Morgunblaðið - 22.12.2014, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014
Spánn
Zaragoza – Unicaja Málaga .............. 82:76
Jón Arnór Stefánsson gerði 12 stig, átti
þrjár stoðsendingar og tók tvö fráköst.
Unnicaja er í fyrsta til öðru sæti deildar-
innar ásamt Real Madrid með 20 stig, 10
sigra og tvö töp.
Pólland
Polkowice – Sleza Wrockae ............... 92:38
Helena Sverrisdóttir gerði 7 stig fyrir
Polkowice, tók 6 fráköst og átti fjórar stoð-
sendingar. Helena og félagar eru í fimmta
sæti deildarinnar í Póllandi með 16 stig,
hafa sigrað í átta leikjum og tapað fjórum.
Wisla Krakow er í efsta sætið með 11 sigra
í jafn mörgum leikjum.
Þýskaland
Crailsheim – Mitteldeutscher ............73:71
Hörður Axel Vilhjálmsson gerði 15 stig,
tók tvö fráköst og átti fjórar stoðsendingar
í liði Mitteldeutscher.
NBA-deildin
Leikið aðfaranótt sunnudags:
Knicks - Suns ........................................ 90:99
New Orleans - Portland..................... 88:114
Dallas - San Antonio............................. 99:93
Charlotte - Utah ................................. 104:86
Houston - Atlanta ............................... 97:104
Denver - Indiana .................................. 76:73
LA Clippers - Milwaukee ................ 106:102
Leikið aðfaranótt laugardags:
Orlando - Utah.................................... 94:101
Philadelphia - Charlotte .................... 91:109
Boston - Minnesota .............................114:98
Cleveland - Brooklyn ............................95:91
Detroit - Toronto ...............................100:110
Miami - Washington..........................103:105
Memphis - Chicago..............................97:103
San Antonio - Portland .....................119:129
Denver - LA Clippers .......................109:106
LA Lakers - Oklahoma .....................103:104
KÖRFUBOLTI
HM 2015
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Nei, í alvörunni?,“ voru fyrstu við-
brögð Karenar Knútsdóttur, fyrir-
liða íslenska landsliðsins í hand-
knattleik, þegar henni voru færð
þau tíðindi að íslenska landsliðið
hefði dregist gegn landsliði Svart-
fjallalands í umspilsleikjum tveimur
í vor um keppnisrétt á heimsmeist-
aramótinu í handknattleik sem
haldið verður í Danmörk frá 5. til
20. desember á næsta ári.
Dregið var í hádeginu í gær í
Búdapest. Leikirnir við Svartfell-
inga fara fram helgina 6. og 7. júní
og 13. og 14. júní. Kosturinn fyrir
íslenska landsliðið er sá að það á
síðari leikinn á heimavelli.
„Við höfum unnið Svartfellinga
einu sinni, á heimsmeistaramótinu í
Brasilíu fyrir þremur árum,“ sagði
Karen og vitnar til upphafsleiks Ís-
lands og Svarfjallalands á HM í
Brasilíu 2011, 22:21, þegar hún
hafði aðeins jafnað sig á tíðind-
unum. „En ári síðar töpuðum við
með tíu marka mun fyrir þeim á
EM 2012 í Serbíu.
Það er ljóst að við verðum að ná
tveimur draumaleikjum til þess að
eiga möguleika,“ sagði Karen sem
átti frábæra leiki með íslenska
landsliðinu í forkeppninni gegn Ítal-
íu og Makedóníu í lok nóvember og
í byrjun desember.
Vonaðist eftir Þjóðverjum
„Það er kostur í stöðunni að síð-
ari leikurinn verður á heimavelli
okkar. En þetta verður afar erfitt
fyrir það,“ segir Karen sem hafði
vonast eftir að dragast gegn Þýska-
landi en eins hefði pólska landsliðið
getað verið bærilegur kostur. „En
að lenda á móti einu af þremur til
fjórum besti liðum Evrópu var
nokkuð sem ég hafði gert mér vonir
um að við næðum að sleppa við.“
Svartfellingar hafa um nokkuð
langt skeið átt eitt allra besta
kvennalandslið heims. Það varð
Evrópumeistari fyrir tveimur árum
og hafnaði í 4. sæti á Evrópumeist-
aramótinu sem lauk í Búdapest í
gær eftir að hafa tapað fyrir Svíum
í viðureigninni um bronsið.
