Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2014, Page 2

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2014, Page 2
2 Ágætu félagar. Alltaf er mikið um að vera hjá Siglfirðingafélaginu. Haustdagskráin hófst með gönguferð í Búrfellsgjá, mæting var mjög góð eða um 30 manns. Félagið bauð upp á heitt súkkulaði og kökur eftir gönguna. Siglfirðingaball verður á Ránni fyrsta vetrardag eða 25. október. Þar mun hinn eini sanni Heiðar Ástvaldsson stjórna dansi. Stúlli og Danni koma frá Siglufirði og sjá um fjörið. Þeir lofa sérstakri siglfirskri stemningu. Aðalfundurinn verður 30. október nk. í Litlu-Brekku (Lækjarbrekku) kl. 20:30. Upplestrarkvöldið verður síðan 13. nóvember en þar mun verða lesið úr nýjasta Siglufjarðarkrimma Ragnars Jónassonar. Einleikurinn „Í landlegu“ eftir Þórarin Hannesson, Tóta, sló í gegn á Siglufirði sl. sumar. Þórarinn kemur og endurtekur leikinn á upplestrarkvöldinu. Jólaballið verður svo 27. desember í KFUM og K húsinu við Engjateig. Ballið ber upp á laugardag að þessu sinni og hefst kl. 15:00. Forsíðuljósmyndina að þessu sinni tók Jón Steinar. S. Jóna Hilmarsdóttir. - vinnslan@simnet.is ÚTGEFANDI OG ÁBYRGÐ: SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ RITSTJÓRI: S. JÓNA HILMARSDÓTTIR SIGLFIRÐINGABLAÐIÐ FR Á R IT ST JÓ RA FRÉTTABLAÐ SIGLFIRÐINGAFÉLAGSINS Upplestrar- og myndakvöld félagsins verður haldið fimmtudaginn 13. nóvember kl. 20:00 í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14 (hæðin fyrir ofan Bónus). Næg bílastæði og aðgengi fyrir alla. Að þessu sinni verður sýndur einleikur Þórarins Hannessonar, Í landlegu, sem sló í gegn á Síldarævintýrinu. Um er að ræða létta og skemmtilega sýningu, kryddaða tónlist og fróðleik. Lesið verður upp úr nýju verki Ragnars Jónassonar, Náttblindu. Sýndar myndir Hafliða Guðmundssonar kennara, teiknara og ljósmyndara. Kaffi og sírópskökur frá Aðalbakaríi á Siglufirði. Upplestrar- og myndakvöld félagsins Jólaball Verður í sal KFUM og KFUK við Holtaveg laugardaginn 27. desember 2014 kl. 15.00. Jólasveinninn kemur og gleður börnin. Fjörkálfarnir spila undir dansi kringum jólatréð og allir fá glaðning. Ljósm. Jón Steinar Ragnarsson

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.