Fréttablaðið - 08.04.2015, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 8. apríl 2015 | SKOÐUN | 15
Hljóðfæraleikarar pakka hljóðfær-
unum sínum ofan í kassana og svið-
ið í Eldborg er autt. Sætin í salnum
eru tóm. Tónleikunum hefur verið
aflýst og tryggir áskrifendur og tón-
leikagestir sitja heima. Stemningin í
Hörpu, tónlistarhúsinu „that makes
Iceland bigger“ eins og einn for-
svarsmanna Disney sagði á dögun-
um, er döpur.
Ef ekki nást samningar við starfs-
mannafélag Sinfóníuhljómsveit-
ar Íslands fyrir 9. apríl stefnir í að
þessi mynd sem hér er dregin upp
verði að veruleika. Hljóðfæraleikar-
ar hafa boðað verkfall á tónleikadegi milli kl.
19.00 og 23.00. Ef til þess kemur verður það,
eftir því sem ég kemst næst, í fyrsta sinn í
65 ára sögu hljómsveitarinnar sem þeir fara
í verkfall. Hingað til hefur verið litið svo á
að verkfallsvopn hljóðfæraleikara sé bitlaust.
Þetta er ekki sama beitta vopnið og læknar
eiga og verkfall hljóðfæraleikara bitnar ekki
á börnum og ungu fólki eins og þegar kenn-
arar fara í verkfall. En þó deila megi um
bitið geta áhrifin verið sterk. Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands var stofnuð 1950, sex árum eftir
stofnun hins íslenska lýðveldis. Sama ár var
Þjóðleikhúsið vígt. Ráðamenn þess tíma vildu
að listir og menning mótuðu sjálfsmynd þjóð-
arinnar. Á þessum 65 árum hefur Sinfóníu-
hljómsveit Íslands orðið ein af grunnstoðum
íslensks menningarlífs og vakið alþjóðlega
athygli, nú síðast í ágúst með rómuðum tón-
leikum hennar á hinni frægu tónlistarhátíð
BBC Proms.
Á síðasta ári sóttu 76.500 manns tónleika
Sinfóníuhljómsveitar Íslands eða um fjórð-
ungur landsmanna. Samkvæmt nýlegri Gal-
lup könnun hafa 45% fólks á aldrinum 18-34
ára komið á tónleika Sinfóníuhljómsveitar-
innar síðustu 2-3 ár og 96,3% tónleikagesta
fara ánægð. Á síðasta starfsári lék hljóm-
sveitin fyrir nær 21.500 gesti á skólatónleik-
um og öðrum opnum tónleikum sem voru
þáttur í fræðslustarfi hennar. Þessar tölur
sýna að starfsemin snertir stóran hluta þjóð-
arinnar.
Landsliðið
Nýlega var skólatónleikum Sinfóní-
unnar sjónvarpað beint í kvikmynda-
húsið Skjaldborg á Patreksfirði þar
sem skólabörn á svæðinu fengu tæki-
færi til að sjá og heyra hljómsveitina leika
fyrir fullum Eldborgarsal af reykvískum
grunnskólabörnum. Um var að ræða tilraun-
arverkefni með Símanum en slíkar útsending-
ar gætu orðið að föstum lið í starfsemi hljóm-
sveitarinnar á næsta starfsári. Á leiðinni á
tónleikana heyrðist einn ungra tónleikagesta
spyrja vin sinn: „Hvað er eiginlega sinfón-
íuhljómsveit?“ og vinurinn svaraði: „Það er
svona landsliðið í hljóðfæraleik.“
Það er margt líkt með hljóðfæraleikurum
og afreksfólki í íþróttum. Þeir þurfa að keppa
um stöður í hljómsveitinni. Þeir þurfa stöðugt
að viðhalda færni sinni með þjálfun marga
klukkutíma á dag. Allir atvinnutónlistarmenn
hafa æft á hljóðfæri frá barnæsku. Vinna
þeirra krefst ofurnákvæmni og mikillar ein-
beitingar hvort sem er við æfingar eða á tón-
leikum. Álagið á tónleikum er slíkt að blóð-
þrýstingur hljóðfæraleikara mælist hærri
en hjá flugumferðarstjórum, flugmönnum
og læknum.
Hljóðfæraleikarar hafa löngum þurft að
berjast fyrir því að störf þeirra væru metin til
launa. Ástríða þeirra og hæfileikar hafa verið
nokkurs konar kaupauki fyrir samfélagið sem
ekki hefur þurft að greiða list þeirra fullu
verði. Eins og aðrir launamenn fara þeir fram
á að menntun, álag og reynsla sé metin til
launahækkana. Vonandi finnst farsæl lausn
á kjaradeilunni fyrr en síðar.
Því hvað gerist þegar tónlistin þagnar og
hvernig hljómar þögnin í Eldborg?
Hljómar þögnin í Eldborg?
Verkalýðshreyfingin býr sig nú
undir hörð átök í kjaramálum.
Fyrstu verkföllin hafa verið
boðuð. Kjarasamningar eru lausir
og flest verkalýðsfélög hafa sett
fram kröfur sínar um kjarabæt-
ur. Starfsgreinasambandið fer
fram á, að laun hækki á þremur
árum í 300 þúsund krónur á mán-
uði. Þetta er sú lágmarksupphæð,
sem launþegar og allur almenn-
ingur þurfa sér til framfærslu.
