Nesfréttir - 04.03.1988, Síða 5

Nesfréttir - 04.03.1988, Síða 5
■larfrlnlrl 5 NES Grótta á uppleið - Ungu konurnar sterkastar Handknattleiksmenn Gróttu hafa átt mikilli velgengni að fagna að undanförnu. Hæst ber að sjálfsögðu gengi meistaraflokks karla sem nú standa í harðri baráttu um að komast í 1. deildina. Þeir eiga nokkra leiki eftir sem má segja að allir séu úrslitaleikir. Þeir eru: við HK12. mars í Digranesinu; við Revni úr Sandgerði 22. mars, hann verður á heimavelli; og síðasti leikurinn verður svo í Hafnarfirði 30. mars við Haukana þar úr bæ. um Benedikt sem skyldi leikið um þrisvar; sá sem ynni bikarinn oftar myndi hreppa bikarinn. Arið 1984 var fyrsti leikurinn leikinn. Þá unnu lögreglumennirnir, en árið 1985 og' ’87 vann Grótta bikarinn og er hann því í eigu Gróttu. Foreldrar Benedikts gáfu á sínum tíma fé til uppbyggingar Gróttu sem þeir hyggjast nýta á næstunni í að fjárfesta í bikurum til handa bestu leikmönnum íslandsmótsins ár hvert innan félagsins. Þaö má geta þess að Gróttu-strák- arnir byggja á mjög ungu liði og eiga því alla möguleika á að geta gert stóra hluti í framtíðinni. Til marks um styrk þeirra nú má vísa til bikarleiks strákanna við Víkingslið- ið á dögunum sem fór 29-31 fyrir Víking. Grótta hefði vel getað unnið þann leik hefðu þeir haft örlítið meiri trú á sjálfum sér. Þá er bara um að gera að mæta á Ieikina, sem eftir eru, og hvetja strákana. Konurnar nær ósigrandi Handknattleikskvenmennirnir eru ekki síður sterkir en strákarnir. Raunar hafa þær á síðustu árum staðið fremstar í flokki jafningja í flestum flokkum. í ár hófu Gróttu- stúlkurnar í fyrsta sinn í mörg ár að leika í meistaraflokki. Þær eiga einn- ig góða möguleika á að komast í 1. deildina, en ef ekki, reyna þær ótrauðar á næsta keppnistímabili. Næstu leikir þeirra eru við ÍBV í Vestmannaeyjum 9. mars, við HK 22. mars og við Aftureldingu á Varmá 29. mars. Einum leik hefur verið frestað sem átti að vera við Þór Akureyri. Yngri kvennaflokkarnir standa sig með mikilli prýði: annar, þriðji, fjórði og fimmti flokkur eru allir í úrslitum um íslandsmeistaratitilinn. Þriðji flokkur kvenna hefur verið nær ósigrandi og fer með 2 stig í plús í úrslitatúrneringuna sem verður helgina 25. til 27. mars. Og fimmti flokkurinn hefur unnið 9 síðustu leiki sína og gert eitt jafntefli. Strákarnir í þriðja, fjórða, fimmta og sjötta flokki karla komast ekki í úrslitin þetta árið, en gera bara betur næst. Það má ekki hætta þessari upptalningu án þess að minn- ast á B-meistaraflokk karla eða Old boys eins og þeir eru oftast nefndir. Þeir hafa unnið alla sína leiki nema við Vesturbæingana úr KR og eiga því enn von á að komast í úrslit. Minningarbikarinn í eigu Gróttu Minningarbikarinn eða lögreglu- bikarinn, eins og hann er nefndur, sem lögreglan gaf til minningar um Benedikt Benediktsson, þjálfara hjá Gróttu í nokkur ár og rannsóknar- lögreglumann, er nú í eigu meistara- flokks karla. Tildrögin að þessu eru að árið 1984 gaf lögreglan veglegan bikar, sem fyrr segir, til minningar Gróttustelpurnar sigruðu í næst síðustu umferð Islandsmótsins í handknattleik 3. fl. 1. deildar og gáfu þar með stcrklega til kynna að þær eru til alls vísar í úrslitunum. Þjálfari þeirra er Svavar Magnússon. - AK-mynd HH. Mfl. Gróttu með bikarinn sem þeir unnu sér til eignar og ef að líkum lætur má búast við að þeir hampi fleiri titlum á næstunni.

x

Nesfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.