Margir leikmanna landsliðs
Svartfjallalands leika saman með
einu sterkasta félagsliði Evrópu,
Buducnost. „Segja má að stór hluti
liðsins æfi saman nánast alla daga
vikunnar,“ sagði Karen.
Verðum að leika vel ytra
„Það er krafa á Svartfellingum að
þeir vinni alla leiki og það kemur
vart fyrir að þær misstígi sig í und-
ankeppni.
Okkar möguleiki felst í að ná
góðum leik ytra í fyrri leiknum. Þá
getum við gert eitthvað í heima-
leiknum.
Það má segja að allt gangi upp
hjá okkur í tveimur leikjum í röð.
Það er langt í leikina og því getur
eitt og annað gerst á þeim tíma. Við
verðum vonandi allar heilar heilsu
og klárar í slaginn. Síðan þurfum
við að ná að draga eitthvað óvænt
upp úr pokahorninu.
Við gefumst ekki upp fyrirfram
þótt ekki verði ráðist á garðinn þar
sem hann er lægstur. Við verðum
að hafa trú á okkar getu. Þá getur
ýmislegt gerst,“ segir Karen Knúts-
dóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins
í handknattleik kvenna.
Eftirfarandi þjóðir drógust sam-
an:
Frakkland - Slóvenía
Þýskaland - Rússland
Serbía - Rúmenía
Holland - Tékkland
Úkraína - Pólland
Svartfjallaland - Ísland
Austurríki - Ungverjaland
Króatía - Svíþjóð
Noregur/Spánn - Slóvakía
Morgunblaðið/Kristinn
Grimmar Karen Knútsdóttir og stöllur hennar í íslenska landsliðinu verða að mæta grimmar, einbeittar og fullar
sjálfstrausts í leikina við Svartfellinga um farseðilinn á HM til þess að eiga möguleika.
„Nei, í alvörunni?“
Fyrirliði íslenska landsliðsins segir liðið verða að ná „algjörum“ draumaleikj-
um gegn Svartfellingum í umspili fyrir HM Seinni leikur á heimavelli er kostur
Reist hefur3,4 metra
há stytta af
knattspyrnu-
manninum Cris-
tiano Ronaldo í
heimabæ hans,
Funchal á Ma-
deira. Ronaldo
var viðstaddur
vígslu styttunnar um helgina ásamt
ungum syni sínum.
Snorri Steinn Guðjónsson, lands-liðsmaður í handknattleik, tók
þátt í góðgerðarleik í Montpellier í
Frakklandi á laugardaginn. Þar
mættust úrvalslið útlenskra hand-
boltamanna sem leika í Frakklandi
og heimamanna en handbolta-
áhugamenn völdu liðin í netkosn-
ingu. Snorri Steinn var eini íslenski
handboltamaðurinn sem var valinn.
Sænski lands-liðsmark-
vörðurinn í hand-
knattleik, Johan
Sjöstrand, yf-
irgefur þýska
meistaraliðið
Kiel eftir
keppnistímabilið
næsta vor og
gengur til liðs við Melsungen.
Danski landsliðsmarkvörðurinn
Niklas Landin tekur stöðu Sjöstr-
and í marki Kiel. Landin, sem er
markvörður Rhein-Neckar Löwen,
skrifaði í haust undir samning við
Kiel í haust.
Þrír leikmenn norska landsliðs-ins og tveir úr danska lands-
liðinu voru valdir í úrvalslið Evr-
ópumeistaramótsins í handknattleik
í gær. Norðmennirnir þrír eru Silja
Solberg, markvörður, örvhenta
skyttan Nora Mörk og línumað-
urinn Heidi Löke. Maria Fisker,
frá Danmörku, þótti skara fram úr
í vinstra horninu og landa hennar,
Kristina Kristiansen, var besti leik-
stjórnandinn. Besta hægri handar
skyttan var valin Cristina Neagu
frá Rúmeníu og besti hægri horna-
maðurinn þótti vera Carmen Mart-
ín. Svíinn Sabina Jacobsen var
besti varnarmaðurinn. Besti leik-
maður mótsins var valin Isabelle
Gullden frá Svíþjóð.
