Fréttablaðið - 22.06.2015, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 22.06.2015, Blaðsíða 10
22. júní 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10 NÁTTÚRA Um 17 metra langan hval rak að landi við Stakksey á Breiðafirði. Líklegt er að hvalur- inn hafi strandað og drepist inni í víkinni á laugardagsmorgun. Skessuhorn greindi frá þessu. Starfsfólk Náttúrustofu Vestur lands skoðaði hvalinn með félögum úr björgunarsveit- inni Berserkjum. Líklegt er talið að um steypireyði eða langreyði sé að ræða. Flætt var yfir bak- uggann þannig að illa gekk að úrskurða um tegundina. - kóp Líklega steypireyður á ferð: Hval rak á land í Breiðafirði „Það var mín hugsun að ég gæti gert eitthvað gott í þessari stöðu. Hjarta mitt slær með lögreglu- konum,“ segir Gná Guðjónsdótt- ir, fyrrverandi lögreglufulltrúi. Úrskurðarnefnd jafnréttismála hefur úrskurðað henni í vil. Innan- ríkisráðuneytið braut lög í ráðn- ingarferlinu í stöðu aðstoðaryfir- lögregluþjóns síðastliðið sumar. Háttsett í Líberíu og Afganistan Gná starfaði sem lögreglukona í rúm fjórtán ár, eða frá árinu 1997. Vegna starfa sinna hjá lögreglunni varði hún meðal annars tveim- ur árum í friðargæslu í Líberíu á vegum Sameinuðu þjóðanna. Hún var hluti af fimm hundruð manna sveit sem hafði meðal annars það hlutverk að þjálfa 4.500 manna lögreglulið í Líberíu. „Ég hafði reynslu sem stjórn- andi bæði innan lögreglunnar og þegar ég var í Líberíu. Þar stjórn- aði ég tíu manna teymi og sat í yfirstjórn. Ég var mjög háttsett,“ segir Gná. Hlutverk hennar í Líberíu var að vera svokallaður „coordinator“. Hún tók þátt í að samhæfa störf lögregluliðsins og hafa samskipti við fjölmarga aðila. Eftir að hún kom heim frá Líber- íu starfaði hún í eitt ár innan lög- reglunnar hérlendis áður en hún sagði upp og tók starf í Afgan- istan. „Það er eiginlega hægt að segja að ég hafi verið aðstoðar- framkvæmdastjóri flugvallarins í Kabúl. Sú staða var bundin Nató.“ Vildi sjá konu taka starfið Gná segir að það hafi ekki endi- lega komið henni á óvart að hafa ekki verið ráðin sem aðstoðaryfir- lögregluþjónn. Hún var boðuð í fyrsta viðtal en komst á endanum ekki í tíu manna úrtak. „Ég vissi að ráðherra var í sjálfsvald sett að kalla aðra í við- tal svo ég var ekki búin að hafna þessu algjörlega. Ég hafði heyrt ráðherra segja að hlutirnir myndu breytast og konum myndi fjölga.“ Það hafi því komið henni á óvart þegar í ljós kom að karlar voru ráðnir í öll þrjú embættin. „Ég var að vonast til þess að sjá að minnsta kosti eina konu. Það þurfti ekkert endilega að vera ég. Ég met það svo að tvær aðrar sem sóttu um hafi verið mjög hæfar til starfsins.“ Stjórnunarreynsla ekkert metin Þegar búið var að skipa í stöðurnar þrjár óskaði hún eftir rökstuðningi og málsgögnum. „Ég fæ þau svör frá lögreglu- stjóra [Stefáni Eiríkssyni] að ég hafi ekki fengið eins mörg stig og hinir. Þá óska ég eftir málsgögn- um. Á minnisblöðunum skín í gegn að öll stjórnunarreynsla sem ég hafði öðlast var non grata. Þrátt fyrir að ég hefði verið að vinna sem yfirmaður í lögreglu Samein- uðu þjóðanna.“ Það átti þó ekki við um þá karla sem fengu starfið. „Það var annar sem fékk stöðuna þar sem tekið var fram hverju hann hafði gegnt áður. Það var sem sagt honum til framdráttar en skipti ekki máli fyrir mig.“ Ráðningarferlið sniðið að körlum Í úrskurði Kærunefndar jafn- réttis mála segir að hæfnisnefnd lögreglunnar hafi látið stjórnunar- störf innan lögreglunnar vega þyngra en stjórnun með manna- forráð innan friðargæslu. Svo segir: „[Það felur] nánast í sér að þeir starfsmenn sem gegnt hafa yfirmannsstöðum í lögregl- unni sitja fyrir um starf en það eru nánast eingöngu karlmenn.“ Kærunefndin komst sem sagt að þeirri niðurstöðu að sú mælistika sem notuð var við stigagjöf í ráðn- ingarferlinu hafi gefið karlkyns umsækjendum forgjöf. Jafnframt var ekki að neinu leyti tekið tillit til þess að Gná hafði rekið eigin fyrirtæki í fimm ár áður en hún gerðist lögreglu- kona. Starfsreynsla hennar var því ekki metin sem skyldi. Þá skoraði Gná fullt hús stiga í tungumálakunnáttu en sá liður í ráðningarferlinu var látinn falla niður þegar niðurstöður voru tekn- ar saman. „Að minnsta kosti fimm af sjö spurningum er beint var til umsækjenda var háð annmörk- um,“ segir í úrskurðinum og svo: „Þykir kærði ekki hafa sýnt fram á að aðrar ástæður en kynferði hennar hafi legið þar til grund- vallar.