Fréttablaðið - 22.06.2015, Qupperneq 10
22. júní 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
NÁTTÚRA Um 17 metra langan
hval rak að landi við Stakksey á
Breiðafirði. Líklegt er að hvalur-
inn hafi strandað og drepist inni
í víkinni á laugardagsmorgun.
Skessuhorn greindi frá þessu.
Starfsfólk Náttúrustofu
Vestur lands skoðaði hvalinn
með félögum úr björgunarsveit-
inni Berserkjum. Líklegt er talið
að um steypireyði eða langreyði
sé að ræða. Flætt var yfir bak-
uggann þannig að illa gekk að
úrskurða um tegundina. - kóp
Líklega steypireyður á ferð:
Hval rak á land
í Breiðafirði
„Það var mín hugsun að ég gæti
gert eitthvað gott í þessari stöðu.
Hjarta mitt slær með lögreglu-
konum,“ segir Gná Guðjónsdótt-
ir, fyrrverandi lögreglufulltrúi.
Úrskurðarnefnd jafnréttismála
hefur úrskurðað henni í vil. Innan-
ríkisráðuneytið braut lög í ráðn-
ingarferlinu í stöðu aðstoðaryfir-
lögregluþjóns síðastliðið sumar.
Háttsett í Líberíu og Afganistan
Gná starfaði sem lögreglukona í
rúm fjórtán ár, eða frá árinu 1997.
Vegna starfa sinna hjá lögreglunni
varði hún meðal annars tveim-
ur árum í friðargæslu í Líberíu á
vegum Sameinuðu þjóðanna. Hún
var hluti af fimm hundruð manna
sveit sem hafði meðal annars það
hlutverk að þjálfa 4.500 manna
lögreglulið í Líberíu.
„Ég hafði reynslu sem stjórn-
andi bæði innan lögreglunnar og
þegar ég var í Líberíu. Þar stjórn-
aði ég tíu manna teymi og sat í
yfirstjórn. Ég var mjög háttsett,“
segir Gná.
Hlutverk hennar í Líberíu var
að vera svokallaður „coordinator“.
Hún tók þátt í að samhæfa störf
lögregluliðsins og hafa samskipti
við fjölmarga aðila.
Eftir að hún kom heim frá Líber-
íu starfaði hún í eitt ár innan lög-
reglunnar hérlendis áður en hún
sagði upp og tók starf í Afgan-
istan. „Það er eiginlega hægt að
segja að ég hafi verið aðstoðar-
framkvæmdastjóri flugvallarins í
Kabúl. Sú staða var bundin Nató.“
Vildi sjá konu taka starfið
Gná segir að það hafi ekki endi-
lega komið henni á óvart að hafa
ekki verið ráðin sem aðstoðaryfir-
lögregluþjónn. Hún var boðuð í
fyrsta viðtal en komst á endanum
ekki í tíu manna úrtak.
„Ég vissi að ráðherra var í
sjálfsvald sett að kalla aðra í við-
tal svo ég var ekki búin að hafna
þessu algjörlega. Ég hafði heyrt
ráðherra segja að hlutirnir myndu
breytast og konum myndi fjölga.“
Það hafi því komið henni á
óvart þegar í ljós kom að karlar
voru ráðnir í öll þrjú embættin.
„Ég var að vonast til þess að sjá
að minnsta kosti eina konu. Það
þurfti ekkert endilega að vera ég.
Ég met það svo að tvær aðrar sem
sóttu um hafi verið mjög hæfar til
starfsins.“
Stjórnunarreynsla ekkert metin
Þegar búið var að skipa í stöðurnar
þrjár óskaði hún eftir rökstuðningi
og málsgögnum.
