Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - 01.04.2014, Blaðsíða 4

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - 01.04.2014, Blaðsíða 4
4 Eftir langan aðdraganda mættum við pabbi (Birgir Gunnars- son) til Sochi í Rússlandi 5. febrúar sl. Ég var vel undirbúinn og klár í slaginn. Strax á flugvellinum mættu okkur sjálfboðaliðar sem fylgdu okkur í gegnum öryggishliðin áður en við fengum að halda upp í ólympíuþorpið. Þorpið okkar hét „Endurance Village“ sem var eitt af þremur þorpum þarna, það var í 1500m hæð og þar bjuggu keppendur í skíðaskotfimi og skíðagöngu. Gríðarlega mikil öryggisgæsla var á leikunum en það var þó smekklega að því staðið hjá Rússunum og fór ekki mikið fyrir því. Hermenn gengu um í hversdagslegum snjógöllum og brosin og jákvæðnin frá sjálfboðaliðunum gerðu það að verkum að manni leið alltaf vel. Um 1500 keppendur bjuggu í „Endurance Village“ ásamt fylgdarliði og vorum við pabbi í aðalbyggingunni. Þar var allt til alls, mötuneyti sem var opið allan sólarhringinn, líkamsrækt, sundlaug, heilsugæsla ofl. ofl. Við höfðum það því mjög gott og ekki yfir neinu að kvarta. Svo var veðrið eins og best varð á kosið allan tímann sem við vorum þarna, sól og blíða alla daga. Kalt á nóttunni og hlýtt á daginn, það hafði reyndar áhrif á færið sem var frekar blautt yfirleitt þegar keppnirnar fóru fram á daginn. Ég keppti tvívegis, í sprettgöngu skaut og í 15 km göngu með hefðbundinni aðferð. Ég var nokkuð sáttur við árangurinn en löngunin er mikil til að fara aftur eftir fjögur ár til Suður- Kóreu og ná ennþá betri árangri. Þessir dagar sem við áttum í Sochi voru ógleymanlegir og þá stendur upp úr þegar ég gekk inn á leikvanginn á setningarhátíðinni með íslenska flaggið, það var ótrúleg stund. Þann 16. febrúar héldum við pabbi svo heim eftir 11 magnaða daga. Sævar Birgisson - www.sbirgisson.com Sævar Birgisson í Sochi

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.