Fólk sport@mbl.is
Sænski markvörðurinn Mattias And-
ersson hjá Flensburg reyndist læri-
sveinum Alfreðs Gíslasonar í meist-
araliðinu THW Kiel erfiður í viður-
eign nágrannaliðanna í þýsku 1.
deildinni í handknattleik um helgina.
Andersson lokaði markinu á köflum í
síðari hálfleik og var öðrum fremur
maðurinn á bak við sigur Evrópu-
meistaranna á þýsku meisturunum,
26:22, í Campushalle í Flensburg. Við
tapið féll Kiel af toppi deildinnar nið-
ur í annað sætið. Liðið hefur 32 stig
eftir 19 leiki eins og Rhein-Neckar
Löwen, sem ekki lék um helgina, en
Löwen-liðið hefur hagstæðari marka-
tölu.
„Andersson vann leikinn fyrir okk-
ur,“ sagði Ljubomir Vranjes, þjálfari
Flensburg, í leikslok um frammi-
stöðu landa síns í markinu en And-
ersson varði 26 skot. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem Andersson, sem er
fyrrverandi leikmaður Kiel, reynist
sínu gamla félagi erfiður. Hann fór
einnig á kostum í vor þegar liðin
mættust í úrslitaleik Meistaradeildar
Evrópu.
„Andersson varði meðal annars 10
skot frá mínum mönnum í opnum
færum,“ sagði Alfreð Gíslason, þjálf-
ari Kiel, sem var þungur á brún í
samtali við þýska fjölmiðla eftir leik-
inn. „Við höfum ekki leikið nægilega
vel í tveimur síðustu leikjum. Því er
mikilvægast fyrir okkur að snúa þró-
uninni við í næstu leikjum. Það eru
mikilvægir leikir framundan,“ sagði
Alfreð ennfremur.
Aron Pálmarsson skoraði fimm af
mörkum Kiel að þessu sinni og virðist
vera kominn á gott ról eftir að hafa
glímt við erfið meiðsli vikum saman í
haust og í vetur.
Lið Flensburg varð fyrir miklu
áfalli í leiknum þegar örvhenta skytt-
an Holger Glandorf meiddist. Óttast
er að hann verði nokkrar vikur frá
keppni.
Magdeburg heldur áfram að gera
það gott undir stjórn Geirs Sveins-
sonar en hann tók við þjálfun liðsins
fyrir þetta keppnistímabil. Magde-
burg situr í fjórða sæti þýsku 1. deild-
arinnar með 27 stig. Um helgina vann
Magdeburg öruggan sigur á Sigur-
bergi Sveinssyni og félögum í HC Er-
langen, 28:19, á útivelli. Sigurbergur
skoraði ekki mark í leiknum.
Ekki gengur eins vel hjá Degi Sig-
urðssyni og lærisveinum hans í
Füchse Berlín. Þeir töpuðu á útivelli
fyrir Bergsicher á gamla heimavelli
Dags í Wuppertal, 30:25. Arnór Þór
Gunnarsson skoraði sex af mörkum
Bergischer og Björgvin Páll Gúst-
avsson stóð hluta leiksins í marki liðs-
ins.
Rúnar Kárason skoraði eitt mark
þegar Hannover Burgdorf vann
þjálfaralaust lið HSV Hamburg,
30:26, á heimavelli. Ólafur Andrés
Guðmundsson lék ekki með Burgdorf
vegna meiðsla.
Gunnar Steinn Jónsson skoraði í
tvígang fyrir Gummersbach en það
dugði liðinu skammt sem tapaði á
heimavelli, 32:26, fyrir Melsungen.
Staðan í þýsku 1. deildinni er á
blaðsíðu tvö. iben@mbl.is
Andersson var erfiður
Kiel tapaði þriðja leiknum í þýsku 1. deildinni um helgina Magdeburg á
góðu róli hjá Geir Sveinssyni Dagur tapaði á gamla heimavellinum
Morgunblaðið/hag
Öflugur Mattias Andersson undirstrikaði enn og aftur um helgina hversu
góður markvörður hann er. Hann varði 26 skot í leiknum við Kiel.