“ Konur valdalitlar innan lögreglu Gná segir það alvarlegt mál hve fáar konur fá framgang innan lög- reglunnar hérlendis. Hún bendir á að lög hafi verið sett um hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja. Þau lög eigi þó ekki við um lögregluna. „Lögreglan er stofnun þar sem ekki er utanaðkomandi stjórn, en í öllum lögregluembættum er yfir- stjórn. Þegar ráðningarferlið fór fram hafði engin lögreglukona setið í yfirstjórn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. En af hverju voru sett lög til að auka hlut kvenna í stjórnum? Er það ekki af því við vitum að ef konur eru ekki á æðsta stigi innan ákveðinnar skipulagsheildar þá er ekki gætt að þeirra sjónarmiðum í skipulagsheildinni allri? Gilda ein- hver önnur lögmál um stofnanir ríkisins?“ spyr Gná. Hún segir lögreglukonur vera orðnar dofnar eftir margra ára vonbrigði með jafnréttismál innan lögreglunnar. „Við leyfum okkur ekkert að vera reiðar. Þetta er bara svona. Það að engin lögreglu- kona hafi setið í yfirstjórn lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu fram til ársins 2014 þýðir að þær hafa ekki komið að því að mynda stefnu fyrir embættið, svo sem í kyn ferðis brotamálum. Þær hafa heldur ekki mótað innri stefnur sem lúta að kynjajafnrétti, gæða- málum, siðferði og bara öllu.“ Gná hefur ekki ákveðið hver næstu skref í málinu verða. Hjartað slær fyrir lögreglukonur Innanríkisráðuneytið braut lög við ráðningu þriggja karla í stöðu aðstoðaryfirlögregluþjóna á höfuðborgarsvæðinu. Kona sem gegnt hafði yfirmannsstöðu á vegum Sameinuðu þjóðanna komst ekki í lokaúrtakið. Hún segir stöðu kvenna innan lögreglunnar á Íslandi alvarlega. GEFST EKKI UPP Gná segir að ef auglýst verði sambærileg staða aftur muni hún eflaust sækja um að nýju. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI Snærós Sindradóttir snaeros@frettabladid.is ➜ Ellefu konur sóttu um stöðurnar þrjár Fréttablaðið fjallaði ítarlega um ráðningu karlanna þriggja í júlí á síðasta ári. Þá sagði Stefán Eiríksson meðal annars: „Það var sérstök hæfnis- nefnd innan lögreglunnar sem fór yfir umsóknirnar og það var niðurstaða nefndarinnar og síðar innanríkisráðuneytisins að þeir þrír sem ráðnir voru væru hæfastir.“ Boðað var til þriggja viðtala. Þrjár konur, þar á meðal Gná Guðjónsdóttir, voru í 25 manna úrtaki. Ein kona komst áfram í tíu manna úrtak en engin kona var í fimm manna lokaúrtakinu. ➜ Lögreglukarlar vantreysta konunum Lögreglukarlar eru ekki tilbúnir að viðurkenna lögreglukonur sem jafningja í starfi. Þetta var niðurstaða rannsóknar sem Ríkislögreglustjóri lét vinna í samstarfi við kynjafræðideild Háskóla Íslands á vinnumenningu lög- reglunnar árið 2013. Rannsóknin sýndi einnig að konur innan lögreglunnar telja sig ekki hafa aðgang að efstu starfsstigum lögreglunnar. Ein kona hefur setið í yfirstjórn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Það er Aldís Hilmarsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn sem ráðin var til starfa í apríl árið 2014. KJARAMÁL Ólafur G. Skúlason, for- maður Félags hjúkrunarfræðinga undrast að stjórnvöld hafi ekk- ert brugðist við fjöldauppsögnum hjúkrunarfræðinga. „Ég tel það mjög alvarlegt ef það er ekki hafist handa við að gera ein- hverja aðgerðaáætlun til að takast á við þetta vandamál,“ segir Ólafur. Hann segist telja að stjórnvöld geri sér ekki grein fyrir hversu reitt fólk sé orðið. Það virðist vera full alvara á bak við uppsagnirnar. „Það blasir við hættuástand í heilbrigðiskerf- inu ef til þessara uppsagna kemur.“ Hann segir að lögin hafi sett samn- ingsaðilum of þröngar skorður og hvetji fólk ekki til samninga. „Það virðist ekki vera mikill samningsvilji hjá stjórnvöldum þar sem ekki hefur verið boðað til fund- ar frá 10. júní. Þegar maður skoðar þessi lög, þá fela þau í sér þær for- sendur að Gerðardómur getur illa komist að annarri niðurstöðu en þegar hefur verið í boði við samn- ingaborðið. Þá er enginn hvati til að semja.“ - þká / srs Formaður Félags hjúkrunarfræðinga segir ríkið hafa sett of þröngar skorður: Undrast skort á aðgerðaáætlun MÓTMÆLT Fjöldi hjúkrunarfræðinga hefur sagt upp undanfarna daga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MANNRÉTTINDI Ísland á enn eftir að fullgilda samning Samein- uðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Aðeins fjögur Evrópuríki eiga eftir að fullgilda samninginn, en auk Íslands eru það Finnland, Írland og Holland. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) hefur hrundið af stað undirskrifta- söfnun til að skora á stjórnvöld að fullgilda samninginn á haustþingi 2015. Hann sé leiðarvísir að því hvernig tryggja skuli fötluðu fólki mannréttindi og jöfn tækifæri. - kóp ÖBÍ skorar á stjórnvöld: Á eftir að full- gilda samning 1 5 -0 9 -2 0 1 5 0 9 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 2 5 -F 4 F 8 1 6 2 5 -F 3 B C 1 6 2 5 -F 2 8 0 1 6 2 5 -F 1 4 4 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.