Fréttablaðið - 14.10.2015, Page 52
„Í fyrra ákvað Leikfélagið að hafa
handritakeppni fyrir nemendur
skólans og leyfa sigurvegaranum
að setja upp leiksýningu í Undir-
heimum, aðstöðu Leikfélagsins.
Við í nýkjörinni Leikfélagsstjórn
ákváðum að halda þessari keppni
áfram og fengum nokkur handrit,“
segir Annalísa Hermannsdóttir,
formaður Leikfélags Menntaskól-
ans við Hamrahlíð og jafnframt
ein þeirra sem fara með hlutverk í
sýningunni.
„Við fengum Karl Ágúst Þor-
bergsson sem leikstýrir stóru
sýningunni okkar í vor til þess að
dæma, auk sigurvegarans frá því í
fyrra og Tómas Gauta Jóhannsson
sem var að selja handrit sem hann
skrifaði í framhaldsskóla,“ segir
Annalísa um keppnina.
„Við hugsuðum þessa keppni
sem frábært tækifæri fyrir unga
handritshöfunda til þess að láta
ljós sitt skína, koma hugmyndum
sínum á framfæri og fá að fram-
kvæma þær,“ segir hún en allur
ágóði af sýningunni rennur til
Bleiku slaufunnar og er miðaverð
300 krónur eða meira eftir því hvað
áhorfendur vilja styrkja mikið. „Í
fyrra var sýningin í góðgerðarvik-
unni í MH en hún er ekki strax en
okkur fannst sniðugt að hafa þetta
góðgerðarverkefni í leiðinni og
fyrst það er Bleikur október fannst
okkur tilvalið að styrkja Bleiku
slaufuna, það málefni er okkur í
stjórninni mjög kært.“
Keppnina vann Hanna Ágústa
Olgeirsdóttir með handriti að leik-
sýningunni Míkró.
„Sagan gerist í framtíðinni í
dystópískum heimi og fjallar um
strák sem heitir Míkró. Í heim-
inum sem hann býr í eru allir lok-
aðir inni í svörtum kassa. Míkró er
dálítið öðruvísi en allir hinir, hefur
mikið ímyndunarafl og langar til
þess að uppgötva og skoða hluti,“
segir Hanna Ágústa. „Hann finnur
bók, en í þessum heimi eru ekki
til neinar bækur heldur er allt á
tölvutæku formi. Við getum bara
sagt að það hefur ákveðnar afleið-
ingar að hann finnur þessa bók.
Þetta er kannski ákveðin ádeila á
nútímatækni og hvað við erum háð
henni,“ segir Hanna og bætir við að
hún geti ekki gefið meira upp um
handritið að svo stöddu.
„Það eru ellefu krakkar í leik-
hópnum og aðalhlutverkin leika
Hinrik Kanneworff Steindórsson
og Annalísa en það eru reyndar
allir með frekar stór hlutverk.“
Hanna leikstýrir einnig verkinu
en tekur fram að hún hafi fengið
góða aðstoð frá vinum og fjöl-
skyldu við að koma Míkró á fjal-
irnar. „Þetta er fyrsta leikritið sem
ég set upp fyrir utan þegar ég var í
leik- eða grunnskóla. Þetta er fyrsta
svona alvöru. Ég er mjög spennt og
mjög stressuð líka, það fylgir bara,“
segir hún glöð í bragði.
„Þegar ég var lítil skrifaði ég oft
sögur með ömmu minni heitinni.
Hún var mikið fyrir það að semja
ljóð og smásögur og við systurnar
gerðum mikið af því með henni
þannig að ég á henni margt að
þakka með það,“ segir Hanna og
bætir við að hún hafi alla tíð verið
mikið fyrir það að skrifa handrit.
„Mér finnst leikhúsið svo yndis-
legt og það býður upp á svo margt
sjónrænt sem er erfiðara að ná
fram með bókum og heilum text-
um.“
Hún segir ýmsar framtíðarpæl-
ingar sér hugleiknar og Míkró hafi
fæðst í kjölfar slíkra vangaveltna.
„Ég held ég hafi gengið með hand-
ritið í maganum í nokkra mánuði.
