Fjarðarpósturinn - 16.04.2015, Page 3
www.fjardarposturinn.is 3FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2015
Áhyggjufullir yfir fyrirhugaðri sameiningu Iðnskólans og Tækniskólans
Bæjaryfirvöld hafa lítið fengið að vita um málið og hafa spurningar
Nú stendur yfir fýsileika könn
un á sameiningu Tækniskólans,
skóla atvinnulífsins, og Iðn
skólans í Hafnarfirði. Nokkur
hraði virðist vera á allri vinnu og
er starfshópi sem mennta mála
ráðherra skipaði í febrúar ætlað að
skila niðurstöðum eigi síðar en
21. arpíl. Í hópnum sitja Ársæll
Guðmundsson, verkefnis stjóri í
mennta málaráðuneytinu og
skóla meistari Iðnskólans í Hafn
ar firði (í ársleyfi), Jón B. Stefáns
son, skólameistari Tækni skólans,
Bjarni Bjarnason, formaður
skóla nefndar Iðn skól ans í Hafnar
firði, Bolli Árnason, formaður
stjórnar Tækniskólans og Gísli
Þór Magnússon, skrif stofustjóri
upplýsinga og fjár málasviðs
mennta málaráðu neytisins.
Í svari sem Ársæll Guð munds
son sendi bæjarstjóra 25. mars sl.
stendur m.a.: „Markmið með
hugsanlegri sameiningu skólanna
er að efla starfsnám og blása til
sóknar á því sviði. Gengið er út
frá því sem vísu að starfsnám
verði áfram í boði í Hafnarfirði og
ekki er neinn útgangspunktur að
þar fækki nemendum frá því sem
nú er. Sameining gæti hins vegar
opnað marga nýja möguleika til
að efla námið og gera það meira
aðlaðandi fyrir nemendur.“ Það
var Tækniskólinn sem óskaði eftir
því í febrúar við mennta mála
ráðherra að skólarnir yrðu
sameinaðir.
Kennarar og starfsfólk
áhyggjufullt
Á fundi Kennarafélags Iðn
skólans í Hafnarfirði og starfs
manna sem haldinn var á þriðju
dag var samþykkt ályktun þar
sem kennarar og annað starfsfólk
Iðnskólans í Hafnarfirði lýsa
áhyggjum sínum af fyrirhugaðri
sameiningu Tækniskólans, skóla
atvinnulífsins og Iðnskólans í
Hafnarfirði. Segir þar að starfs
menn allir sem og skólaæskan í
Hafnarfirði og nágrenni séuu
sett í óvissu með þessu.
Rótgróinn hluti af skóla
sam félagi Hafnarfjarðar
Þá telja kennarar og starfsfólk
mikilvægt að gæta þess að skól
inn starfi áfram sem sjálfstæð
eining. Hann sé rótgróinn hluti af
skólasamfélagi Hafnarfjarðar til
áratuga og það sé brýnt hags
muna mál starfsmanna, skóla
æsk unnar í Hafnarfirði og bæjar
yfirvalda að skólinn verði áfram
starfræktur með sambærilegu
námsframboði og nú er.
Skora á bæjaryfirvöld
Skora kennarar og annað
starfsfólk á bæjaryfirvöld í Hafn
arfirði að láta málið til sín taka en
málið var kynnt á bæjarráðsfundi
á mánudag og að sögn Guðlaugar
Kristinsdóttur, forseta bæjar
stjórnar, átti að taka málið fyrir á
bæjar stjórnarfundi í gær mið
vikudag, eftir að blaðið fór í prent
un. Sagði Guðlaug í samtali við
Fjarðarpóstinn að bæjaryfirvöld
hafi af þessu nokkrar áhyggjur og
vilji skoða málið vel. Í ályktuninni
er menntamálayfirvöldum bent á
að fýsileikaútreikn ingar og
hagkvæmni stærðarinnar sé ekki
hinn einhlíti sannleikur. Skorað er
á hlutaðeigandi yfirvöld að vanda
ákvörðun sína.
Project1_Layou
t 1 24/11/2011
12:58 Page 1
Rauðarárstíg 33, 105 Reykjavík
Fjarðargötu 19, 220 Hafnarfirði,
sími 511-7000, www.innrammarinn.is
Fjarðargötu 19, Hafnarfirði
Velkomin á nýtt
rammaverkstæði
og verslun
Úrval tilbúinna
ramma og
myndaalbúma
Komdu í bragðgóða skemmtun!
Kíktu á matseðilinn á
www.burgerinn.is
©
F
ja
rð
ar
pó
st
ur
in
n
20
15
-0
4
Flatahrauni 5a Hfj. • 555 7030
Opið alla daga kl. 11-22
Munið krakka matseðilinn
ELBAKAÐAR
PIZZUR
FLOTTIR HAMBORGARAR
TERIYAKI KJÚKLINGUR
QUESADILLA
GRILLAÐAR LAMBAKÓTILETTUR
Hádegisverðartilboð
alla daga vikunnar
Borðað í sal
eða sótt í lúgu