Fréttablaðið - 08.04.2015, Qupperneq 20
| 4 8. apríl 2015 | miðvikudagur
Um helmingur starfsmanna ferða-
skrifstofa og annarra þeirra sem
sjá um skipulagningu ferða er
háskólamenntaður. Einungis ein
starfsgrein, það er fjármála- og
vátryggingastarfsemi, hefur á að
skipa hlutfallslega fl eiri háskóla-
menntuðum starfsmönnum. Þetta
sýna tölur Hagstofu Íslands sem
Böðvar Þórisson kynnti á aðal-
fundi Samtaka ferðaþjónustunnar
á dögunum.
Grímur
Sæmundsen, for-
maður stjórnar
Samtaka ferða-
þjónustunnar,
segir að hátt
hlutfall háskóla-
menntaðra
starfsmanna í
þessari grein megi sennilega rekja
til þess að með vexti greinarinn-
ar hafi fólki með markaðsmenntun
fjölgað mjög. Einnig sé háskóla-
menntað fólk að vinna við afþrey-
ingarhluta ferðaþjónustunnar, það
er leiðsögumenn og fl eiri stéttir.
„Það er oftast nær háskólamenntað
fólk,“ segir Grímur. En þótt fjöldi
háskólamenntaðs fólks starfi við
ferðaþjónustu þá er skortur á iðn-
menntuðu fólki sem starfar við
matreiðslu, framreiðslu og annað
slíkt. Grímur segir að í ályktun
sem samþykkt var á aðalfundin-
um hafi verið brýnt fyrir stjórn-
Mikill fjöldi háskólmenntaðra
starfar við ferðaþjónustu
Um helmingur starfsmanna ferðaskrifstofa er háskólagengið fólk. Fólki með markaðs-
menntun hefur fjölgað og háskólamenntað fólk vinnur einnig við afþreyingarhlutann.
GRÍMUR SÆMUNDSEN
MENNTUN Í ATVINNUGREINUM
Flug
Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur
Rekstur gististaða og veitingahúsa
Framleiðsla málma
Fjármála- og vátryggingastarfsemi
Landbúnaður, skógrækt og fi skveiðar
Framleiðslugreinar alls
Háskólamenntun Framhalds- og starfstengt nám Grunnmenntun
31% 58% 11%
51% 31% 18%
11% 37% 52%
11% 48% 41%
15% 46% 39%
15% 46% 39%
60% 24% 16%
völdum að bregðast við hlutverki
sínu og styðja innviði greinarinn-
ar. Í ályktuninni er meðal annars
vikið að menntun, en þar segir að
stórefl a þurfi menntakerfi ferða-
þjónustunnar. „Tryggja þarf sam-
ráð og samstarf milli fræðsluaðila
og atvinnulífsins. Einnig þarf að
bæta aðgengi að menntun, auka
starfsnám og samræmingu milli
skólastiga. Endurskipuleggja þarf
starfsnám með einfaldara grunn-
nám að leiðarljósi og skipa sérstak-
an starfshóp til þessa.“
Grímur segir að Samtök ferða-
þjónustunnar hafi í hyggju að
fylgja þessari ályktun eftir með
viðræðum við stjórnvöld um
menntamál og mörg önnur atriði
sem Samtökin leggja áherslu á.
„En það sem við leggjum kannski
mesta áherslu á í ályktuninni eru
stórauknar opinberar fjárfesting-
ar í samgöngum. Bæði í vegakerf-
inu og fl ugvallarstarfsemi. Vegna
þess að lífæð greinarinnar eru
samgöngur, og þarna erum við að
tala um innviðafjárfestingar sem
eru ekki sérhæfðar heldur nýtast
landsmönnum öllum í þeirra dag-
lega lífi ,“ segir Grímur.
Þá tekur Grímur fram að það
þurfi að horfa á nýtingar náttúru-
auðlinda út frá hagsmunum ferða-
þjónustunnar, sem sé langmest
gjaldeyrisskapandi atvinnugrein
landsins. „Sem dæmi hafa menn
verið að vinna með rammaáætl-
un vegna verndar og orkunýting-
ar landsvæða sem hefur verið í
vinnslu í tuttugu ár. Þarna er bara
verið að hugsa um orkufrekan
iðnað og ferðaþjónustan er orðin
fi mmtíu prósentum stærri en orku-
frekur iðnaður í gjaldeyrissköpun,“
segir Grímur. Mikilvægi ferða-
þjónustunnar sem atvinnugreinar
hafi vaxið mjög mikið á undanförn-
um árum og það þurfi að fara að
huga að henni með sama hætti og
hugað hefur verið að orkufrekum
iðnaði og sjávarútvegi hingað til.
