og ósérhlífins ungs vegfaranda, sem líka var hætt kominn við björg­ unarstörf, sem öflugt lið björgunarfólks kom fljótt á slysstað. Slysið skekur Hafnfirðinga sem eru slegnir og margir biðja fyrir unga drengnum. Ekkert skekur okkur meira en þegar hætta steðjar að börnum okkar. Iðnskólinn í Hafnarfirði er eini skólinn eftir á landinu sem ber nafnið iðnskóli. Tækniskólinn ehf. varð til við sameiningu ýmissa skóla, þ.m.t. Iðnskólans í Reykjavík. Það vekur nokkra furðu að að það skuli hafa verið Tækniskólinn ehf. sem óskaði eftir sameiningunni og líklega er verið að tala um innlimun í þeirra huga. Sem betur fer hefur gildi iðnmenntunar verið meira og meira ljós í hugum þingmanna og ráðherra en alltof lengi hefur iðnmenntun verið sett skör lægra en t.d. nám til stúdentsprófs. Með auknum áhuga á hönnun og nýsköpum hefur mönnum orðið ljóst mikilvægi þess að búa yfir vel menntuðum og þjálfuðum iðnaðarmönnum. Samt hafa fulltrúar iðnskóla verið fullir minnimáttarkenndar og ekki ósjaldan hafa góðir iðnnemendur verið hvattir áfram til tæknináms – út úr sinni iðngrein sem þeir voru svo góðir í. Í Hafnarfirði er gríðarlega öflugt safn iðnfyrirtækja, ekki síst málmiðanarfyrirtækja sem byggja á því að það útskrifist hæfir iðnaðarmenn. Kannski hefur skort á framtíðarsýni í bænum og það ætti að vera kappsmál Hafnfirðinga að tryggja að allir vissu t.d. að bestu málmiðnaðarmennina væri að finna í Hafnarfirði. Með góðu samstarfi atvinnulífs og Iðnskólans í Hafnarfirði er engin þörf á sameiningu við einkahlutafélag í Reykajvík. Guðni Gíslason ritstjóri. leiðarinn Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Ritstjóri: Guðni Gíslason Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson. Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is www.facebook.com/fjardarposturinn Sunnudagur 19. apríl Messa kl. 11 Félagar úr Barbörukórnum syngja. Organisti er Guðmundur Sigurðsson. Prestur er sr. Þórhildur Ólafs. Sunnudagaskóli kl. 11 Leiðtogi sunnudagaskólans er Anna Elísa Gunnarsdóttir, henni til aðstoðar er Margrét Heba. Kaffi, kex og djús á eftir í Ljósbroti Strandbergs safnaðarheimilis Hafnarfjarðarkirkju. www.hafnarfjardarkirkja.is. HAFNARFJARÐARKIRKJA 1914 - 2014 Sunnudagurinn 19. apríl Sunnudagaskóli kl. 11 Notaleg, fræðandi og skemmtileg samvera fyrir alla fjölskylduna. Hljómsveitin leiðir sönginn. Fylgist með okkur á www.frikirkja.is 35 ár Stolt að þjóna ykkur Útfararskreytingar kransar, altarisvendir, kistuskreytingar, hjörtu Bæjarhrauni 26 Opið til kl. 21 öll kvöld Símar 555 0202 og 555 3848 www.blomabudin.is Sunnudaginn 19. apríl Sunnudagaskóli kl. 11 Kirkjunni verður breytt í kaffihús og barnakórinn flytur söngleik. Gospelguðsþjónusta kl. 20 Þema: Hver er þessi maður? Miðvikudagar Starf eldri borgara kl. 13.30-15.30 www.astjarnarkirkja.is Víðistaðakirkja Sunnudagur 19. apríl Guðsþjónusta kl. 11 Ræðumaður: Karl Kristensen kirkjuvörður. Tónlist: félagar úr kór Víðistaðakirkju undir stjórn Helgu Þórdísar. Kaffi eftir stundina. www.vidistadakirkja.is Um leikskóla og fjármál Undanfarin ár hafa inn ritun­ arreglur á leikskóla bæjarins kveð ið á um að börn í Hafnarfirði geti byrjað á leikskóla á því ári sem þau verða tveggja ára. Sam kvæmt reglunum eru börn því að komast inn á aldursbilinu 19­30 mán aða, eftir því hven ær þau eru fædd á árinu. Vegna fækkunar barna á leikskólaaldri hefur yngri börnum verið veitt leikskóla­ pláss eftir því sem að stæður hafa leyft að hausti þegar nýir hópar barna eru jafnan teknir inn í skólana. En síðastliðið vor, í aðdraganda kosninga, var ekki beðið fram á haust með slíka úthlutun heldur bar svo við að foreldrum barna sem fædd voru snemma árs, var tilkynnt að börn þeirra kæmust inn á hausti kom andi. Úthlutun leikskólaplássa hefur því verið óskýr og ógagnsæ síðastliðin ár, sem leitt hefur til óánægju foreldra sem ekki hafa fengið pláss fyrir börn sín og spurt hefur verið: „Eftir hvaða reglum er unnið?“ Í umræðum um þessi mál í bæjarstjórn á sl. kjör­ tímabili kom þetta skýrt í ljós, þ.e. erfitt var að fá svör við því við hvaða reglur væri miðað og hvers foreldrar mættu vænta. Þess ber að geta að allt að 80­90 börn í for­ gangshópi, fá leikskóla vist fyrr en önnur börn. Erfið fjárhagsstaða fyrsta viðfangsefni nýs meirihluta Í vinnu við fjárhagsáætl­ unargerð fyrir árið 2015 blasti við stórt verkefni á öllum svið­ um bæjarins, þ.e. að reyna að minnka fjárlagagatið sem við var að etja. Þá var einsýnt að erfitt yrði að auka þjónustu að svo stöddu, eins og að lækka innritunar­ aldur á leikskóla sem svo sannarlega er for gangs verk efni. Við fram­ lagningu árs reikn ings 2014 í bæjarstjórn í gær, kom enn skýrar fram en áður hve þröng fjárhagsstaða bæjarins í rauninni er og alvar legri en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Væntingar eru um að heildar úttekt á rekstri sveitar félags ins sem nú stendur yfir og tillögur að úrbótum, muni skapa svigrúm til að efla þjónustu og bæta hag bæjarbúa. Það er t.d. óásættanlegt að gjöld og álögur séu hærri í Hafnarfirði en í nágrannasveitar félögunum. Markmið að lækka innritunaraldur Nú eru að störfum starfshópar, ann ars vegar um endurskoðun skóla­ stefnu Hafnarfjarðarbæjar og hins vegar um breytingar á gjaldskrá sveit arfélagsins. Gert er ráð fyrir að fyrstu tillögur hóp anna líti dagsins ljós í maí. Með al annars er verið að leita leiða um hvernig hægt sé að breyta innritunarreglum leikskóla með það að markmiði að stíga fyrstu skref í að lækka innritunaraldur barna í leikskóla bæjarins og að regl­ urnar séu gagnsæjar og skýr ar. Mikil vægt er að ákvarðanir um slíkar kostnaðarsamar breyt ingar verði teknar að lokinni rekstrarúttektinni sem fyrr var nefnd og að bæjarstjórn verði samstiga í því að leikskólastigið og þjónusta við barnafjölskyldur verði efld eftir því sem svigrúm gefst. Höfundur er formaður bæjarráðs og fræðsluráðs. Rósa Guðbjartsdóttir NÆSTA BLAÐ kemur út síðasta vetrardag MIÐVIKUDAGINN 22. apríl

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.