Morgunblaðið - 22.12.2014, Qupperneq 8
8 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014
FA
S
TU
S
_E
_5
5.
12
.1
4
Beittur
í jólasteikinni
Fastus ehf. • Síðumúli 16 • 108 Reykjavík
Opið mán - fös 8.30 - 17.00 • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Alhliða stálhnífur
• Hágæða damascus stál
• Hnífsblað 20cm
• Smíðað í Japan
Kr. 15.808,-
Síðumúla 11 - 108 Reykjavík Sími 568-6899 Póstfang: vfs@vfs.is Netsíða: www.vfs.is
RMT200S
Fjölnota tifvél sem sagar og pússar
Festing: Stjarna
Tifhraði: 10.000 - 20.000 Tif/mín.
Hreyfing: 3,0°
Fylgir: Taska og fylgihlutir.
RB 5133 0018 18
12.900,-
Tilboð
ERT1400RV
Fræsari
Mótor: 1400W.
Festing: 6mm., 1/4" og 8mm.
Hraðar: 14000-31500 Sn/mín.
Færsla: 55mm.
RB 5133 0005 54
18.900,-
Tilboð
RCD1802LL
Borar: Tré, járn og stein. Bit: Mínus, stjarna, Torx og toppar
Fylgir: 2 x 1.5 Ah Lithium Rafhlöður, Hleðslutæki og Taska.
RB 5133 0020 63
18 V. Hleðsluborvél
með verkfæratösku
24.900,-
Tilboð
LLCDI18022
Hleðsluhöggborvél
Patróna: 13mm.
Átak 50 Nm.
Hraðar: 0-400/1550 Sn/mín.
Fylgir: 2 x 1.5 Ah 18V. Lithium
Rafhlöður, Hleðslutæki og Taska.
RB 5133 0019 31
28.900,-
Tilboð
R4SDL13C ER 4V
Hleðsluskrúfjárn
Bitahaldari: Segull með lás.
Lýsing: LED
Hraðar: 0-180 Sn/mín.
Rafhl: 1.3 Ah Lithium
Hleðslutæki og fylgihl.
RB 5133 0019 61
5.990,-
Tilboð
Ekki datt íslenska landsliðið í
handknattleik kvenna í lukku-
pottinn í gær þegar dregið var í
umspilsleikina fyrir heimsmeist-
aramótið sem fram fara í vor.
Vissulega voru andstæðingarnir
sem komu til greina ekki árenni-
legir flestir hverjir en að und-
anskildum Evrópumeisturunum
þá var landslið Svartfjallalands
sennilega það lið sem íslensku
landsliðskonurnar vildu helst
forðast.
Allt þarf að ganga upp hjá ís-
lenska landsliðinu ef það á að
eiga möguleika á að slá landslið
Svartfjallalands úr keppni. Kost-
urinn er þó að fyrri leikurinn fer
fram á útivelli þannig að ef vel
tekst til hjá íslenska liðinu er
mögulegt að gera eitthvað úr
síðari viðureigninni sem fram fer
í Laugardalshöllinni annað hvort
13. eða 14. júní.
Mikið vatn á eftir að renna til
sjávar áður en að leikjunum kem-
ur í júní og fullkomlega óþarft að
mála skrattann á veginn, alltént
svo löngu fyrirfram.
Síðustu daga hef ég skemmt
mér við að glugga í nýútkomna
bók eftir fyrrverandi samstarfs-
mann, Sigmund Ó. Steinarsson,
þar sem hann ritar sögu íslenska
landsliðsins í knattspyrnu karla
og rúmlega það.
Sagan er sögð frá því að
danska liðið Akademisk Boldklub
kom hingað til lands 1919 og
mætti m.a. „fyrsta landsliði Ís-
lands“, eins og segir í bókinni, og
til dagsins í dag. Eftir fjóra sig-
urleiki á íslenskum liðum voru
Danirnir sendir í reiðtúr áður en
þeir mættu „landsliðinu“ sem
þeir biðu lægri hlut fyrir. Bókin
er mikil að vöxtum, afar fróðleg
og aðgengilega uppsett auk þess
að vera lipurlega skrifuð eins og
Sigmundi er einum lagið. Síðast
en ekki síst prýðir bókina mikill
fjöldi mynda.
BAKVÖRÐUR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Tvö Íslandsmet
og þrjú aldurs-
flokkamet féllu á
öðru Jólamóti ÍR
í Laugardalshöll
á laugardaginn.