„Ég fæ þau svör frá lögreglu-
stjóra [Stefáni Eiríkssyni] að ég
hafi ekki fengið eins mörg stig og
hinir. Þá óska ég eftir málsgögn-
um. Á minnisblöðunum skín í gegn
að öll stjórnunarreynsla sem ég
hafði öðlast var non grata. Þrátt
fyrir að ég hefði verið að vinna
sem yfirmaður í lögreglu Samein-
uðu þjóðanna.“
Það átti þó ekki við um þá karla
sem fengu starfið. „Það var annar
sem fékk stöðuna þar sem tekið
var fram hverju hann hafði gegnt
áður. Það var sem sagt honum til
framdráttar en skipti ekki máli
fyrir mig.“
Ráðningarferlið sniðið að körlum
Í úrskurði Kærunefndar jafn-
réttis mála segir að hæfnisnefnd
lögreglunnar hafi látið stjórnunar-
störf innan lögreglunnar vega
þyngra en stjórnun með manna-
forráð innan friðargæslu.
Svo segir: „[Það felur] nánast í
sér að þeir starfsmenn sem gegnt
hafa yfirmannsstöðum í lögregl-
unni sitja fyrir um starf en það
eru nánast eingöngu karlmenn.“
Kærunefndin komst sem sagt að
þeirri niðurstöðu að sú mælistika
sem notuð var við stigagjöf í ráðn-
ingarferlinu hafi gefið karlkyns
umsækjendum forgjöf.
Jafnframt var ekki að neinu
leyti tekið tillit til þess að Gná
hafði rekið eigin fyrirtæki í fimm
ár áður en hún gerðist lögreglu-
kona. Starfsreynsla hennar var
því ekki metin sem skyldi.
Þá skoraði Gná fullt hús stiga í
tungumálakunnáttu en sá liður í
ráðningarferlinu var látinn falla
niður þegar niðurstöður voru tekn-
ar saman.
„Að minnsta kosti fimm af
sjö spurningum er beint var til
umsækjenda var háð annmörk-
um,“ segir í úrskurðinum og svo:
„Þykir kærði ekki hafa sýnt fram
á að aðrar ástæður en kynferði
hennar hafi legið þar til grund-
vallar.“
Konur valdalitlar innan lögreglu
Gná segir það alvarlegt mál hve
fáar konur fá framgang innan lög-
reglunnar hérlendis. Hún bendir á
að lög hafi verið sett um hlutfall
kvenna í stjórnum fyrirtækja. Þau
lög eigi þó ekki við um lögregluna.
„Lögreglan er stofnun þar sem
ekki er utanaðkomandi stjórn, en í
öllum lögregluembættum er yfir-
stjórn. Þegar ráðningarferlið fór
fram hafði engin lögreglukona
setið í yfirstjórn lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu.
En af hverju voru sett lög til
að auka hlut kvenna í stjórnum?
Er það ekki af því við vitum að ef
konur eru ekki á æðsta stigi innan
ákveðinnar skipulagsheildar þá er
ekki gætt að þeirra sjónarmiðum í
skipulagsheildinni allri? Gilda ein-
hver önnur lögmál um stofnanir
ríkisins?“ spyr Gná.
Hún segir lögreglukonur vera
orðnar dofnar eftir margra ára
vonbrigði með jafnréttismál innan
lögreglunnar. „Við leyfum okkur
ekkert að vera reiðar. Þetta er
bara svona. Það að engin lögreglu-
kona hafi setið í yfirstjórn lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
fram til ársins 2014 þýðir að þær
hafa ekki komið að því að mynda
stefnu fyrir embættið, svo sem í
kyn ferðis brotamálum. Þær hafa
heldur ekki mótað innri stefnur
sem lúta að kynjajafnrétti, gæða-
málum, siðferði og bara öllu.“
Gná hefur ekki ákveðið hver
næstu skref í málinu verða.
Hjartað slær fyrir lögreglukonur
Innanríkisráðuneytið braut lög við ráðningu þriggja karla í stöðu aðstoðaryfirlögregluþjóna á höfuðborgarsvæðinu. Kona sem gegnt hafði
yfirmannsstöðu á vegum Sameinuðu þjóðanna komst ekki í lokaúrtakið. Hún segir stöðu kvenna innan lögreglunnar á Íslandi alvarlega.
