Morgunblaðið - 22.12.2014, Síða 7

Morgunblaðið - 22.12.2014, Síða 7
ÍÞRÓTTIR 7 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014 Belgía Mouscron – Zulte-Waregem .................. 0:1  Ólafur Ingi Skúlason lék allan leikinn með Waregem. Oostende – Cercle Brugge .................... 2:0  Arnar Þór Viðarsson þjálfar Brugge. Heimsbikar félagsliða Úrslitaleikur: Real Madrid – San Lorenzo .................... 2:0 Leikur um 3. sætið: Cruz Azul – Auckland City ...................... 1:1  Auckalnd sigraði í vítaspyrnukeppni. KNATTSPYRNA LeBron James, leikmaður Cleveland Cavaliers, í NBA- deildinni í körfuknattleik komst um helgina upp fyrir Charles Barkley á listanum yfir stigahæstu leikmenn í sögu deildarinnar. James er sem stendur í 23. sæti listans en hann hefur skorað 23.776 stig í 865 leikjum sem gerir 27,5 stig að meðaltali. Kobe Bryant hjá LA Lakers fór á dögunum upp fyrir Michael Jordan á listanum og er nú í 3. sæti. Er hann efst- ur á listanum yfir þá sem nú leika í deildinni. Raunar eru sex leikmenn sem enn eru að spila fyrir of- an James á listanum. Þjóðverjinn Dirk Nowitzki hjá Dall- as Mavericks er í 9. sæti á listanum en hann gæti orðið andstæðingur Íslendinga á EM-landsliða á næsta ári. Hann hefur skorað 27.270 stig. Kevin Garnett hjá Brooklyn Nets er í 14. sæti, Paul Pierce hjá Washington Wizards er í 16. sæti, Tim Duncan hjá San Antonio Spurs er í 18. sæti og Ray Allen, fyrrverandi samherji James hjá Miami Heat, er í 21. sæti. Enginn þessara leikmanna kemst þó nálægt því að skora jafnmörg stig að meðaltali í leik og James. Hann ætti því að geta klifrað upp listann á næstu árum en James verður þrítugur í lok árs og hefur verið í deildinni frá árinu 2003. kris@mbl.is Fór upp fyrir Barkley LeBron James Íslenska U20-lið karla í íshokkí tapaði öllum fimm leikjum sínum í B-riðli 2. deildar HM sem leikinn var á Spáni og lauk á laugardaginn. Ísland féll því aftur niður í 3. deild eftir þriggja ára veru í 2. deild. Ísland byrjaði á því að tapa fyrir heimamönnum, 8:3. Liðið tapaði 6:2 fyrir Belgíu, 6:3 fyrir Króatíu, 4:2 fyrir Serbíu og loks 5:1 fyrir Ástralíu í lokaleiknum í gær. Serbar urðu í 5. og næstneðsta sætinu með 5 stig. Andri Helgason, Markús Darri Maack, Bjarki Reyr Jó- hannesson og Elvar Snær Ólafsson voru markahæstir í liði Íslands á mótinu með tvö mörk hver. Hinn 14 ára gamli Sölvi Atlason lék á sínu fyrsta heims- meistaramóti og setti þar með íslenskt met eftir því sem Morgunblaðið kemst næst. Hann prófaði allar stöður fyrir utan markmannsstöðuna. Tim Brithén landsliðsþjálfari sagði eftir mótið að Sölvi væri „næsti Emil Alen- gård“, en Emil hefur um árabil verið besti leikmaður A-landsliðsins. Tim sagði einnig að hluti leikmannahóps Íslands hefði farið til Spánar sem ferða- menn, en færu núna heim sem hokkímenn. Tim sagði íslensku strákana hafa lagt sig alla fram á mótinu og rúmlega það, en því miður hefði það einfaldlega ekki dugað til. sindris@mbl.is 14 ára í U-20 ára Andri Helgason Lionel Messi skoraði tvívegis þegar Barcelona burstaði Cór- doba 5:0 í spænska fótbolt- anum á laugardaginn og Luis Suárez skoraði sitt fyrsta mark fyrir Barcelona í deildinni. Pedro Rodriguez, Luis Suá- rez og Gerard Piqué skoruðu einnig en þrjú síðustu mörkin komu á síðustu tíu mínútum leiksins. Þar skoraði Messi bæði mörk