Lægra en meðaltalsútgjöld
Þetta er lægra en neyslukönnun
Hagstofunnar segir að séu meðal-
talsútgjöld einstaklinga til neyslu í land-
inu, en þau nema 321 þúsund krónum á
mánuði án skatta. Félag eldri borgara í
Reykjavík hefur sett fram þá kröfu að
lífeyrir aldraðra hækki í áföngum í sam-
ræmi við neyslukönnun Hagstofunnar og
verði 321 þúsund krónur á mánuði.
ASÍ styðji kröfu lífeyrisþega
Nú þegar Starfsgreinasambandið hefur
sett fram kröfu um 300 þúsund króna
laun á mánuði er eðlilegt, að aldraðir og
öryrkjar setji fram hliðstæða kröfu, þ.e.
að laun (lífeyrir) lífeyrisþega hækki í
sömu upphæð og kaup launþega. Lands-
samband eldri borgara hefur áður sett
fram slíka kröfu og leitað stuðnings ASÍ
við þá kröfugerð. Eldri borgarar vænta
þess, að verkalýðshreyfingin taki kröfur
lífeyrisþega upp í viðræðum við ríkis-
stjórnina í tengslum við væntanlega
kjaradeilu. ASÍ þarf að setja fram þá
kröfu, að lífeyrir aldraðra og öryrkja
hækki í nákvæmlega sömu upphæð og
laun verkafólks munu hækka í. Það er
eðlileg og réttmæt krafa og það er eðli-
legt að verkalýðshreyfingin styðji aldr-
aða og öryrkja í þessu efni.
Hækki í takt við laun
Í lögum segir, að við ákvörðun lífeyr-
is aldraðra og öryrkja skuli taka mið af
launaþróun en að lífeyrir skuli aldrei
hækka minna en vísitala neysluverðs.
Þetta lagaákvæði hefur verið þver-
brotið. Lífeyrir aldraðra hefur hvergi
nærri hækkað eins mikið og lægstu laun.
Aldraðir og öryrkjar hafa orðið eftir í
launaþróuninni.
Lífeyrir iðulega verið frystur
Lífeyrir aldraðra og öryrkja hefur iðulega
verið frystur á sama tíma og lægstu laun
hafa hækkað. Þetta er kallað kjaragliðn-
un og aldraðir krefjast þess, að hún verði
strax leiðrétt vegna krepputímans og líf-
eyrir hækkaður um 20% áður en yfirstand-
andi kjaradeila leysist. Síðan þarf að gæta
þess við lausn kjaradeilunnar og fram-
vegis, að lífeyrir hækki ávallt jafnmikið og
lægstu laun.
Krefjast leiðréttingar strax
Kaupmáttur launa verkafólks jókst um
5,8% árið 2014. Lífeyrir aldraðra og
öryrkja hækkaði hins vegar aðeins um
3% um síðustu áramót. Hér hefur því enn
átt sér stað kjaragliðnun. Eldri borgarar
krefjast þess, að þetta verði strax leið-
rétt og lífeyrir aldraðra hækkaður strax
vegna þessarar kjaragliðnunar. Nóg er
ranglætið fyrir.
Lífeyrir aldraðra hækki í
300 þúsund kr. á mánuðiKJARAMÁL
Arna Kristín
Einarsdóttir
framkvæmdastjóri
Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands
➜ Hljóðfæraleikarar hafa
boðað verkfall á tónleikadegi
milli 19.00 og 23.00. Ef til þess
kemur verður það, eftir því sem
ég kemst næst, í fyrsta sinn í 65
ára sögu hljómsveitarinnar sem
þeir fara í verkfall.
➜ Lífeyrir aldraðra og öryrkja
hefur iðulega verið frystur
á sama tíma og lægstu laun
hafa hækkað. Þetta er kallað
kjaragliðnun og aldraðir
krefjast þess, að hún verði
strax leiðrétt vegna kreppu-
tímans og lífeyrir hækkaður
um 20% áður en yfi rstandandi
kjaradeila leysist. Síðan þarf
að gæta þess við lausn kjara-
deilunnar og framvegis, að
lífeyrir hækki ávallt jafnmikið og
lægstu laun.
KJÖR
ALDRAÐRA
Björgvin
Guðmundsson
formaður kjara-
nefndar Félags eldri
borgara í Reykjavík
CRÉATIVE TECHNOLOGIE
Citroën Nemo er með lægsta verðmiðann á markaðnum. Gerðu samanburð og veldu hagkvæman og lipran sendibíl sem uppfyllir allar þínar kröfur. Nemo er
með sparneytinni dísilvél og er vel búinn staðalbúnaði. Hliðarhurðir beggja vegna auðvelda hleðslu og hægt er að flytja lengri hluti með því að fella niður skilrúmið.
Kauptu hagkvæman Citroën Nemo, við aðstoðum þig með fjármögnun.
CITROËN NEMO ER HAGKVÆMASTI KOSTURINN
citroen.is
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Brimborg og Citroën áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
• LÆGSTA VERÐIÐ • HLIÐARHURÐIR BEGGJA VEGNA • FELLANLEGT SKILRÚM• SPARNEYTINN •
CITROËN NEMO VAN 1,3 DÍSIL 6 HURÐA
VERÐ FRÁ: 2.056.452 KR. ÁN VSK
VERÐ FRÁ: 2.550.000 KR. MEÐ VSK
HAGKVÆMASTI KOSTURINN
Brimborg er stærst í sölu atvinnubíla á Íslandi. Veldu traust umboð með einstöku þjónustuframboði fyrir bíla- og tækjaflota.
Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi . Sendu greinina þína
á greinar@visir.is og við komum henni á framfæri hið snarasta. 15
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
8
-4
1
6
C
1
6
3
8
-4
0
3
0
1
6
3
8
-3
E
F
4
1
6
3
8
-3
D
B
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K