GEFST EKKI UPP Gná segir að ef auglýst verði sambærileg staða aftur muni hún eflaust sækja um að nýju. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI
Snærós
Sindradóttir
snaeros@frettabladid.is
➜ Ellefu konur sóttu um stöðurnar þrjár
Fréttablaðið fjallaði ítarlega um ráðningu karlanna þriggja í júlí á síðasta
ári. Þá sagði Stefán Eiríksson meðal annars: „Það var sérstök hæfnis-
nefnd innan lögreglunnar sem fór yfir umsóknirnar og það var niðurstaða
nefndarinnar og síðar innanríkisráðuneytisins að þeir þrír sem ráðnir voru
væru hæfastir.“
Boðað var til þriggja viðtala. Þrjár konur, þar á meðal Gná Guðjónsdóttir,
voru í 25 manna úrtaki. Ein kona komst áfram í tíu manna úrtak en engin
kona var í fimm manna lokaúrtakinu.
➜ Lögreglukarlar vantreysta konunum
Lögreglukarlar eru ekki tilbúnir að viðurkenna lögreglukonur sem jafningja
í starfi. Þetta var niðurstaða rannsóknar sem Ríkislögreglustjóri lét vinna
í samstarfi við kynjafræðideild Háskóla Íslands á vinnumenningu lög-
reglunnar árið 2013.
Rannsóknin sýndi einnig að konur innan lögreglunnar telja sig ekki hafa
aðgang að efstu starfsstigum lögreglunnar.
Ein kona hefur setið í yfirstjórn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Það er Aldís Hilmarsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn sem ráðin var til
starfa í apríl árið 2014.
KJARAMÁL Ólafur G. Skúlason, for-
maður Félags hjúkrunarfræðinga
undrast að stjórnvöld hafi ekk-
ert brugðist við fjöldauppsögnum
hjúkrunarfræðinga.
„Ég tel það mjög alvarlegt ef það
er ekki hafist handa við að gera ein-
hverja aðgerðaáætlun til að takast
á við þetta vandamál,“ segir Ólafur.
Hann segist telja að stjórnvöld geri
sér ekki grein fyrir hversu reitt fólk
sé orðið. Það virðist vera full alvara
á bak við uppsagnirnar. „Það blasir
við hættuástand í heilbrigðiskerf-
inu ef til þessara uppsagna kemur.“
Hann segir að lögin hafi sett samn-
ingsaðilum of þröngar skorður og
hvetji fólk ekki til samninga.
„Það virðist ekki vera mikill
samningsvilji hjá stjórnvöldum þar
sem ekki hefur verið boðað til fund-
ar frá 10. júní. Þegar maður skoðar
þessi lög, þá fela þau í sér þær for-
sendur að Gerðardómur getur illa
komist að annarri niðurstöðu en
þegar hefur verið í boði við samn-
ingaborðið. Þá er enginn hvati til að
semja.“ - þká / srs
Formaður Félags hjúkrunarfræðinga segir ríkið hafa sett of þröngar skorður:
Undrast skort á aðgerðaáætlun
MÓTMÆLT Fjöldi hjúkrunarfræðinga
hefur sagt upp undanfarna daga.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MANNRÉTTINDI Ísland á enn eftir
að fullgilda samning Samein-
uðu þjóðanna um réttindi fatlaðs
fólks. Aðeins fjögur Evrópuríki
eiga eftir að fullgilda samninginn,
en auk Íslands eru það Finnland,
Írland og Holland.
Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ)
hefur hrundið af stað undirskrifta-
söfnun til að skora á stjórnvöld að
fullgilda samninginn á haustþingi
2015. Hann sé leiðarvísir að því
hvernig tryggja skuli fötluðu fólki
mannréttindi og jöfn tækifæri. - kóp
ÖBÍ skorar á stjórnvöld:
Á eftir að full-
gilda samning
1
5
-0
9
-2
0
1
5
0
9
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
5
-F
4
F
8
1
6
2
5
-F
3
B
C
1
6
2
5
-F
2
8
0
1
6
2
5
-F
1
4
4
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K