sín á síðustu mín- útum leiksins og það síðara var sérlega glæsilegt. Barcelona komst þar með upp fyrir Real Ma- drid og í toppsæti deildarinnar með 41 stig en Real, sem er með 39 stig, á tvo leiki til góða. Alfreð Finnbogason lék í 81 mínútu með Real Sociedad í jafntefli við Levante, 1:1 á útivelli. Fimm marka veisla hjá Barca Lionel Messi Jón Arnór Stefánsson og fé- lagar hans í Unicaja töpuðu nokkuð óvænt í spænsku deildinni í gær, en þá fór liðið í heimsókn til Zaragoza, á gamla heimavöllinn hans. Byrjunin lofaði góðu hjá Jóni Arnóri og félögum því þeir voru yfir framan af leik og 31:44 í hálfleik. Heima- menn, sem leika jafnan vel á sínum heimavelli, komu tvíefldir til leiks eftir hlé og komust yfir 71:70 þegar þrjár mínútur voru eftir og unnu að lokum 82:76. Jón Arnór kann greinilega vel við sig í Zara- goza því hann gerði 12 stig í leiknum, tók tvö fráköst og átti þrjár stoðsendingar. skuli@mbl.is Jón Arnór tapaði óvænt í Zaragoza Jón Arnór Stefánsson Raheem Sterling, sóknarmað- urinn skæði í liði Liverpool, er gulldrengur ársins 2014 en hann var kosinn besti ungi leikmaðurinn í Evrópu. Það er ítalska blaðið Tutto- sport sem stendur fyrir valinu eins og mörg undanfarin ár en blaðamenn víðs vegar um Evr- ópu taka þátt í því. Sterling er aðeins annar breski leikmaðurinn sem hlýt- ur þessa viðurkenningu en sá fyrsti var Wayne Rooney sem varð fyrir valinu fyrir tíu árum. Í fyrra var Frakkinn Paul Pogba leikmaður Juven- tus valinn gulldrengur ársins og Spánverjinn Isco árið þar á undan. gummih@mbl.is Sterling bestur ungra leikmanna Raheem Sterling Real Madrid varð um helgina heims- meistari félagsliða þegar liðið lagði San Lorenzo frá Argentínu 2:0 í úr- slitaleik í Marrakesh í Marokkó. Sergio Ramos og Gareth Bale gerðu mörk meistaranna. Þetta er í sjöunda sinn á átta ár- um sem evrópskt lið sigrar í þessari keppni, en frá 2007 er Chelsea eina liðið frá Evrópu sem hefur ekki tek- ist að hampa heimsbikar félagsliða. Carlo Ancelotti, stjóri Real, mætti með sína sterkustu leikmenn í úr- slitaleikinn og má þar nefna Cris- tiano Ronaldo, Gareth Bale, James Rodriguez og Karim Benzema. Stjórinn var greinilega ákveðinn að bæta við bikarasafnið í Madríd. Eins og búist var við fyrir leikinn voru Argentínumenn mikið í vörn og það tók Real 37 mínútur að skora. Benzema fór þá fyrir skyndisókn Madrídinga sem lauk með skoti frá Bale sem varið var í horn. Toni Kro- os tók hornspyrnuna og Ramos skallaði í netið. Bale skoraði síðan annað mark Real á 51. mínútu eftir flotta sókn þar sem Kroos og Isco léku saman upp völlinn og Isco sendi á Bale sem skoraði undir Torrico markvörð. Argentínska liðið náði varla að skapa sér færi í leiknum og átti Iker Casillas afskaplega náðugan dag í marki Real, en þetta var 700. leikur hans fyrir félagið og trúlega einn af þeim rólegri hjá honum. Þess má geta að þetta var 22. sig- ur Real í röð í öllum mótum. Í leiknum um þriðja sætið hafði Auckland City frá Nýja-Sjálandi betur á móti Cruz Azul frá Mexíkó. Hvort lið gerði eitt mark og grípa varð til vítaspyrnukeppni til að ná fram úrslitum. Þar voru Nýsjálend- ingar sterkari. skuli@mbl.is AFP Bestir Leikmenn Real Madrid fagna hér heimsmeistaratitli sínum eftir sigur á San Lorenzo. Real Madrid besta liðið  Varð heimsmeistari félagsliða með 2:0 sigri á San Lorenzo  Ramos og Bale skoruðu fyrir Spánarmeistarana  Vítakeppni í leiknum um þriðja sætið Excelsior – Ajax ...................................... 