Morgunblaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014
ÍÞRÓTTIR
Handknattleikur Ágústs Þórs Jóhannssonar, landsliðsþjálfara, og leikmanna hans í kvennalandsliðinu í
handknattleik bíður erfitt verkefni í umspilsleikjum HM í júní á næsta ári. Tvær viðureignir við Svartfellinga. 4
Íþróttir
mbl.is
EM 2014
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Sigurinn að þessu sinni er miklu
meira afrek en sigur okkar á EM
fyrir fjórum árum. Þá vorum við
með mikið reyndari leikmenn sem
reiknað var með að myndu berjast
um verðlaun. Nú vorum við með
óreyndara lið og áttum ekki fyr-
irfram von á að vera í verðlauna-
baráttu,“ sagði Þórir Hergeirsson,
landsliðsþjálfari Noregs í hand-
knattleik kvenna, þegar Morg-
unblaðið náði tali af honum eftir
verðlaunaafhendingu í lok Evr-
ópumeistaramótsins í handknatt-
leik kvenna í Búdapest. Norska
landsliðið vann spænska landsliðið
í úrslitaleik EM, 28:25.
„Satt að segja þá átti ég ekki
von á að við myndum vinna. Ég
vissi að við gætum staðið í öllum
liðum á góðum degi en að okkur
lánaðist að vinna andstæðinga okk-
ar í öllum leikjunum sem skiptu
máli fór fram úr mínum björtustu
vonum,“ sagði Þórir ennfremur en
norska landsliðið vann sjö leiki af
átta á mótinu. Eina tapið var gegn
Ungverjalandi í leik sem skipti
norska landsliðið engu máli þar
sem það hafði þá þegar tryggt sér
sæti í undanúrslitum mótsins.
Þórir hefur stýrt norska lands-
liðinu á sex stórmótum og unnið til
verðlauna á fimm þeirra, þar af
hlotið gull á þremur.
Lítt reyndar í stóru hlutverki
„Þetta mót var eitt ævintýri frá
fyrsta degi til þess síðasta með
marga leikmenn sem eru að feta
sín fyrstu skref í stórum hlut-
verkum eins og Silje Solberg,
markvörður, Stine Oftedal, Vero-
nica Kristiansen og Nora Mörk.
Þetta eru framtíðarleikmenn.
Við erum klárlega á undan áætl-
un með þetta lið,“ segir Þórir sem
hefur stýrt norska landsliðinu í
fimm ár en hafði þar áður verið að-
stoðarlandsliðsþjálfari í sjö ár.
„Leikur liðsins var jafngóður út
keppnina í gegn sem var einnig
meira en ég bjóst við með svona
nýjan hóp. Liðið þróaðist og þrosk-
aðist einnig mjög vel út allt mótið.
Trúin innan liðsins á sigur í næsta
leik jókst eftir því sem á mótið leið
og leikjunum fjölgaði. Já, það var
margt sem kom mér skemmtilega
á óvart,“ sagði Þórir sem tók sigr-
inum af yfirvegun eins og venju-
lega.
„Það ríkir mikil baráttu- og sig-
urhefð innan norska landsliðsins.
Það er og hefur verið þekkt fyrir
að gefast aldrei upp fyrr en flautað
hefur verið til leiksloka. Sú stað-
reynd kristallast í þessu liði sem
hefur tekið miklum breytingum á
síðustu árum.
Síðan er gríðarlegur efniviður í
mörgum leikmanna liðsins sem
báru ábyrgð á leik liðsins í fyrsta
sinn á stórmóti,“ segir Þórir sem
hefur stokkað upp í landsliðs-
hópnum eftir silfurverðlaunin á
EM 2012.
„Þær nýju hafa unnið af þol-
inmæði síðustu ár, lært af eldri
leikmönnum og voru tilbúnar að
axla ábyrgð þegar þeirra tími var
kominn.“
Fórum vel yfir málin
Það blés ekki byrlega fyrir
norska landsliðinu í fyrri hálfleik í
úrslitaleiknum í gær en um skeið
var það fimm mörkum undir. Þórir
segir að hópurinn hafi farið vel yfir
málin í hálfleik og tekist að berja í
brestina í seinni hálfleik. „Fyrst og
fremst tókst okkur að laga varn-
arleikinn og fá markvörsluna í
gang strax í síðari hálfleik. Eins
voru leikmenn agaðri í sókn-
arleiknum og tóku betri ákvarð-
anir í skotunum. Við erum afar
stolt af því sem við höfum unnið,“
sagði Þórir Hergeirsson, landsliðs-
þjálfari Evrópumeistara Noregs í
handknattleik kvenna.
AFP
Meistarar Þórir Hergeirsson, landsliðsþjálfari, neðst til vinstri, fagnar með leikmönnum sigri á 11. Evrópumeistaramóti kvenna í handknattleik í Búdapest.
Eitt stórt ævintýri frá fyrsta
degi fram til þess síðasta
Þórir Hergeirsson
» Fæddur 1964 og ólst upp á
Selfossi og lék þar handbolta
og stundaði þjálfun.
» Var ráðinn aðstoðarþjálfari
norska landsliðsins 2001 og
aðalþjálfari 2009.
» Norska landsliðið hefur unn-
ið til verðlauna á fimm af sex
mótum sem það hefur tekið
þátt í síðan Þórir tók við sem
þjálfari.
Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðs-
fyrirliði í handbolta, bætti í gær
skrautfjöður í hatt sinn þegar hann
varð spænskur deildarbikarmeist-
ari með Barcelona. Guðjón skoraði
fimm mörk þegar Barcelona vann
stórsigur á BM Grannollers í úr-
slitaleiknum í gær 37:26. Barca
vann Naturhouse La Rioja í undan-
úrslitum á laugardag 35:25.
Frakkinn Nikola Karabatic var
valinn maður úrslitaleiksins en
hann skoraði 7 mörk eins og Siar-
hei Rutenka. Fyrirliðinn Victor
Tomas var með 6 mörk.
Keppnin er kölluð Copa Asobal
og þar fá fjögur efstu liðin í deild-
inni þátttökurétt þegar deildin er
hálfnuð og útkljá bikarkeppnina á
tveimur dögum. Keppnin hefur ver-
ið haldin frá árinu 1991 og er þetta
fjórða árið í röð sem Barcelona
fagnar sigri. kris@mbl.is
Bikar í höfn
hjá Guðjóni
Val á Spáni
Klapp Guðjón Valur Sigurðsson
hafði ástæðu til að fagna á Spáni.
Morgunblaðið/Eva Björk
22. desember 1999
Eiður Smári Guðjohnsen er í
sviðsljósinu hjá Bolton á Eng-
landi eftir að hafa
leikið stórt hlut-
verk í sigrum liðs-
ins gegn Cardiff og
úrvalsdeildarliði
Wimbledon. „Ég
get alveg séð hann
hjá einhverju af
stóru liðunum í Evrópu í framtíð-
inni,“ segir Guðni Bergsson, fyr-
irliði Bolton, við Morgunblaðið.
22. desember 2002
Dagný Linda Kristjánsdóttir
keppir fyrst íslenskra kvenna á
heimsbikarmóti í bruni. Hún
hafnar í 44. sæti af 65 kepp-
endum á mótinu sem fram fer í
Sviss.
Á ÞESSUM DEGI