Fréttablaðið - 14.10.2015, Qupperneq 30
Eygló vann sjálf kyrrsetuvinnu í banka árið 2009. „Ég hafði kynnst jóga
og var farin að standa upp og
brjóta upp daginn með jógaæf
ingum. Þá kviknaði hugmynd
in sem ég síðan framkvæmdi
árið 2013, að bjóða upp á jóga
fyrir skrifstofufólk,“ segir Eygló
sem stofnaði þá Jakkafatajóga.
Í jakkafatajóga mætir jóga
kennari á vinnustaðinn og gerir
nokkrar æfingar sem er hægt að
gera ýmist standandi eða sitj
andi á stól. Allar æfingarnar eru
sérsniðnar að þeim sem sitja
mikið við sína vinnu. Fólk er í
sínum eigin fötum og ekki þarf
mikið pláss fyrir hvern og einn.
Eygló segir afar mikilvægt
að brjóta upp kyrrsetuna.
„Bæði upp á einbeitinguna
og til að leiðrétta vöðvaójafn
vægi,“ segir Eygló sem telur
að með æfingunum geti fólk
aukið einbeitingu, árvekni,
ánægju og jafnvel af köst.
Hún segir ekki nauðsynlegt að
gera margar og flóknar æfing
ar. „Það er jafnvel betra að gera
minna í einu og oftar yfir dag
inn.“ Kennarar Jakkafatajóga
mæta yfirleitt einu sinni í viku.
„Við hvetjum fólk til að tileinka
sér æfingarnar sem við gerum.
Ég veit til þess að fólk finnur
mikinn mun á sér ef það gerir
æfingarnar reglulega. Fólk nær
að rétta betur úr sér og líður
betur í öxlunum. Eftir ákveð
inn tíma byrjar fólkið sjálft
að leita í æfingarnar því að
það finnur hvað þetta er gott.“
Jakkafatajóga hefur verið vel
tekið að sögn Eyglóar. „Þetta
byrjaði sem lítið verkefni hjá
mér 2013 en í dag eru fimm
starfsmenn hjá mér í hlutastarfi
um allt land,“ segir Eygló en
jakkafatajóga er í boði á höfuð
borgarsvæðinu, Keflavík, Sel
fossi og Akureyri.
Eykur árvekni og ánægju
Margt fólk sem vinnur kyrrsetustarf allan liðlangan daginn þjáist af bakverkjum og vöðvabólgu. Að brjóta upp daginn reglulega með
nokkrum léttum æfingum gerir öllum gott. Það veit Eygló Egilsdóttir, jógakennari og eigandi Jakkafatajóga.
Ég veit til þess að
fólk finnur
mikinn mun á sér ef það
gerir æfingarnar
reglulega. Fólk nær að
rétta betur úr sér og
líður betur í öxlunum.
Fólk fer sjálft að leita í
æfingarnar því að það
finnur hvað þetta er gott.
Hryggvinda í stól
Byrja: Anda inn og lengja
hrygg.
Hryggvinda í stól
Enda: Anda frá, halda í
stólbak og toga sig inn í
hryggvindu fyrir brjóst-
bak. Góð til að liðka
svæðið kringum axlir og
herðablöð.
Einföld jafn-
vægisæfing
Hérna má hreyfa
ökklann á lausa
fætinum og
styrkja þannig
vöðvana og lið-
böndin þar.
Hálsliðkun Byrja á
að hita upp svæðið með
því að spenna axlir upp
að eyrum og slaka niður
nokkrum sinnum.
HálstEygja Leyfa
eyra að síga niður að öxl,
axlir slakar. Halda í nokkra
andardrætti.
Hálsvinda Leyfa höku
að nálgast öxlina. Góð
til að vinna á vöðva-
bólgunni.
yoga Mudra Eða „MEst-fyrir-Minnst“-æfingin
Spenna greipar fyrir aftan bak, leyfa höfðinu að síga varlega í átt
að gólfinu og slaka á inn í kvið og á hálsi og öxlum. Þessi æfing
er viðsnúin; blóðflæði leitar í átt að höfði og losar auk þess um
spennu í mjöðmum og öxlum. Gott að halda í 3-5 andardrætti
og muna að koma rólega upp í standandi stöðu aftur.
tEygja fraMan á
nára og brjóst-
vöðvuM Einstaklega
góð fyrir þá sem sitja
mikið, þar sem þessir
vöðvar eru í stöðugri
styttingu í sitjandi stöðu.
brjóst-
vöðvatEygja
Mikilvæg fyrir alla.
Olnboginn í ör-
lítið hærri stöðu en
öxlin sjálf. Teygir
vel á vöðvum sem
annars toga herða-
blöðin inn í ranga
stöðu. Þessari má
halda í góðar 30
sekúndur.
14. OkTóBEr 2015 MIÐVIkUDAGUr8 Heilsurækt
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
0
-4
D
5
0
1
6
C
0
-4
C
1
4
1
6
C
0
-4
A
D
8
1
6
C
0
-4
9
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
1
3
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K