Fréttablaðið - 22.06.2015, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 22. júní 2015 | SKOÐUN | 15
Þegar lög voru sett á hjúkrunar-
fræðinga um daginn voru B-ráð-
herrar settir í verkin: Sigurður
Ingi, sem alltaf er sendur í fjósið,
kannski af því að hann er dýra-
læknir, og Gunnar Bragi sem allt-
af hljómar eins og dálítið höstugur
verkstjóri sem vill ganga í augun á
yfirmönnum sínum. Á meðan fóru
A-ráðherrarnir á völlinn.
Já en Icesave!
Og málsvörnin? Hún fólst í því tala
um Icesave – að sjálfsögðu. Gunn-
ar Bragi ræddi um það hástöfum
hvílíkt kjarkmenni Sigmundur
Davíð væri, en ráðherrann var
sjálfur fjarverandi meðan á rimm-
unni stóð. Raunar má lýsa sam-
bandi hans og þingsins sem nokk-
urs konar fjarbúð, og situr hann
þó í skjóli og umboði þessa sama
þings. Sjálfur virðist fjarherrann
þó fremur líta á sig sem nokkurs
konar helgarpabba, sem kemur
af og til inn í líf þingsins og gefur
öllum ís, en þegar þarf að standa í
verkum eins og afnámi verkfalls-
réttar hjá háskólamenntuðu fólki
þá er fenginn til þess Landbún-
aðar- og Sjávarútvegsráðherra,
sennilega vegna þess að ríkis-
stjórnin telur að þegar öllu sé á
botninn hvolft hljóti öll mál, stór
og smá, fyrst og fremst að vera
landbúnaðar- og sjávarútvegs-
mál. Nema þetta tákni að þess sé
skammt að bíða að við fáum kvóta-
setningu á sjúklinga.
Og nú, samkvæmt síðustu
fréttum, hafa hundrað og fimmtíu
manns sagt upp á Landspítalan-
um. Þó ekki væri nema bara vegna
þess eftirleiks lagasetningarinnar
er hún augljóslega glórulaus.
Til réttlætingar lagasetningunni
hafa menn – fyrir utan Icesave
– veifað harðorðum viðvörunum
landlæknis sem talað hefur tæpi-
tungulaust um óþolandi ástand á
Landspítalanum. Orð hans mátti
hæglega skilja sem tilmæli til rík-
isins um að teygja sig lengra í átt
til samninga en bjóða ekki sífellt
upp á sama tilboð og enda svo á
því að festa það tilboð í lög.
Og svona héldum við upp á
hundrað ára afmæli kosningarétt-
ar íslenskra kvenna: verkfallsrétt-
ur afnuminn hjá stéttum þar sem
konur eru fjölmennar og eiga að
baki langt og strangt háskólanám
til að geta sinnt sínu starfi. Skila-
boðin alveg skýr um hvað er mikil-
vægt og hvað ekki. Mér er sagt að
þegar nýr lögfræðingur tekur til
starfa við Landspítalann sé hann
með helmingi hærra kaup en nýr
læknir. Og hvað þá hjúkrunar-
fræðingur.
„Og deilt er um hvort hótelið
sjálft muni græða“
Við fengum í síðustu viku smjör-
þefinn af framtíðinni eins og hún
verður fái Sjálfstæðisflokkurinn
áfram að ráða uppbyggingu heil-
brigðiskerfisins. Leynt og ljóst
stefnir sá flokkur að því að auka
markaðsvæðingu í heilbrigðiskerf-
inu, telur það eitt meginhlutverk
sitt að greiða götu þeirra sem líta
á sjúklinga eins og veiðistofn, þar
sem sé að finna ónýtt verðmæti.
