Alþýðublaðið - 01.12.1919, Síða 2
s
alÞýðublaðið
M annrækt.
ii.
í I. kaila þessarar greinar, tók
eg til athugunar tillögur Nóa.
Verð eg enn að víkja ab grein
hans lítið eitt. Þar stendur:
„Við erum ekki svo miklir íram-
íaramenn, Reykvíkingar, í menn-
ingarlegu tilliti, að úr öllum mein-
um verði bætt í einu, en að byrja
á því sem næst liggur, er ekki
óhugsandi að megi reyna*. (4 X
: ~ ?!) „Liggur þá nokkuð nær
að koma í veg fyrir að uppvai-
andi kynslóðin úrkynjist og eyði-
leggist, koma í veg fyrir að börn-
in deyi eða verði aumingjar. Úr
húsnæðinu verður ekki bætt svo,
að um muni, fyrst um sinn“.
Þetta er merkileg klausa. Höf.
virðist sjá glögt einn mesta ágall-
ann á bæjarlífmu. Hann leitar
ráðs að draga úr þessum ágalla.
En hann flýtir sér að fullyrða, að
ekki só unt að hagga Yið megin-
orsök hans.
Þarna skiJja leiðir okkar. Eg
hefi meiri mætur á sóttvörnum
en lækningum.
Húsnœðisástandið er mesta böl
bæjarlífsins. Pað er höfuðorsök
líkamlegra og andlegra vanþrifa
bæjarbúa, en kemur harðast niður
á uppvaxandi kynslóð. Og úr því
er unt að bæta svo, „að um muni
fyrst um sinn“. Það mun reynast
auðveldara viðfangsefni en leik-
vellir og sumarbústaðir, og hundr-
aðfalt notadrýgra.
Eg get ekki séð að bústaður
fyrir börn og unglinga yrðu ódýr-
ari, þó bygður væri fjarri bænum,
heldur en þó hann væri bygður í
bænum.
Eg get ekki séð að slíkur bú-
staður yrði ódýrari, þó notaður
væri 2—3 mánuði úr árinu, held-
ur en þó hann væri notaður til
íbúðar 12 mánuði af árinu.
Ekki mundi heldur smiðum
fjölga við það, að bygt væri utan
bæjarins.
Fjárhagslega skoðað virðist mór
að sumarbústaðir hlytu að tefja
fyrir því, að bygðir yrðu viðunan-
legir ársbústaðir.
Nú vill svo vel til, að til eru
sumarbústaðir fyrir börn og ung-
linga kauptúnanna, sem lengi hafa
verið notaðir, og sem vissulega
mætti og ætti að nota miklu meira
en gert er. Það eru „bændabýlin
þekku*, sem dreyfð eru um alJar
sýslur og sveitir þessa lands.
Eða ætli kostnaðurinn við dvöl
barna og unglinga á „tilbúnum"
sumarbústöðum yrði miklu minni
en meðgjöf, sem bændur þættust
fullsæmdir af?
Eða mundu slíkir sumarbústaðir
verða miklu hollari börnunum,
eða njóta meira trausts foreldr-
anna en sveitaheimilin?
Eg hika ekki við að svara þess-
um spurningum neitandi.
Læt eg svo úttalað um grein
Nóa, en sný mér að aðalefninu.
G.
^ÍBsfarríska bðrnin.
Undanfarna daga hafa staðið í
blöðunum auglýsingar frá ein-
hleypum mönnum, sem óska eftir
því, að koma niður austurrísk-
um börnum hjá einhverri fjöl-
skyldu.
Vegna auglýsinga þessara tek
eg mór penna í hönd, og óska
eftir því, að Alþýðublaðið flytji
eftirfarandi línur.
Eg býst við því, að þeir, sem
taka þessa veslings einstæðinga
að sér, geri það af meðaumkun.
Að þeir geri það til þess, að ögn
færri sakleysingjar verði afleiðing-
um stríðsins að bráð. Að þeir geri
það til þess, að börnin, sem flutt
verða hingað til lands, fái tæki-
færi til þess, að verða að nýtum
mönnum, hvort sem þau síðar
meir ilendast hér eða ekki. Það
dylsi því engum, sem um málið
hugsar, að vanda verður mjög til
þess, að velja börnunum heimili.
En að einhleypir menn, eða aðrir,
komi börnunum í fóstur og greiði
með þeim meðgjöf, getur verið
ginnandi fyrir ýmsa. Auk þess,
sem uppeldi barnanna verður varla
eins vel af hendi leyst hjá þeim,
sem ekki taka börnin ótilkvaddir,
eins og hjá þeim, sem taka börn-
in svo að segja sem sín eigin
börn. Líka er hætt við, að fóstur
þeirra barna, sem meðgjöf fylgir,
verði líkara því, sem börn alin
upp á hrepp eiga við að búa,
verði ekki því betur vandað til
fósturforeldranna.
Það eru því vinsamleg tilmæli
mín til allra þeirra, sem hér eiga
hlut að máli, að þeir athugi vel:
og rækilega það, sem þeir eru að
gera, þegar þeir vilja í góðu skyni
hjálpa smælingjunum austurrísku
með því, að koma þeim fyrir hjá
fjölskyldum og leggja með þeim
fulla meðgjöf. Þeim er skylt, og
eg vona að þeir athugi vel allar
kringumstæður, áður en þeir trúa
hverjum sem er fyrir barninu, sem
þeir viJja gott gera.
Annars væri það happadrýgst,
að minni hyggju, að sem allra
flestum, og helzt öllum börnun-
um, væri komið fyrir hjá fólki,
sem sjálft og ótilkvatt annaðist
uppeldi barnanna.
í s^mbandi við þetta vaknar
hjá mér spurningin: Hvað verður
gert við börnin fyrstu dagana
eftir að þau eru hingað komin?'
Verða þau tekin til fósturs strax
af hinum einstöku fjölskyJdum,
eða höfð í sóttkví einhvern tíma?
Þetta er spurning, sem vafa-
laust verður grandgæfilega athug-
uð af þeim, sem hlut. eiga að
máli, og veitir ekki af að allrar
varúðar sé gætt.
J.
Símslieyti.
KJiöfu 28. nóv.
Friðai’samningar
Búlgara og Bandamanna voru
undirskrifaðir í gær.
Karl fyrv. keisari
verður væntanlega aftur konungur
í Ungverjalandi.
Serbar og Svartfellingar.
Prá Vín er símað, að stjórn
Serbíu hafi í undirbúningi að senda
her í þrennu lagi inn í Montenegro
til þess að bæla niður uppreisn.
Svartfellinga.
Eiiend mynt.
Sænskar krónur(lOO) — kr. 111.40
Norskar krónur (100) — kr. 107.80
Þýzk mörk (100) — kr. 11.70
Pund sterling (1) — kr. 20.00
Dollars (100) — kr. 494.00