Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - 01.04.2014, Page 8

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - 01.04.2014, Page 8
8 Siglfirðingafélagið í Spurningakeppni átthagafélaganna Lið Siglfirðingafélagsins: Ragnar Jónasson, Skúli Þór Jónasson og Ásdís Jóna Sigurjónsdóttir. Siglfirðingafélagið tekur um þessar mundir þátt í Spurningakeppni átthagafélaganna sem haldin er í Breið- firðingabúð. Þetta er annað árið sem keppnin er haldin en hún var endurvakin í fyrra eftir nokkurra ára hlé. Þar sem spurningakeppnir eru „í tísku“ núna, samanber Útsvar og öll PubQuiz-in, þótti mönnum þetta kjörinn vettvangur til að vekja athygli á átthagafélögunum og virkja meðlimi þeirra. Ekki síst að fá unga fólkið til að taka þátt. Höfundur spurninga er Gauti Eiríksson, grunnskólakennari. Að þessu sinni taka 16 félög þátt í keppninni. Lið Siglfirðingafélagsins keppti í 5. og síðasta riðlinum og vann lið Árnesingafélagsins (14:12) og lið Dýrfirðingafélagsins (16:9). Þar með komst lið Siglfirðingafélagsins í átta liða úrslit og svaraði hinum fjölbreyttustu spurningum um landafræði, stjörnufræði, tónlist, kvikmyndir, skjaldarmerki o.fl. Í liði Siglfirðingafélagsins eru Ásdís Jóna Sigurjónsdóttir, Skúli Þór Jónasson og Jónas Ragnarsson, sem hljóp í skarðið fyrir Ragnar Jónasson. Þau svöruðu hinum fjölbreyttustu spurningum um landafræði, stjörnufræði, tónlist, kvik- myndir, skjaldarmerki o.fl. Í átta liða úrslitunum, 27. mars, unnu Siglfirðingar firnasterkt lið Djúpmanna, 12:11, Húnvetningar unnu Strandamenn, 16:7, Skaftfellingar unnu Norðfirðinga, 19:11, og Breiðfirðingar unnu Héraðsmenn, 14:10. Úrslitakeppnin verður í Breiðfirðingabúð 4. apríl og lýkur henni með dansiballi. Sigruðu 5. og síðasta riðilinn með glæsibrag og fóru inn í undanúrslitin „Að þessu sinni verðum við svolítið á frönskum nótum“, segir Gunnsteinn Ólafsson listrænn stjórnandi hátíðarinnar. „Við fáum franska tónlistarmenn í heimsókn og þeir verða með fjölbreytta tónleika. Önnur franska sveitin sem kemur heitir Klezmer Kaos og í henni leikur og syngur Heiða Björg Jóhannsdóttir klarinettuleikari.“ Að sögn Gunnsteins býður hljómsveitin upp á tvenna tónleika, bæði með klezmer-tónlist, þ.e. tónlist Gyðinga, og frönskum ballöðum. Hljómsveitin mun einnig vera með námskeið á hátíðinni. Íslenskum þjóðlögum verður gert hátt undir höfði að venju og mikið verður um frumsamið efni. „Við fáum Steindór Andersen til þess að stjórna kvæðamannakaffi sem sló í gegn í fyrra auk þess að halda eigin tónleika. Á hátíðina kemur færeyskur danshópur og sýnir við Þjóðlagasetrið og færeyskur karlakór heldur tónleika í Bátahúsinu.“ Gunnsteinn sýnir á sér nýja hlið á hátíðinni, því hann hyggst frumflytja ævintýraóperu sem hann og Böðvar Guðmundsson sömdu. „Óperan verður ekki sviðsett heldur aðeins flutt á tónleikum. „Óperan hefur verið rúm tvö ár í smíðum og byggir að hluta á íslenskum þjóðlögum. Mig langar til að leyfa fólki að heyra tónlistina og reyna síðan í kjölfarið að koma henni á svið.“ Ævintýraóperan nefnist Baldursbrá og er fyrir fjóra einsöngvara, barnakór og hljómsveit. Á meðal söngvara verða Bjarni Thor Kristinsson, Ágúst Ólafsson og Fjóla Nikulásardóttir. Síðan verðum við með fjölmarga harmóniku- snillinga á hátíðinni sem munu fara á kostum, bæði innlenda og erlenda, svo það verður sannkölluð veisla fyrir unnendur dragspilsins,“ sagði Gunnsteinn að lokum. Ævintýraópera frumsýnd á Þjóðlagahátíð Þjóðlagahátíðin verður haldin dagana 2.-6. júlí í sumar.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.