Alþýðublaðið - 01.12.1919, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 01.12.1919, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ i Khöfn 29. nór. Fjármálasamband. Fregn frá Vínarborg hermir, að öU slafnesk ríki muni að líkindum Sanga í fjármálasamband- Austurríki gjaldþrota? Símað er frá Vínarborg, að þar eð austurrísku stjórnina vanti fé til ríkisrekstursins, sé hún að ráða íneð sér, hvort ekki eigi að gefa ^andamönnum í hendur ríkis- reksturinn. Harðstjórn Englendinga. Fregn frá París segir, að for- tnaður Egyptalands sendinefndar blaðsins „Chicago Tribune* kæri yfirráð Engleudinga í Egyptalandi ®g biðji Wilson hjálpar. €ftir kðsttMgamar. Loksins er úr rústum risinn Feykjavíkurbær. Sveinn og Möller bera blysin, birtan er svo skær. Kaupmannsstéttin varðar veginn, verður ratinn harla feginn. ^ykurhneykslis voðavandi víkja skal úr landi. Af því Jón er flatur fallinn, frjáls er verzlun enn; aftur komnir upp á pallinn yfirburðamenn, það er að segja í prútti og prangi °g prúðmannlegum yfirgangi, ðráttarvélar viðskiftanna, velmegun sem banna. Sveinn mun aldrei Sjálfstjórn blekkja. Svo er okkar kvörn hrossasöluhneykslið malar, fisest um landseinokun galar! sér ei aðrar svartar hliðar, sjálfstæðíð þó riðar. ^ioggi veður vafurloga, vantar ekki þrótt, sendill neðri svæluvoga Sveimar dag og nótt, eins og Skotta eða Móri 1 öllum gættum sést á slóri ■Hundrað alda forna fræði * flytur sá í næði. Steingervinga, draugadranga, dýrðar sveipar blæ. Aftur á bak er gott að ganga, greið er leiðin æ. Þróun fjöidans fórna ætti fornöldin ef ráða mætti, aðeins nokkrir ríkir ráði rotnunar á láði. Fjáðir eigi þý og þræla, — það er stefnuskrá, — sem að ekkert mega mæla, meira’ en nei og já. Þrældómur ef þróttinn lamar, þeir skulu fara upp gyllingshamar og svo þaðan allír hrapa ættar fyrir stapa. Hrafn. Hm daginn 03 Teginn. Öll móttökunefnd austurrísku barnánna tekur nú á móti sam- skotum til ferðakostnaðarins. Alþingi er kratt saman 5. fe- brúar 1920. ísland kom í gærdag og lagð- ist á ytri höfninni vegna ofsaveð- urs. Það lagðiat að hafnarbakkan- um í morgun. Lagarfoss fer vestur og norð- ur um land á morgun. För Noröan- og Yestan-pósts er frestað þangað til í íyrramálið (þriðjudag) kl. 8. í dag verður pósthúsið aðeins opið til kl. 6 e. h. Friðarmerki. Um allan heim eru nú hafin samskot til þess, að gera við skemdirnar á dómkirkj- unni í Reims; og á hún að verða nokkurskonar minningarmerki um alheimsfriðinn. Hér í bæ verður í dag byrjað að selja merki í þessu augnamiði. Þau verða seld á póst- húsinu, í bönkunum eg víðar hér og einnig á öllum brófhirðingum út um land. Aðalafgreiðsla í Aust- urstræti 7. Ætlast er til að menn lími merki þessi á bréfin til kunn- ingja sinna. Læknar bæjarins hafa orðið ásáttir um, að hækka frá og með deginum í dag, borgun fyrir lækn- isverk. Síðast var taxtinn hækk- aður 1916. Ætli Mbl. kenni þeim ekki um verðhækkunina, næst þegar vörur hækka í verði, eins og það hefir kent verkamönnum um verðhækkun á vörum hingað til? Stephán G. Stephánsson Þá er þetta alkunna og stór- merka skáld, sem þrátt fyrir mikla erfiðleika, hefir orkt geysimikið af ágætum Ijóðum, var hór á ferð sumarið 1918, fyrir tilstilli margra aðdáenda sinnaj var honum ger^ ýmislegt til sæmdar. Gefið út sér- stakt Ijóðasafn eftir hann, honum flutt kvæði, gerð af honum greypt mynd og ýmislegt fleira. Þá voru og teknar af honum Ijósmyndir, meðal annars ein, sem ein af hin- um upprennandi listakonum vor- um hefir stækkað og látið prenta í New-York. Mór hefir gefist kost- ur á að sjá mynd þessa, og er hún að mínum dómi mjög vel gerð og verulega lík skáldinu. Hún er í arkarstærð, rauðbrún á lit og prentuð á ágætan pappír. í stuttu máli mjög eiguleg og sjálfsagt er, fyrir alla þá, sem Stephán þekkja, annaðhvort af kvæðum hans eða persónulega, að útvega sér þessa mynd með- an kostur er á. En hún verður seld á götum bæjarins í dag og næstu daga. Myndin er mjög ódýr og þeir, sem kaupa hana slá tvær flugur í einu höggi, styrkja unga listakonu og eignast ágæta mynd af Klettafjalla skáldmæringnum. I. J. Xoli konungur. | Eftir Upton Sinclair. (Frh.). En Hallur beindi tilfinningum þessum brátt á bug, og áður eu varði leit hann á þetta alt öðrum augum. Framar öðru vöktu nám- urnar eftirtekt hans. Þar gat að líta heilar borgir grafnar inn undir fjöllin og voru aðalgöngin margra rasta löng. Dag einn laumaðist Hallur burt frá vinnu sinni og tókst ferð á hendur með „lest* einni og sá í fyrsta skifti með eigin augum hið fprðulega, marg-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.