Fréttablaðið - 08.04.2015, Blaðsíða 17
www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 8. apríl 2015 | 14. tölublað | 11. árgangur
V I Ð ELSKUM
A Ð P R E N TA !
Vel menntuð stétt
Um helmingur starfsmanna ferðaskrifstofa og ann-
arra þeirra sem sjá um skipulagningu ferða er há-
skólamenntaður. Einungis ein starfsgrein, það er
fjármála- og vátryggingastarfsemi,
hefur á að skipa hlutfallslega fleiri
háskólamenntuðum starfsmönnum.
Þetta sýna tölur Hagstofu Íslands
sem Böðvar Þórisson kynnti á aðal-
fundi Samtaka ferðaþjónustunnar á
dögunum. Grímur Sæmundsen, for-
maður stjórnar Samtaka ferðaþjónustunnar, segir
að hátt hlutfall háskólamenntaðra starfsmanna í
þessari grein megi sennilega rekja til þess að með
vexti greinarinnar hafi fólki með markaðsmenntun
fjölgað mjög. ➜ SÍÐA 4
Til starfa á þjóðarsjúkrahúsinu
„Þetta er þjóðarsjúkrahúsið okkar og skiptir okkur
því öll máli,“ segir Guðný Helga Herbertsdóttir, ný-
ráðinn deildarstjóri samskiptadeild-
ar Landspítalans. „Maður hefur auð-
vitað fylgst vel með því sem er að
gerast þar. Ég sá það þó betur í þessu
umsóknarferli hvað það eru ótrú-
lega flottir hlutir unnir þarna,“ segir
Guðný Helga. Hún bendir á að Land-
spítalinn gegni að auki mikilvægu hlutverki sem
mennta- og vísindastofnun og þar sé gerður mikill
fjöldi rannsókna sem eru birtar í erlendum vísinda-
ritum en Íslendingar heyri ekki mikið um. „Það er
einn þáttur sem ég vil breyta,“ segir hún. ➜ SÍÐA 8
Kauphallardagar í fi mmta sinn
Arion banki stendur fyrir Kauphallardögum í
fimmta sinn. Nú munu 15 fyrir tæki taka þátt, en
skipulagning hefur verið í höndum Greiningardeild-
ar bankans. Stefán Broddi Guðjónsson hjá Grein-
ingardeild Arion segir að í fyrstu hafi hugmyndin
verið að styðja við endurreisn hlutabréfaviðskipta í
Kauphöll Íslands og auka umfjöllun um skráðu fé-
lögin. Þegar Kauphallardagarnir voru fyrst haldn-
ir mátti telja þau fyrirtæki sem þátt tóku á fingr-
um annarrar handar. „Síðan hefur Kauphallardög-
um vaxið fiskur um hrygg og félögum fjölgað og
umfjöllun um markaðinn orðin meiri,“ segir Stefán
Broddi. ➜ SÍÐA 2
NEYTENDUR
ORÐNIR
KRÖFU-
HARÐARI
➜ Voru með 30 milljónir í
árstekjur af aukavinnu
➜ Öðruvísi hugsun á
markaði eftir að sam-
félagsmiðlarnir urðu til
➜ Horfi r björtum augum á
framtíð auglýsingamark-
aðarins.
SÍÐUR 6 OG 7 15
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
8
-D
5
8
C
1
6
3
8
-D
4
5
0
1
6
3
8
-D
3
1
4
1
6
3
8
-D
1
D
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K