Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - 01.04.2014, Blaðsíða 6

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - 01.04.2014, Blaðsíða 6
6 Afreksmaður á skíðum Siglfirðingar hafa hampað fjölda Íslands- meistaratitla á skíðum í gegnum tíðina. Skíðakappann Jón Þorsteinsson þekkja allir og birtist hér viðtal við hann sem var tekið fyrir áratugum síðan á heimili hans og konu hans Ingibjargar Jónasdóttur. Höf. er ókunnugur. Jón Þorsteinsson er tvímælalaust einn fræknasti skíðamaður sem Siglfirðingar hafa eignast. Jón byrjaði ungur að æfa og var kominn í fremstu röð skíðamanna hérlendis aðeins 15 ára gamall. Við lok 20 ára viðburðaríks keppnisferils hafði Jón orðið Íslandsmeistari í göngu, stökki, svigi og norrænni tvíkeppni og hlotið fjölda annarra viðurkenninga fyrir afrek á skíðum. Ég bað Jón að segja eitthvað frá sínum viðburðaríka keppnisferli. Ég er fæddur hér í Siglufirði og hef dvalið hér alla mína ævi. Ég byrjaði ungur að leika mér á skíðum eins og krakkar gerðu í þá daga. Þegar ég var 11 ára fór ég að keppa á skólamótum og vegnaði oftast vel. Smá óhöpp komu þó fyrir, maður datt úr skíðunum og oft þurfti ekki langa töf til að missa af fyrsta sætinu. Útbúnaðurinn var líka heldur bágborinn í þá daga, furuskíði sem ekki mátti mikið á reyna svo þau hrykkju í sundur. Ég átti góðan afa sem var mjög lagtækur og var oft búinn að setja klampa á skíðin fyrir mig eftir að strákur hafði ætlað sér um of. Þessi furuskíði voru í rauninni bara tunnustafir sem voru lagaðir til og síðan settar á leðurólar sem bindingar. Fljótlega fóru þó að koma betri skíði sem þoldu meiri átök. Það varð okkur krökkunum í Siglufirði mikil lyftistöng þegar norskur skíðakennari, Helge Torvö, var fenginn hingað sem leiðbeinandi. Helge var hér í tvo vetur og var ákaflega mikill íþróttamaður og afburða skíðastökkvari. Þegar hann tók þátt í stökkmótum kom allur þorri bæjarbúa að horfa á og ég man vel hvað fólk var eins og dáleitt að horfa á hann enda lenti hann svo mjúklega að það sást varla. Helge Torvö lyfti mjög undir skíðaáhugann í bænum og ekki síst hjá mér sem snerist mikið í kringum hann meðan hann dvaldist hér. Um þetta leyti var ég 11 ára og mér er það minnisstætt að ég náði að stökkva 11 metra og þótti það talsvert afrek. Náði 40 metra stökki 14 ára gamall Síðan þróaðist þetta næstu árin. Ég var nánast á skíðum frá morgni til kvölds allan veturinn þegar ég var ekki í skólanum. Smám saman byggðum við strákarnir stærri stökkpalla og sterkari og betri skíði gerðu okkur mögulegt að ná lengri stökkum. Þegar ég var 14 ára stökk ég 40 metra sem var með því lengsta sem stokkið var á þeim tíma í Siglufirði. Um þetta leyti var farið að halda Siglufjarðarmót á skíðum. Þar réði úrslitum samanlagður árangur í göngu og stökki svo mikið reið á að vera jafnvígur á báðar greinarnar og flestir sem æfðu á þessum tíma voru í öllum greinum, þ.e. göngu, stökki og svigi og margir nokkuð jafnvígir á þær allar. Þegar ég var 14 ára tók ég þátt í mínu fyrsta göngumóti í flokki fullorðinna. Ég man vel eftir þessari keppni. Við vorum 20 keppendur og gengum 18 km sem var algengasta keppnisvegalengdin á þessum árum. Ég startaði númer 9 og kom fyrstur í mark og sigraði og það þótti vel af sér vikið því flestir keppinautar mínir voru um og yfir tvítugt. Ég var hinsvegar frekar stór og bráðþroska svo þetta var mér alls ekki svo erfitt. Þessi Siglufjarðarmót tókst mér að vinna þrjú ár í röð og ég hlaut fyrir stóran verðlaunabikar til eignar. Thúlemótin í Reykjavík Um veturinn 1937 þegar ég var 15 ára fréttum við Siglfirðingar að halda ætti opið skíðamót í Reykjavík. Okkur