Á aðalfundinum var að auki
samþykkt sérályktun um stofnun
ferðamálaráðuneytis til að vinna
að hagsmunum greinarinnar.
jonhakon@frettabladid.is
Hagnaður fasteignafélagsins
Eikar á síðasta ári nam 1.336
milljónum króna. Það er um 110
milljónum meiri hagnaður en árið
áður. Rekstrartekjurnar næstum
tvöfölduðust, fóru úr 2.029 millj-
ónum króna í 3.961 milljón króna.
Ástæðan er sú að Eik sameinaðist
Landfestum og keypti einnig EF1.
Eignasafn Landfesta ehf. er alls
um 98 þúsund fermetrar og sam-
anstendur af 35 eignum. Eigna-
safn EF1 hf. er alls um 60 þúsund
fermetrar og meðal eigna félags-
ins eru Smáratorg 1 og Turninn
að Smáratorgi 3 í Kópavogi, auk
verslunarmiðstöðvarinnar Glerár-
torgs og fasteigna við Dalsbraut 1
á Akureyri.
Við þessi viðskipti með EF1 og
Landfestar fóru eignir Eikar úr
24,6 milljörðum króna í 62,3 millj-
arða króna. Skuldirnar þrefölduð-
ust einnig, fóru úr 16,3 milljörðum
í 46,7 milljarða.
Í ársreikningi Eikar kemur fram
að stjórn félagsins leggur til að
greiddur verði 580 milljóna króna
arður til hluthafa á árinu 2015 en
ekki var greiddur arður á síðasta
ári.
Garðar Hannes Friðjónsson,
forstjóri félagsins, sagði í sam-
tali við Markaðinn á dögunum að
nú væri lögð áhersla á arðsemi og
þjónustu við hluthafa, fremur en
frekari stækkun. „Stjórn hefur
sett sér arðgreiðslustefnu um að
greiða árlega út arð sem nemur
35% af handbæru fé frá rekstri,“
sagði Garðar.
Eins og fram hefur komið er
stefnt að hlutafjárútboði Eikar nú
í apríl og að í framhaldinu verði
félagið skráð í Kauphöll. Tveir
stærstu núverandi eigendur í
félaginu eru Arion banki með lið-
lega 14 prósenta hlut og Lífeyris-
sjóður verslunarmanna með 10,5
prósenta hlut. Í útboðinu mun
Arion selja hlut sinn. - jhh
Stjórn fasteignafélagsins Eikar leggur til við aðalfund félagsins að hluthafar fái greiddar 580 milljónir króna í arð í ár:
Hagnaður Eikar jókst um 110 milljónir
GARÐAR HANNES FRIÐJÓNSSON
Laun stjórnarmanna og varastjórn-
armanna fasteignafélagsins Reg-
ins verða óbreytt næsta árið, sam-
kvæmt tillögu sem stjórn félagsins
leggur fyrir aðalfund félagsins.
Þóknun hvers stjórnarmanns
verður því áfram 250 þúsund krón-
ur á mánuði og þóknun formanns
stjórnar 500 þúsund krónur. Vara-
mönnum verða greiddar 125 þús-
und krónur fyrir hvern setinn fund,
þó ekki hærra en 250 þúsund krón-
ur fyrir hvern mánuð.
Starfskjarastefna fyrirtækisins
verður líka óbreytt frá fyrra ári.
Samkvæmt henni taka starfskjör
æðstu stjórnenda mið af kjörum
æðstu stjórnenda hjá sambæri-
legum fyrirtækjum. Þau taka mið
af frammistöðu viðkomandi starfs-
manns, afkomu félagsins, mikil-
vægra áfanga í rekstri og starf-
semi félagsins að öðru leyti. Þar á
meðal hvort settum markmiðum
hafi verið náð.
