Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - 01.04.2014, Blaðsíða 5
5
Skíðagöngumót í Fljótum
Haldið verður skíðagöngumót í Fljótum um páskana,
nánar tiltekið á skírdag.
Þetta er samvinnuverkefni Siglfirðinga og Fljótamanna rétt
eins og fyrsta skíðamót á Íslandi sem haldið var í Fljótum
árið 1905. Skipuleggjendur mótsins eru Siglfirðingarnir
Björn Z. Ásgrímsson og Sóley Ólafsdóttir oft til heimilis
að Búðatungu í Fljótum, Fljótamennirnir Guðmundur
Jónsson og Anna Hermannsdóttir frá Lambanesi og
með dyggri aðstoð Brúnastaðabænda, Jóhannesar
Ríkharðssonar og Hjördísar Leifsdóttur.
Að sögn Björns verður mikil fjölbreytni í gönguleiðum og
öll fjölskyldan hvött til þátttöku, ungir sem aldnir. Gengnar
verða vegalengdirnar 1, 5, 10 og 20 km í öllum aldursflokkum
karla og kvenna. Hver og einn getur
valið sína vegalengd, allt eftir getu.
Keppendur fá viðurkenningar og
veitingar að móti loknu að Ketilási.
Öðrum gestum mótsins gefst kostur á
að kaupa veitingar á vægu verði. Einnig
verður happdrætti þar sem dregnir
verða út veglegir vinningar úr nöfnum
þátttakenda. Meðal styrktaraðila
mótsins eru sælgætisgerðin Freyja, sem
gefur páskaegg, Hópferðamiðstöðin
Trex, Sparisjóður Siglufjarðar,
Fjallakofinn, Byko og Veiðiklúbbur
Íslands (Orri Vigfússon).
Það er orðið nokkuð langt um
liðið síðan haldið var skíðamót í
Fljótum eða amk. 15 ár. Fljótin eru
jú vagga skíðamenningarinnar og
þaðan hafa komið margir frægir
skíðakappar eins og Trausti Sveinsson
og Magnús Eiríksson, margfaldir
Íslandsmeistarar og ólympíufarar.
Það virðist vera nokkuð mikill
áhugi fyrir mótinu og höfum við
fengið fjölda fyrirspurna. Áhugi á
skíðagöngu er að aukast enda er þetta
ein besta útivistin og hreyfingin sem
völ er á, staðhæfir Björn.
Við eigum von á gömlum og
nýjum skíðahetjum og meðal
annars Íslandsmeistaranum og
ólympíufaranum Sævari Birgissyni
sem að sjálfsögðu er ættaður frá
Siglufirði og Fljótum. Mótið verður
undir tryggri stjórn Siglfirðingsins og
skíðakappans Birgis Gunnarssonar.
Við vonumst eftir góðu og skemmtilegu móti og að
veður og snjóalög verði okkur hagstæð. Það hefur verið
snjólétt í Fljótum það sem af er vetri en nú síðustu daga
hefur heldur betur ræst úr því og vonandi dugar það fram
að páskum enda eru þeir með seinna móti núna. Fljótin
eru jú „heimkynni snjóskaflanna“ og þar er fagurt hvernig
sem viðrar segir Björn að lokum og lætur þessa vísu fljóta
með.
Fljótin hafa fáir þekkt
faðmi vafin grónum.
Þar er afar yndislegt
allt á kaf´ í snjónum.
höf. ókunnur