Hæst bar ald-
ursflokkamet
Kristers Blæs
Jónssonar, ÍR, í
stangarstökki í
18-19 ára flokki
og 20-22 ára flokki pilta. Krister
Blær þríbætti árangur sinn og fór
hæst yfir 5,03 metra. Krister er
yngsti Íslendingurinn sem stekkur
yfir 5 metra og er nú í fimmta sæti í
greininni frá upphafi.
Framfarir Kristers hafa verið
mjög hraðar á þessu ári og til
marks um það má geta þess að á
sama móti fyrir réttu ári stökk
hann yfir 3,80. Krister á ekki langt
að sækja hæfileikana en faðir hans
er Jón Arnar Magnússon, Íslands-
methafi í tugþraut og fleiri grein-
um, og einn fremsti íþróttamaður
sinn samtíðar hér á landi.
Kristinn Þór Kristinsson, HSK,
bætti Íslandsmet karla í 600 m
hlaupi, hljóp á 80,74 sekúndum og
Aníta Hinriksdóttir ÍR bætti
kvennametið í sömu grein og hljóp
á 87,65 sekúndum. Það er jafnframt
met í flokkum 18-19 ára og 20-22
ára. Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir ÍR
bætti aldursflokkametið í 200 m
hlaupi í flokki 13 ára stúlkna þegar
hún hljóp á 26,09 sekúndum.
Krister Blær
yfir 5 metra
Krister Blær
Jónsson
Ríkjandi meistarar í San Antonio
Spurs í NBA-deildinni lentu í
óvenjulegum aðstæðum á dögunum.
Framlengja þurfti þrívegis til að
knýja fram úrslit í tveimur leikjum í
röð hjá liðinu. San Antonio tapaði
þeim báðum þó báðir færu þeir fram
á heimavelli liðsins í Texas.
Fyrri leikurinn fór fram aðfara-
nótt 18. desember og þá tapaði San
Antonio fyrir Memphis Grizzlies
117:116. Aðfaranótt 20. desember
fengu meistararnir Portland Trail
Blazers í heimsókn og töpuðu
129:119.
Síðast hafði það gerst árið 1951 að
NBA-lið lenti í þremur framleng-
ingum tvo leiki í röð. kris@mbl.is
Framlengt þrívegis
tvisvar í röð
Álag á NBA-meisturunum
AFP
Ströggl Meistararnir í San Antonio
eru í ströggli í NBA-deildinni.
Bjarki Már Elísson heldur áfram að
hrella markverðina í þýsku 2. deild-
inni í handknattleik. Hann skoraði
níu mörk á laugardagskvöld þegar
lið hans, Eisenach, vann Saarlouis,
39:30, á heimavelli. Eisenach komst
þar með upp í 7. sæti deildarinnar
með 23 stig að loknum 19 leikjum og
er tíu stigum á eftir Leipzig sem
trónir á toppnum. Þetta var fimmti
sigurleikur Eisenach í röð í deild-
inni.
Bjarki Már hefur þar með skorað
75 mörk í síðustu sjö leikjum liðsins
en þetta var fyrsti leikurinn af þess-
um sjö þar sem hann skorar ekki yf-
ir tíu mörk. Aðeins eitt af mörkum
sínum skoraði Bjarki Már af víta-
punktinum. Hannes Jón Jónsson
skoraði eitt mark fyrir Eisenach
sem var marki yfir að loknum fyrri
hálfleik, 20:19.
Fannar Þór Friðgeirsson skoraði
fjögur mörk fyrir Grosswallstadt
þegar liðið vann Dormagen á heima-
velli, 33:29. Grosswallstadt færðist
upp í 6. sæti með þessum sigri. Liðið
hefur nú 24 stig.
Rúnar Sigtryggsson og lærisvein-
ar hans í EHV Aue fögnuðu einnig.
Þeir unnu stóran sigur á Henstedt,
34:20, á útivelli. Aue situr í 10. sæti.
Hörður Fannar Sigþórsson skor-
aði tvö mörk fyrir Aue og Bjarki
Már Gunnarsson eitt. Sigtryggur
Rúnarsson lék með liðinu en náði
ekki að skora. Sveinbjörn Pétursson
stóð í marki Aue. Árni Þór Sig-
tryggsson er fjarri góðu gamni eftir
að hafa handarbrotnað. iben@mbl.is
Bjarki Már heldur sínu striki
í fimmta sigurleiknum í röð
Fannar og félagar komir í sjötta sæti Stórsigur Aue
Morgunblaðið/Ómar
Góður Bjarki Már Elísson hefur
skorað 75 mörk í 7 síðustu leikjum.
– með morgunkaffinu