0:2  Kolbeinn Sigþórsson lék ekki með Ajax vegna meiðsla. AZ Alkmaar – Utrecht............................ 0:3  Aron Jóhanns lék allan leikinn með AZ. Cambuur – Zwolle.....................................2:1 Dordrecht – Groningen ............................1:1 PSV – Go Ahead Eagles ...........................5:0 Vitesse – Heracles.....................................3:0 NAC Breda - Feyenoord ..........................0:1 Excelsior – Ajax ........................................0:2 Twente – Willem II ...................................3:2 Staðan: PSV 17 14 1 2 48:14 43 Ajax 17 12 3 2 43:17 39 Feyenoord 17 9 4 4 30:15 31 PEC Zwolle 17 9 2 6 31:21 29 Twente 17 7 7 3 31:21 28 AZ Alkmaar 17 8 4 5 26:25 28 Cambuur 17 7 5 5 27:25 26 Groningen 17 6 6 5 19:24 24 Utrecht 17 7 2 8 30:33 23 Vitesse 17 5 7 5 35:27 22 Heerenveen 17 5 7 5 21:21 22 Willem II 17 6 2 9 25:29 20 Excelsior 17 3 8 6 23:36 17 Den Haag 17 3 7 7 22:29 16 Heracles 17 5 1 11 27:36 16 G.A. Eagles 17 4 4 9 22:36 16 NAC Breda 17 3 4 10 16:37 13 Dordrecht 17 1 4 12 12:42 7 HOLLAND Schalke – HSV...........................................0:0 Bayer Leverkusen – Frankfurt ...............1:1 Augsburg – Gladbach ...............................2:1 Werder Bremen – Dortmund ..................2:1 Stuttgart – Paderborn ..............................0:0 Wolfsburg – Köln ......................................2:1 Hertha Berlín – Hoffenheim....................0:5 Freiburg – Hannover................................2:2 Staðan: Bayern M. 17 14 3 0 41:4 45 Wolfsburg 17 10 4 3 33:17 34 Leverkusen 17 7 7 3 28:20 28 Gladbach 17 7 6 4 25:16 27 Schalke 17 8 3 6 28:21 27 Augsburg 17 9 0 8 22:21 27 Hoffenheim 17 7 5 5 29:25 26 Hannover 17 7 3 7 21:26 24 E.Frankfurt 17 6 5 6 34:34 23 Paderborn 17 4 7 6 21:26 19 Köln 17 5 4 8 17:23 19 Mainz 17 3 9 5 19:23 18 Hertha Berlín 17 5 3 9 24:35 18 Hamburger SV 17 4 5 8 9:19 17 Stuttgart 17 4 5 8 20:32 17 W. Bremen 17 4 5 8 26:39 17 Dortmund 17 4 3 10 18:26 15 Freiburg 17 2 9 6 17:25 15 ÞÝSKALAND Levante – Real Sociedad ........................1:1  Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Sociedad og lék í 81 mínútu. Barcelona – Cordoba ................................5:0 Eibar – Valencia ........................................0:1 Rayo Vallecano – Espanyol......................1:3 Villarreal – Deportivo ...............................3:0 Granada – Getafe ......................................1:1 Elche – Málaga..........................................1:2 Athletic Bilbao – Atletico Madrid............1:4 Staðan: Real Madrid 15 13 0 2 55:13 39 Barcelona 16 12 2 2 41:7 38 A. Madrid 16 11 2 3 31:14 35 Valencia 16 9 4 3 29:13 31 Villarreal 16 9 3 4 27:14 30 Sevilla 15 9 3 3 25:17 30 Málaga 16 9 3 4 20:15 30 Celta Vigo 16 5 5 6 17:18 20 Eibar 16 5 5 6 19:22 20 Espanyol 16 5 5 6 20:24 20 A. Bilbao 16 5 4 7 14:20 19 Getafe 16 4 5 7 12:20 17 Rayo Vall. 16 5 2 9 17:31 17 Real Sociedad 16 3 6 7 17:22 15 Levante 16 3 6 7 12:30 15 Almería 16 3 4 9 13:24 13 La Coruna 16 3 4 9 13:27 13 Granada 16 2 7 7 10:26 13 Córdoba 16 1 8 7 11:27 11 Elche 16 2 4 10 13:32 10 SPÁNN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.