Stjórnarformaður fær áfram 500 þúsund krónur og stjórnarmenn fá 250 þúsund:
Óbreytt laun hjá stjórn Regins
HELGI S. GUNNARSSON, FORSTJÓRI REGINS FASTEIGNAFÉLAGS
Reginn greiddi samtals 466 millj-
ónir króna í laun og launatengd
gjöld árið 2014, sem var 64 millj-
ónum meira en árið á undan. Þar
af voru 37 milljónir í laun og 39
milljónir í önnur launatengd gjöld.
Aðalfundur Regins fer fram þann
21. apríl næstkomandi. - jhh
Neytendastofa hefur bannað Aqua
Spa ehf. að nota auðkennið Aqua
Spa og lénið aqua-spa.is.
Fram kemur á vef stofnunarinn-
ar að borist hafi kvörtun frá Átaki
heilsurækt sem taldi að með notk-
uninni bryti Aqua Spa ehf. gegn
vörumerkjarétti Átaks heilsu-
ræktar. „Neytendastofa taldi ljóst
að Átak heilsurækt hefði notað heit-
ið Aqua Spa fyrir snyrtistofu sína
frá árinu 2007. Heitið Aqua Spa
var talið hafa nægilegt sérkenni
til þess að njóta verndar. Var hætta
talin á því að neytendur teldu að
tengsl væru milli fyrirtækjanna,“
segir á vef Neytendastofu. - óká
Taka undir sjónarmið Átaks:
Noti ekki
Aqua Spa
ÁTAK HEILSURÆKT OG AQUA SPA ERU TIL HÚSA
VIÐ STRANDGÖTU Á AKUREYRI.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Landsnet kynnir
nýjar áherslur í
rekstri félags-
ins á opnum vor-
fundi um stöðu
fl utningskerfi s
raforku á Íslandi
í fyrramálið, 9.
apríl. „Tíu ár eru
frá því félagið
tók til starfa og er vorfundurinn
orðinn árviss viðburður,“ segir í
tilkynningu.
Með nýjum áherslum, sem Guð-
mundur Ingi Ásmundsson for-
stjóri Landsnets kynnir, á meðal
annars að nást fram víðtækari
samfélagssátt um leiðir til að þróa
og viðhalda raforkufl utningskerfi
landsins, í sátt við samfélag og
umhverfi . Hægt verður að fylgj-
ast með fundinum á landsnet.is
og koma að spurningum á Twitter
undir #landsnet, eða í netfangið
landsnet@landsnet.is. - óká
Kynna nýjar áherslur á vorfundi:
Landsnet
orðið 10 ára
GUÐMUNDUR INGI
ÁSMUNDSSON
Icelandair Group fl utti 183 þúsund
farþega í millilandafl ugi í mars og
voru þeir 15% fl eiri en á síðasta ári.
Framboðsaukning á milli ára nam
7%. Sætanýting var 82,7% og jókst
um 4,4 prósentustig á milli ára og
hefur aldrei verið hærri í mars áður.
Í tilkynningu Icelandair Group til
Kauphallarinnar segir að farþegar
í innanlandsfl ugi og Grænlandsfl ugi
hafi verið 23 þúsund í mars sem sé
fækkun um 4% á milli ára. - jhh
Sætanýting batnar enn:
15 prósent
fleiri farþegar
Viðskiptaráð Íslands telur að sú
endurnýjun sem er fram undan
á búvörusamningum skapi tæki-
færi fyrir framleiðendur og stjórn-
völd til þess að gera breytingar á
landbúnaðarkerfinu. Verði það
tækifæri ekki nýtt sé hætt við að
afkoma bænda haldi áfram að dala
samhliða rýrnandi kjörum neyt-
enda og auknum kostnaði skatt-
greiðenda.
Viðskiptaráð telur að um 40 pró-
sent matvælaútgjalda íslenskra
heimila megi rekja til vörutegunda
þar sem tollverndar nýtur við.
Mest sé tollverndin þegar kemur
að mjólkurtengdum afurðum og
kjöti. - jhh
Verndin mest í mjólk og kjöti:
Tækifæri til
breytinga
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
8
-D
5
8
C
1
6
3
8
-D
4
5
0
1
6
3
8
-D
3
1
4
1
6
3
8
-D
1
D
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K