Fréttablaðið - 22.06.2015, Síða 15

Fréttablaðið - 22.06.2015, Síða 15
MÁNUDAGUR 22. júní 2015 | SKOÐUN | 15 Þegar lög voru sett á hjúkrunar- fræðinga um daginn voru B-ráð- herrar settir í verkin: Sigurður Ingi, sem alltaf er sendur í fjósið, kannski af því að hann er dýra- læknir, og Gunnar Bragi sem allt- af hljómar eins og dálítið höstugur verkstjóri sem vill ganga í augun á yfirmönnum sínum. Á meðan fóru A-ráðherrarnir á völlinn. Já en Icesave! Og málsvörnin? Hún fólst í því tala um Icesave – að sjálfsögðu. Gunn- ar Bragi ræddi um það hástöfum hvílíkt kjarkmenni Sigmundur Davíð væri, en ráðherrann var sjálfur fjarverandi meðan á rimm- unni stóð. Raunar má lýsa sam- bandi hans og þingsins sem nokk- urs konar fjarbúð, og situr hann þó í skjóli og umboði þessa sama þings. Sjálfur virðist fjarherrann þó fremur líta á sig sem nokkurs konar helgarpabba, sem kemur af og til inn í líf þingsins og gefur öllum ís, en þegar þarf að standa í verkum eins og afnámi verkfalls- réttar hjá háskólamenntuðu fólki þá er fenginn til þess Landbún- aðar- og Sjávarútvegsráðherra, sennilega vegna þess að ríkis- stjórnin telur að þegar öllu sé á botninn hvolft hljóti öll mál, stór og smá, fyrst og fremst að vera landbúnaðar- og sjávarútvegs- mál. Nema þetta tákni að þess sé skammt að bíða að við fáum kvóta- setningu á sjúklinga. Og nú, samkvæmt síðustu fréttum, hafa hundrað og fimmtíu manns sagt upp á Landspítalan- um. Þó ekki væri nema bara vegna þess eftirleiks lagasetningarinnar er hún augljóslega glórulaus. Til réttlætingar lagasetningunni hafa menn – fyrir utan Icesave – veifað harðorðum viðvörunum landlæknis sem talað hefur tæpi- tungulaust um óþolandi ástand á Landspítalanum. Orð hans mátti hæglega skilja sem tilmæli til rík- isins um að teygja sig lengra í átt til samninga en bjóða ekki sífellt upp á sama tilboð og enda svo á því að festa það tilboð í lög. Og svona héldum við upp á hundrað ára afmæli kosningarétt- ar íslenskra kvenna: verkfallsrétt- ur afnuminn hjá stéttum þar sem konur eru fjölmennar og eiga að baki langt og strangt háskólanám til að geta sinnt sínu starfi. Skila- boðin alveg skýr um hvað er mikil- vægt og hvað ekki. Mér er sagt að þegar nýr lögfræðingur tekur til starfa við Landspítalann sé hann með helmingi hærra kaup en nýr læknir. Og hvað þá hjúkrunar- fræðingur. „Og deilt er um hvort hótelið sjálft muni græða“ Við fengum í síðustu viku smjör- þefinn af framtíðinni eins og hún verður fái Sjálfstæðisflokkurinn áfram að ráða uppbyggingu heil- brigðiskerfisins. Leynt og ljóst stefnir sá flokkur að því að auka markaðsvæðingu í heilbrigðiskerf- inu, telur það eitt meginhlutverk sitt að greiða götu þeirra sem líta á sjúklinga eins og veiðistofn, þar sem sé að finna ónýtt verðmæti. Í Kastljósinu var umfjöllun um fyrirtækið Sinnum (nafnið vísar í senn til umönnunar og marg- földunar) sem hefur rekið sjúkra- hótel þar sem Hótel Ísland var áður til húsa en virðist vera hálf- gerður píslastaður fyrir sjúklinga sem eru að jafna sig eftir aðgerð- ir – hótel Písland – ef marka má fjölmargar frásagnir fólks sem þar hefur þurft að dúsa. Áður var rekið á Rauðarárstíg sjúkrahótel af Rauða krossinum, og almenn ánægja með þá starfsemi, enda var þar þjónusta við sjúklinga sem Sinnum-konum finnst ekki taka því að sinna. Frægt er orðið Kast- ljósviðtal við Steingrím Ara Ara- son sem er í forsvari fyrir sjúkra- tryggingar, greiðanda meintrar þjónustu. Þar kom hann fram eins og fjölmiðlafulltrúi fyrirtækisins Sinnum og talaði um sjúklingana eins og hverja aðra hótelgesti og hefur staðið í látlausum deilum við Landspítalann til að verja eigend- ur Sinnum fyrir kröfum um sóma- samlegan aðbúnað og þjónustu. Hann talaði eins og hvorki Land- spítalanum né Heilbrigðiseftirlit- inu kæmi það við hvernig háttað væri þjónustu við þá sjúklinga sem á hótelið fara af Landspítal- anum, en eins og kunnugt er þá er það liður í niðurskurðarstefnu gagnvart Landspítalanum sem ríkt hefur frá góðæri og ráðherratíð Guðlaugs Þórs, að henda sjúkling- um sem allra fyrst út eftir aðgerð- ir og láta þá jafna sig einhvers staðar annars staðar. Við höfum reynslu af starfsemi Grundar og Hrafnistu þar sem sjálfseignarfélög sinna þjónustu við aldrað fólk af metnaði en eins og sjúkrahótelrekstri Sinnum var lýst í Kastljósi – og hefur ekki verið borið til baka – virð- ast gróðasjónarmið ráða för. En það má aldrei líta á sjúklinga sem gróðalind. Veikindi mega ekki vera varningur. Sjálfsagt er að fara vel með fé og nýta peninga eins og kostur er en það á að vera í þágu þeirra sjúku og í almanna- hag en ekki til að skapa ríku fólki meiri arð. Hótelrekstur Sinnum virðist miðast við að græða á erlendum ferðamönnum: fyrst er mánuðum saman verið að gera klárt fyrir túristana með tilheyrandi hávaða; svo þegar túristatíminn rennur upp virðist sjúklingunum hrein- lega hent út til að rýma fyrir túr- istum. Það er ein helsta lygi okkar tíma að gróðasjónarmið eigi alltaf við alls staðar í mannlegu félagi. Og fæst okkar vilja halda áfram á þeirri braut að markaðsvæða umönnunarstörf. Það er ónotaleg tilhugsun að eiga í vændum að láta sinna sér af fyrirtæki sem lítur á það sem hlutverk sitt að skapa arð fyrir hluthafa sína úr veikindum okkar og kröm. En eigi ekki að halda áfram á þessari braut þurf- um við að hætta að leiða til valda stjórnmálaöfl sem vilja greiða götu þess háttar fyrirtækja, hvort sem sú fyrirgreiðsla felst í niður- broti opinberrar þjónustu eða fjár- austri til vildarvina. Hótel Písland Hagkvæm bílafjármögnun fyrir viðskiptavini Með reiknivélinni á arionbanki.is getur þú skoðað greiðslubyrði og hvaða fjármögnunarkostir henta þér. Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur 1 5 -0 9 -2 0 1 5 0 9 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 2 4 -5 6 3 8 1 6 2 4 -5 4 F C 1 6 2 4 -5 3 C 0 1 6 2 4 -5 2 8 4 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.