Fréttablaðið - 22.06.2015, Qupperneq 62
22. júní 2015 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Faxafeni 5, Reykjavík, Sími 588 8477
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 11-16
Dalsbraut 1, Akureyri, Sími: 558 1100 • Skeiði 1, Ísafirði, Sími 456 4566
ÞÍN STUND
ÞINN STAÐUR
TIMEOUT
Hægindastóll með skemli
Fáanlegur í mörgum útfærslum og litum.
Svart leður og hnota með skemli.
Fullt verð: 379.980 kr.
Tilboðsverð 299.990 kr.
AFSLÁTTUR
20%
Stillanlegur höfuðpúði.
Þægilegt
handfang
til að stilla
halla á
baki.
Skemill hentar
öllum óháð lengd.
Þeir sem hafa séð myndina
Hrúta, sem leikstýrt er af Grími
Hákonarsyni, muna eflaust eftir
eðlun hrúts og kindar í einu atriði
myndarinnar.
Magnús Skarphéðinsson, bóndi
í Bárðardal, sá um sauðféð við
upptökur og sagði það hafa stað-
ið sig afar vel. „Þetta var ekkert
mál fyrir þau. Getnaðurinn náð-
ist í einni töku og þau stóðu sig
með prýði.“
Kindin bar lömbum í mars sem
voru getin við upptöku á mynd-
inni. „Það heilsast öllum vel hér
á bæ og lömbin eru við hesta-
heilsu,“ segir Magnús. Kvik-
myndin er enn í sýningu í bíóhús-
um landsins ef fólk vill fá að sjá
með eigin augum þessa fallegu
stund. Myndin vakti mikla lukku
á Cannes-hátíðinni í maí síðast-
liðnum. Hún hlaut meðal ann-
ars lof allra helstu gagnrýnenda
og var fyrsta íslenska myndin í
fullri lengd til þess að vinna Un
Certain Regard-verðlaunin. - gj
Frægasti sauðfj árgetnaðurinn á Íslandi
Við upptökur á kvikmyndinni Hrútum urðu til falleg lömb sem fæddust í mars og eru við góða heilsu.
FRÆGUR GETNAÐUR Magnús bóndi
alsæll með fallegu afkvæmin. MYND/DILJÁ
Félagarnir Birnir Jón Sigurðsson
og Arnar Geir Gústafsson standa
fyrir netlausri viku sem tileinkuð
er meðvitund um netnotkun.
„Þetta er í rauninni tilraun og
athugun þar sem við prufum að
neita okkur um það að vera á net-
inu í heila viku með misafgerandi
hætti. Sjá hvernig við notum það
og hvort við stólum rosalega mikið
á það og hvernig það er að vera án
þessa tækis sem getur gefið manni
afþreyingu hvenær og hvar sem
er,“ segir Birnir Jón en tilraun-
in hefst í dag og stendur fram á
sunnudag.
„Þetta er viðburður á Facebook
sem er skemmtilega kaldhæðnis-
legt,“ bætir hann við glaður í bragði
en rúmlega 220 manns hafa látið
sér líka við vikuna á Face book.
Netlausu vikunni skipta þeir upp
í þrjú erfiðleikastig. Það fyrsta
lokar á samfélagsmiðla, annað á
alla netnotkun nema þá sem tengd
er vinnu og þriðja stig er algjör net-
lokun. Svo er þátttakendum einnig
frjálst að smíða sínar eigin reglur.
Ástæður átaksins eru handritaskrif
hjá þeim félögum og ákváðu þeir að
prufa að bjóða fleirum að taka þátt
og segir Birnir að þrátt fyrir að
hann stóli talsvert á inter netið þá
kvíði hann ekki mikið fyrir því að
vera netlaus í viku.
„Það er aðallega ef maður miss-
ir af einhverju út af þessu, annars
kvíði ég mjög lítið fyrir þessu,“
segir hann hress að lokum. - gló
Verða netlausir í viku og bjóða
öllum sem vilja að taka þátt
Birnir Jón Sigurðsson og Arnar Geir Gústafsson auka meðvitund um netnotkun.
SLÖKKVA Á NETINU Arnar Geir og
Birnir Jón standa fyrir netlausri viku.
