Fréttablaðið - 22.06.2015, Síða 43
KYNNING − AUGLÝSING Þvottur22. JÚNÍ 2015 MÁNUDAGUR 5
Kortleggja notkunarmöguleika
Fyrsta skrefið í þvottahúsyfir-
halningunni er að ákveða hvaða
athafnir eiga að fara þar fram og
þá hvort allar nauðsynlegar græj-
ur og tæki séu til staðar til þeirra
athafna.
● Er pláss fyrir bæði þvottavél og
þurrkara?
● Er geymslupláss undir þvotta-
efni ýmiss konar?
● Er pláss til að leggja í bleyti?
● Er pláss til að þurrka á snúrum?
● Er pláss til að brjóta saman
þvottinn í þvottahúsinu?
● Er hægt að strauja?
Hreinsa til
Nú þegar komið er á hreint hvað
á að gera í þvottahúsinu þarf að
taka til.
● Fjarlægið alla hluti sem ekki
eiga erindi í þvottahúsið eins
og tóma brúsa og pakka undan
þvottaefni.
● Gangið frá hreinum fötum
strax, annars gætu þau bland-
ast aftur við óhreinan þvott.
● Fjarlægið líka staka sokka úr
þvottahúsinu ef sá á móti hefur
ekki sést í þrjá mánuði.
Skipuleggja vinnusvæðið
Þegar búið er að taka til er hægt
að raða inn í og skipuleggja
þvottahúsið.
● Hafið öll þvottaefni innan seil-
ingar frá þvottavélinni, flokkuð
í þá röð sem þau eru notuð.
● Geymið jafnvel lítið saumasett
á hillu ef festa þarf tölur eða
laga saumsprettur.
● Komið upp hillum og/eða
skápum og notið körfur eða
poka undir klemmur.
● Ef lítið pláss er fyrir hillur
mætti útbúa hengi á hurð-
ina, nota körfur á hjólum eða
hirslur sem hægt er að hengja
utan á þvottavélina.
● Tengið vask ef mögulegt er til
að geta lagt í bleyti og þvegið í
höndunum.
● Til að þurrka þvott hentar ekki
alltaf að hengja snúrur milli
veggja. Skoðið frístandandi
þurrkgrindur og hengi sem
festa má á hurð eða vegg.
● Ef pláss er fyrir hendi fylgja því
mikil þægindi að geta brotið
þvottinn saman í þvottahús-
inu. Komið upp einhvers konar
borðplássi, jafnvel litlu borði
sem fella má niður af vegg.
● Hengið strauborðið á hanka á
vegg og straujárnið í hillu fyrir
ofan. Þá má auðveldlega drífa
það fram þegar þarf að strauja.
www.home-storage-
solutions-101.com
Yfirhalning á þvottahúsinu
Góð vinnuaðstaða og þaulhugsað skipulag mun auðvelda þvottadagana til muna. Allsherjar yfirhalning á þvottahúsinu þarf ekki að
taka marga daga og jafnvel mætti nota fyrstu daga sumarfrísins í verkið. Það mun jafnvel skila ánægjulegra fríi.
Notið körfur eða poka undir klemmur.Fallegar körfur undir tauið gera þvotta-
dagana skemmtilegri.
Hillur, hirslur og hengi ætti að velja í samræmi við þær athafnir sem fara fram í rýminu.
Kortleggja þarf notkunarmöguleika
þvottahússins.
Bio-tex þvottaefni og blettaeyðir
Fötin haldast lengur eins og ný! Bio-tex þvottaefnin eru
sérhönnuð fyrir litaðan, hvítan og svartan þvott.
Leikum okkur!
ÍSLE
N
SK
A
/SIA
.IS
N
AT 73835 05/15
1
5
-0
9
-2
0
1
5
0
9
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
5
-E
1
3
8
1
6
2
5
-D
F
F
C
1
6
2
5
-D
E
C
0
1
6
2
5
-D
D
8
4
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K