Ský - 01.12.2009, Blaðsíða 31
4. tbl. 2009 SKÝ 31
16 17
Stríð
og friður
KjartanS
ÓlafSSonar
Kalda stríðið var háð um allan heim og Ísland þar alls ekki
undanskilið. Sagnfræðingar hafa undanfarin ár skrifað
bækur um þátttöku Íslendinga í því og mætti nefna verk
Jóns Ólafssonar, Vals Ingimundarsonar og Guðna Th.
Jóhannessonar svo nokkur nöfn séu nefnd. Margt fólk sem
barðist af heilum hug í hinu kalda stríði er enn á meðal
okkar og Vísbending hitti einn þessara öldruðu stríðsmanna
á heimili hans um miðjan nóvember. Þetta er Kjartan
Ólafsson sem þar situr á friðarstóli, 76 ára að aldri.
Kjartan átti þátt í að skapa Keflavíkurgönguna, hann
stýrði Samtökum hernámsandstæðinga frá 1960-62, var
framkvæmdastjóri Sósíalistaflokksins frá 1962-68, starfs-
maður Þjóðviljans og Alþýðubandalagsins frá 1969 til 1972,
ritstjóri Þjóðviljans frá 1972 til 78 og 1980 til 1983.
Kjartan lærði íslensk fræði við Háskóla Íslands 1954 -56,
germönsk fræði í Vínarborg 1956-58, lauk BA prófi í
þýsku og mannkynssögu frá HÍ 1961.
Páll áSgeir áSgeirSSon