MYND/SONJANIKULÁSDÓTTIR
„Hann spurði hvort við hefðum
tíma og áhuga á því að vera með í
Carnegie Hall og við vorum bara,
já! Æði!,“ segir Karen Sturlaugs-
son, stjórnandi Bjöllukórs Tónlist-
arskóla Reykjanesbæjar, skelli-
hlæjandi.
Kórinn heldur
á fimmtudaginn
til Bandaríkj-
anna þar sem
hann tekur þátt
í stóru bjöllu-
kóramóti, Hand-
bell Musicians
of America, en
þátttakendur á
mótinu eru um
700 talsins. Það sem meira er þá
hefur bjöllukórnum verið boðið
að taka þátt í tónleikum sem fara
fram í Carnegie Hall en tónleikarn-
ir eru á vegum Yale University og
flutt verður frumsamið verk eftir
Julian Revie. „Við vorum til dæmis
að æfa með honum í gegnum Skype
um daginn, þetta er í annað skipti
sem hann „mætir“ á æfingu
hjá okkur. Búið að vera alveg
ævintýri líkast,“ segir hún
alsæl.
„Þetta er bara alveg
ótrúlegt ævintýri sem
við höfum lent í. Ég
fór að skoða mögu-
leikana á því
fyrir okkur að
fara í tónleika-
ferð eða eitt-
hvað og þá sá ég þetta
stóra bjöllu mót sem er í Massa-
chusetts í næstu viku og við erum
að fara þangað. Yale-háskóli heyrir
að ég er að koma með heilan bjöllu-
kór á þetta mót og það er haft sam-
band við mig af því að tónskáldið
vantar bjöllukór til þess að spila í
frumsömdu verki í Carnegie Hall,“
segir Karen alsæl en auk stjórn-
anda eru ellefu bjölluleikarar í
kórnum.
Karen stofnaði
kórinn fyrir þrem-
ur árum en sjálf
hefur hún leikið á og
haft áhuga á bjöllum um
langt skeið og stofnaði
í fyrsta sinn bjöllukór á
Íslandi fyrir rúmum fjöru-
tíu árum. „Ég kom til Íslands
árið 1976 til þess að fara í
háskóla og þá var ég búin að
vera í svona bjöllustarfi úti í
Ameríku. Pabbi minn átti bjöllusett
og ég spurði hann hvort ég mætti
fara með það til Íslands og stofnaði
í kjölfarið bjöllukór,“ segir Karen
en hún er fædd í Bandaríkjunum
en afi hennar og amma fluttu frá
Íslandi til Bandaríkjanna í kring-
um 1920.
„Ég hef alltaf verið mikið
í þessu, mér finnst bara svo
athyglis verðir þessir bjöllukórar.
Þetta er alveg svaka samstarf að
láta þetta hljóma sem eina heild,“
segir hún glöð í bragði en eftir
bestu vitund Karenar er Bjöllukór
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
eini bjöllukórinn sem starfræktur
er á Íslandi í dag og heldur reglu-
lega tónleika.
Kórinn efnir til styrktartón-
leika í Hljómahöll í Reykjanesbæ
í kvöld klukkan átta og á morgun
í Háteigskirkju, einnig klukkan
átta.
gydaloa@frettabladid.is
Íslenskur bjöllukór
spilar í Carnegie Hall
Í bjöllukórnum eru nemendur í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Þau halda utan
í sína fyrstu utanlandsferð og koma meðal annars fram í Carnegie Hall.
Á GÓÐRI STUNDU Bjöllukórinn samastendur af ellefu hressum bjölluleikurum.
KAREN
STURLAUGSSON
Það mun vera haframjöl og allar
gerðir af fræjum og hnetum sem
eru til í húsinu, frosin bláber, goji-
ber og sojamjólk. Svo mjög margir
sterkir kaffibollar.
Vala Kristín Eiríksdóttir leikkona og annar
handritshöfundur þáttanna Þær tvær.
MÁNUDAGSLAGIÐ
1
5
-0
9
-2
0
1
5
0
9
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
4
-E
5
6
8
1
6
2
4
-E
4
2
C
1
6
2
4
-E
2
F
0
1
6
2
4
-E
1
B
4
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K