Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2014, Blaðsíða 11

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2014, Blaðsíða 11
Lögreglumaður á Siglufirði er skotinn með haglabyssu af stuttu færi um miðja nótt. Ung kona flýr norður undan ofbeldisfullum sambýlismanni og hefur störf fyrir bæjarstjóra sem er nýtekinn við embætti í Fjallabyggð. Og sjúklingur er lagður inn á geðdeild í Reykjavík gegn vilja sínum. Þessir þræðir fléttast saman í nýja spennusögu Ragnars Jónassonar, Náttblindu, þar sem ræturnar liggja í átakanlegum veruleika undir fáguðu yfirborðinu. Náttblinda er fimmta og síðasta sagan í Siglufjarðarsyrpu Ragnars, um lögreglumanninn Ara Þór Arason, en fyrsta Siglufjarðarbókin, Snjóblinda, kom út árið 2010. Líkt og Snjóblinda gerist nýja bókin nánast að öllu leyti á Siglufirði, að þessu sinni að hausti til, skömmu fyrir fyrsta vetrardag. Veröld gefur Náttblindu út og er hún væntanleg um miðjan októbermánuð. Síðasti Siglufjarðarkrimminn ORÐ - nýr geisladiskur með Siglfirðingunum Róbert Óttarssyni og Guðmundi Ragnarssyni Náttblinda Róbert Óttarsson og Guðmundur Ragnarsson eru tveir brottfluttir Siglfirðingar sem búa á Sauðárkróki. Þeir voru að gefa út geisladisk sem ber heitið Orð. Þar syngur Róbert ellefu lög sem Guðmundur hefur samið. Textar á diskinum eru eftir ýmsa höfunda. Þeir hafa starfað saman í nokkur ár af og til í smáverkefnum. Síðustu tvö árin í „Manstu gamla daga“ sem hefur verið sett upp árlega á Sauðárkróki og stundum verið farið með á Siglufjörð. Róbert var búinn að heyra nokkur lög sem Guðmundur hafði samið og m.a. sungið eitt fyrir hann í Dægurlagakeppni kvenfélagsins á Sauðárkróki. „Mér fannst þetta mjög heillandi lög og setti því suð- og tuðvélina í gang og hætti ekki fyrr en Guðmundur féllst á að fara í þessa útgáfu“ segir Róbert. „Verkefnið var mjög skemmtilegt“ segir Guðmundur, „allt í einu er þetta ekki einkamál lengur því almannaálit er ekkert grín að eiga við. Það var því ekki annað að gera en að byrja og hafa trú á verkefninu“.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.