Í Kastljósinu var umfjöllun um
fyrirtækið Sinnum (nafnið vísar
í senn til umönnunar og marg-
földunar) sem hefur rekið sjúkra-
hótel þar sem Hótel Ísland var
áður til húsa en virðist vera hálf-
gerður píslastaður fyrir sjúklinga
sem eru að jafna sig eftir aðgerð-
ir – hótel Písland – ef marka má
fjölmargar frásagnir fólks sem
þar hefur þurft að dúsa. Áður var
rekið á Rauðarárstíg sjúkrahótel
af Rauða krossinum, og almenn
ánægja með þá starfsemi, enda
var þar þjónusta við sjúklinga sem
Sinnum-konum finnst ekki taka
því að sinna. Frægt er orðið Kast-
ljósviðtal við Steingrím Ara Ara-
son sem er í forsvari fyrir sjúkra-
tryggingar, greiðanda meintrar
þjónustu. Þar kom hann fram eins
og fjölmiðlafulltrúi fyrirtækisins
Sinnum og talaði um sjúklingana
eins og hverja aðra hótelgesti og
hefur staðið í látlausum deilum við
Landspítalann til að verja eigend-
ur Sinnum fyrir kröfum um sóma-
samlegan aðbúnað og þjónustu.
Hann talaði eins og hvorki Land-
spítalanum né Heilbrigðiseftirlit-
inu kæmi það við hvernig háttað
væri þjónustu við þá sjúklinga
sem á hótelið fara af Landspítal-
anum, en eins og kunnugt er þá
er það liður í niðurskurðarstefnu
gagnvart Landspítalanum sem ríkt
hefur frá góðæri og ráðherratíð
Guðlaugs Þórs, að henda sjúkling-
um sem allra fyrst út eftir aðgerð-
ir og láta þá jafna sig einhvers
staðar annars staðar.
Við höfum reynslu af starfsemi
Grundar og Hrafnistu þar sem
sjálfseignarfélög sinna þjónustu
við aldrað fólk af metnaði en eins
og sjúkrahótelrekstri Sinnum
var lýst í Kastljósi – og hefur
ekki verið borið til baka – virð-
ast gróðasjónarmið ráða för. En
það má aldrei líta á sjúklinga sem
gróðalind. Veikindi mega ekki
vera varningur. Sjálfsagt er að
fara vel með fé og nýta peninga
eins og kostur er en það á að vera
í þágu þeirra sjúku og í almanna-
hag en ekki til að skapa ríku fólki
meiri arð.
Hótelrekstur Sinnum virðist
miðast við að græða á erlendum
ferðamönnum: fyrst er mánuðum
saman verið að gera klárt fyrir
túristana með tilheyrandi hávaða;
svo þegar túristatíminn rennur
upp virðist sjúklingunum hrein-
lega hent út til að rýma fyrir túr-
istum.
Það er ein helsta lygi okkar
tíma að gróðasjónarmið eigi alltaf
við alls staðar í mannlegu félagi.
Og fæst okkar vilja halda áfram
á þeirri braut að markaðsvæða
umönnunarstörf. Það er ónotaleg
tilhugsun að eiga í vændum að láta
sinna sér af fyrirtæki sem lítur á
það sem hlutverk sitt að skapa arð
fyrir hluthafa sína úr veikindum
okkar og kröm. En eigi ekki að
halda áfram á þessari braut þurf-
um við að hætta að leiða til valda
stjórnmálaöfl sem vilja greiða
götu þess háttar fyrirtækja, hvort
sem sú fyrirgreiðsla felst í niður-
broti opinberrar þjónustu eða fjár-
austri til vildarvina.
Hótel Písland
Hagkvæm
bílafjármögnun
fyrir viðskiptavini
Með reiknivélinni á arionbanki.is getur
þú skoðað greiðslubyrði og hvaða
fjármögnunarkostir henta þér.
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
1
5
-0
9
-2
0
1
5
0
9
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
4
-5
6
3
8
1
6
2
4
-5
4
F
C
1
6
2
4
-5
3
C
0
1
6
2
4
-5
2
8
4
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K