strákana langaði mjög að komast á mótið þótt lítið væri um peninga því oft var lítið um atvinnu yfir vetrarmánuðina á þessum árum. Þá var gripið til þess ráðs að ganga í hús og safna peningum. Söfnunin gekk svo vel að hægt var að senda allstóran hóp héðan á mótið. Rétt er að fram komi að þá voru tvö skíðafélög starfandi í bænum, Skíðafélag Siglufjarðar sem ég var ávallt í og Skíðafélagið Skíðaborg. Það var einkum göngukeppnin á Thúlemótinu sem við lögðum áherslu á. Hún var sveitakeppni og árangur fimm bestu frá hverju félagi kom til útreiknings. Verðlaun fyrir Thúlegönguna voru veglegur farandgripur sem vannst til eignar af því félagi sem hann hlyti þrisvar í röð eða fimm sinnum alls. Auk þess voru einstaklingsverðlaun fyrir þrjá fyrstu menn. Við Siglfirðingar héldum suður rúmum hálfum mánuði fyrir mótið. Farkosturinn var eitt af strandferðaskipum Eimskipafélags Íslands. Veran um borð með tilheyrandi sjóveiki og vanlíðan þar sem við höfðumst aðallega við í lest skipsins var tæpast mönnum bjóðandi en við urðum að hafa það því ekkert kojupláss var laust þegar við komum um borð. Þegar til Reykjavíkur kom skildu leiðir. Við Skíðafélagsmenn bjuggum á Kolviðarhóli þar til mótinu lauk en Skíðaborgarmenn gistu í skála Ármenninga í Jósepsdal. Fram að mótinu var æft kappsamlega nánast frá morgni til kvölds enda áhuginn mikill. Ég minnist þess að ég gat varla sofið fyrir spenningi en þetta var mín fyrsta keppnisferð í annað byggðarlag og ég langyngstur í okkar hópi. Þurfti undanþágu til að fá að keppa en sigraði samt Til að ég mætti taka þátt í göngukeppninni á mótinu þurfti undanþágu hjá ÍSÍ. Undanþágan fékkst en samt þótti vissara að láta lækni skoða mig áður en ég fór í gönguna. Doktorinn fann ekkert athugavert en menn voru hræddir um að ég myndi ofreyna mig í svo harðri keppni því flestir keppendurnir voru um tvítugt og þaðan af eldri. Thúlemótið var síðan haldið í Hveradölum í ágætu veðri. Hjarn var yfir öllu og færið mjög létt. Mótið vakti mikla athygli og Reykvíkingar þyrptust uppeftir í þúsundatali til að fylgjast með keppninni. Mér gekk mjög vel var vel upplagður og tókst að sigra í göngunni eftir hörkukeppni við Ísfirðinginn Magnús Kristjánsson. Auk þessa persónulega sigurs náðum við Skíðafélagsmenn bestum árangri sem sveit í göngunni og hlutum því bikarinn góða til varðveislu í fyrsta skiptið sem um hann var keppt. Í stökkkeppninni náði ég einnig góðum árangri, varð í öðru sæti á eftir Alfreð Jónssyni Siglfirðingi, sem flutti síðar út í Grímsey. Það mátti því segja að hið mikla kapp við æfingar sem ég lagði á mig þennan vetur hafi skilað allgóðum árangri og ég var mjög sáttur við mína frammistöðu á mótinu. Glæsilegt tilboð frá Morgunblaðinu Sigurinn í göngunni vakti talsverða athygli sérstaklega vegna þess hve ungur ég var. Samt varð ég alveg undrandi þegar ég var boðaður á fund forráðamanna Morgunblaðsins meðan á dvölinni syðra stóð. Erindi þeirra við mig var að segja mér að blaðið byðist til að kosta mig til náms á skíðaskóla í Noregi næstu 1-2 árin. Ekki veit ég af hverju blaðið gerði mér þetta ágæta boð. Vera má að Ívar Guðmundsson sem starfaði þar hafi átt hugmyndina en hann hafði spjallað talsvert við mig á meðan Thúlemótið stóð yfir. Þetta boð var auðvitað ákaflega höfðinglegt og einstakt. Foreldrar mínir voru hins vegar ekki þess fýsandi að ég færi til Noregs, töldu mig of ungan og óþroskaðan til að fara til langdvalar í öðru landi. Ég var ekkert ósáttur við þessa afstöðu þeirra, hraus hálfpartinn Jón Þorsteinsson - f. 27. apríl 1921, d. 10. apríl 1993

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.