Þegar það var kominn lokafrestur í
keppninni fékk ég frest um einn
dag og kláraði handritið í brjálaðri
sköpunarleiðslu á einum degi. Það
skapaðist mynd á það á einum,
tveimur dögum en það var alveg
komið í hjartanu.“
Hanna er að læra söng og segir
hann vera aðaláhugamálið þó
leikhúsið og handrit fylgi þar fast
á eftir. „Mér finnst mjög gaman að
lesa handrit og bækur og leiklist
hefur alltaf heillað mig mikið.“
Míkró verður frumsýnt í Undir-
heimum í kvöld og sýnt aftur á
föstudaginn. Uppselt er á báðar
sýningarnar en dagsetning auka-
sýninga verður tilkynnt síðar.
gydaloa@frettabladid.is
Skrifaði handritið
í sköpunarleiðslu
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir sigraði í handritakeppni sem haldin var
af Leikfélagi Menntaskólans við Hamrahlíð. Leikritið Míkró verður
frumsýnt í Undirheimum í kvöld en Hanna leikstýrir einnig verkinu.
Hinrik, Hanna og Annalísa. Hinrik og Annalísa fara með aðalhlutverk í sýningunni Míkró, sem frumsýnd verður í kvöld en
Hanna skrifaði handritið. FréttAblAðið/VilHelM
Þetta er kannSki
ákveðin ádeila líka
á nútímatækni og hvað við
erum háð henni.
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir,
handritshöfundur og leikstjóri
Ráðstefnan fer fram á ensku.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
Sýnt verður beint frá fundinum á vefslóðinni: livestream.com/ru/arctichighseas
Hægt verður að taka þátt í umræðum á Twitter með merkingunni #ArcticHighSeasRU
Viðburðurinn er skipulagður í samstarfi við Arctic Options.
Frekari upplýsingar um viðburðinn og dagskrána má finna á hr.is.
Úthafið á norðurslóðum
Sameiginlegir hagsmunir í Norður-Íshafi
Norður-Íshafið hefur verið hulið ís í þúsundir ára. Í dag er meira en helmingur
úthafsins íslaus yfir sumarið og þessi nýja staða skapar bæði tækifæri
og áhættu. Á ráðstefnunni munu forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,
sendiherrar Bandaríkjanna, Kína, Noregs og Rússlands og aðrir sérfræðingar
ræða málefni Norður-Íshafsins í víðu samhengi.
Ráðstefna í HR, 15. október kl. 9-12:30 í stofu V101
Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, býður gesti velkomna
Opnunarræða:
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands
Aðrir ræðumenn:
Dr. Bjarni Már Magnússon,
lektor í alþjóðalögum við HR og Fulbright Arctic Scholar
Dr. Paul Arthur Berkman,
prófessor við Tufts-háskóla. Fyrrverandi forstöðumaður við
Scott Polar-rannsóknarstofnunina við Háskólann í Cambridge og
rannsóknarprófessor við Kaliforníuháskóla
Pallborðsumræður:
– Robert Cushman Barber, sendiherra Bandaríkjanna
– Anton Vsevolodovich Vasiliev, sendiherra Rússlands
– Weidong Zhang, sendiherra Kína
– Cecilie Landsverk, sendiherra Noregs
– Tero Vauraste, forseti og framkvæmdastjóri Arctia Shipping,
varaformaður Arctic Economic Council, Finnlandi
– Árni Þór Sigurðsson, sendiherra, Norðurslóðir
– Kai Holst Andersen, aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti, Grænlandi
Dagskrá
*Gildir fyrir eina áskrift. Viðskiptavinir sem taka þessu tilboði fyrir 1. nóvember halda þessum kjörum í eitt ár.
Fáðu þér áskrift í
síma 1817 eða á 365.is
FÁÐU STÖÐ 3
Á BETRA VERÐI
Í HAUST
STÖÐ 3
+ENDALAUST TAL
+1 GB Í GSM
1.990 kr.
til 1. nóvember*
1 4 . o k t ó b e r 2 0 1 5 M I Ð V I k U D A G U r24 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð
Lífið
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
0
-7
4
D
0
1
6
C
0
-7
3
9
4
1
6
C
0
-7
2
5
8
1
6
C
0
-7
1
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
1
3
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K