Nesfréttir - 04.03.1988, Síða 8
uw
FRÉTTIR
Föstudagur 4. mars
BÆJAR
punktar
Á dögunum var samþykkt
laf byggingamefnd bæjarfé-
I lagsins að leyfa eftirtöldum
I aðilum að reisa nýbyggingar
I hér á Seltjamamesi:
Samþykkt var umsókn frá
Úlafi G. Þórðarsyni,
Hlégarði 7, Kópavogi um
byggingu parhúss á lóðinni
nr. 5 við Víkurströnd.
Samþykkt var umsókn
Sigurðar Valdimarssonar,
Lynghaga 3, um byggingu
einbýlishúss á lóðinni nr. 2
við Bollagarða.
TU fyrri umræðu kom
umsókn frá fyrrnefndum
Ólafi G. Þórðarsyni um
byggingu parhúss á lóðinni
nr. 7 við Víkurströnd.
Umsókn frá Bæjarsjóði
Seltjamamess um
byggingu íþróttasalar við
núverandi íþróttahús
samkvæmt uppdráttum
Valdimars Harðarsonar og
Páls Gunnlaugssonar,
arkitekta, var samþykkt að
öðm leyti en því að
eldvamareftirlit gerði
athugasemdir varðandi
reykræstingu og fleira.
» Til síðari umræðu kom
umsókn frá Bergsveini
Jóhannssyni, Álfaskeiði
74, um byggingu tveggja
þríbýlishúsa á lóð úr landi
Sunnuhvols v/Nesveg.
Hún var samþykkt með
þeirrí athugasemd að
byggingarleyfi verði ekki
gefið út íyrr en gengið
hefur verið frá
hæðarsetningu hverfisins í
heild.
Efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar
Skerðing um 4 milljónir
hjá Seltjarnarneskaupstað
- að sögn Sigurgeirs Sigurðssonar bæjarstjóra
og formanns Sambands sveitarfélaga
Mikið hefur verið rætt og ritað um
efnahagsaðgerðir ríkisstjómarinnar
að undanfömu og mikill kurr hefur
verið í sveitarstjómarmönnum
vegna frestunar um eitt ár á áform-
um um breytta verkaskiptingu ríkis
og sveitarfclaga. Þessi breyting hef-
ur í för með sér að ríkisstjómin fær
260 milljónum 'króna meira fé til
ráðstöfunar sem gert var ráð fyrir í
jöfnunarsjóð sveitarfélaga í fjárlög-
um 1988. í framhaldi þessa beindi
ríkisstjórnin því til sveitarfélaga að
Grótta-ÍBV 21-17
Grótta færist skrefi
nær 1. deildinni
hægja á öllum framkvæmdum scm
kostur væri.
Að sögn Sigurgeirs Sigurðssonar
bæjarstjóra og formanns Sambands
sveitarfélaga þýðir þessi skerðing
um 4 milljónir fyrir sveitarfélag á
borð við Seltjarnarneskaupstað og
að sveitarfélög þyrftu að endurskoða
fjárlögin með tílliti til þessa, en á
hverju það bitnaði hér á Seltjarnar-
nesinu yrði ekki ljóst fyrr en fjárlög-
in yrðu endurskoðuð í maí næstkom-
andi.
Verkaskipting ríkis og sveitarfé-
laga, sem þýðir meira sjálfræði sveit-
arfélaganna yfir eigin málum, hefur
tekið um 20 til 25 ár að fá almenni-
legan hljómgrunn því er þetta mikið
áfall fyrir sveitarstjórnarmenn og
einnig sakir þess að ekkert samráð
var haft við þá.
Verkaskiptingin myndi meðal
annars þýða að hvert sveitarfélag
fengi algjör yfirráð yfir málum é
borð við dagsvistarmál og íþrótta-
mál, málefni aldraðra og heimaþjón-
ustu svo eitthvað sé nefnt, en stærstí
málið sem ríkið fengi í sínar hendui
væru sjúkrahúsmálin. í ár fara lí
milljónir í sjúkrahúsmálin hér á
Seltjarnarnesinu.
Guðmundur
Magnússon
þjálfari Gróttu
„Við eigum
góðan séns“
„Úrslitin komu mér í og með
á óvart, en auðvitað hef ég
mikla trú á mínum strákum og
vissi að þeir gætu staðið í
Vestmannaeyingum," sagði
Guðmundur Magnússon þjálf-
ari Gróttu í samtali við NES-
fréttir eftir leikinn við ÍBV.
„Við eigum góða möguleika á
að komast í 1. deild, en það eru
tveir erfiðir leiþir eftir við HK
og Hauka," sagði Guðmundur
ennfremur.
Guðmundur er nú að þjálfa
Gróttu annað tímabilið í röð.
Aðspurður hvort hann yrði líka
næsta keppnistímabil, sagði
hann að ekki væri farið að huga
að því enn. „Ég ætla fyrst að
klára það verkefni sem ég hef
í höndum nú,“ sagði Guð-
mundur.
Guðmundur er einnig að
þjálfa annan flokk karla sem
einnig stendur í harðri baráttu
þessa dagana.
- Sjáíþróttirinniíblaðinu.
Grótta vann sætan sigur yfir ÍBV
í 2. deild íslandsmótsins í handknatt-
leik á miðvikudagskvöldið, með 4
marka mun eða 21-17. Úrslit leiksins
virtust koma mönnum nokkuð á
óvart enda háðu ungu strákarnir
okkar harða baráttu við reyndari og
stærri menn sem verma toppsætið í
2. deildinni. Handboltinn á miðviku-
dagskvöldið einkenndist af mikilli
hörku og voru Vestmannaeyingarnir
tíðum grófir í brotum sínum. Bæði
liðstjórinn og einn leikmaður ÍBV
voru sendir út af vellinum með
rauða spjaldið í farteskinu.
Leikurinn fór ekki vel af stað fyrir
Gróttustrákana. Náði ÍBV þriggja
marka mun í upphafi leiksins, eða
5-2, en það leið ekki á löngu þar til
Grótta náði sér á strik og í hálfleik
var staðan orðin 13-9 Seltirningun-
um í vil. Þegar dró fram yfir miðjan
síðari hálfleik náðu ÍBV að minnka
muninn í 1 mark, en það stóð ekki
lengi og strákarnir unnu sem fyrr
segir með 21 marki gegn 17.
Maður leiksins á miðvikudags-
kvöldið var markvörður Gróttu Sig-
tryggur Albertsson sem varði hvorki
meira né minna en 18skot í leiknum,
hann nánast fyllti út í markið.
Markahæstur leikmanna Gróttu var
Halldór Ingólfsson sem skoraði 8
mörk og Sverrir Sverrisson skoraði
5 mörk. Markahæstur hjá ÍBV var
Sigurbjörn Óskarsson sem skoraði 5
mörk.
Mikil stemmning var á leiknum og
troðfylltu Seltirningar húsið. Það
hafði ekki síður mikið að segja um
endanleg úrslit leiksins.
Grótta er nú einu stigi á eftir ÍBV
með 24 stig, en á eftir koma HK og
Haukar sem Grótta á sinn hvorn
leikinn eftir við.
- Sjá íþróttir inni í blaðinu.
Sigtryggur Albertsson markmaður
Gróttu varði 18 skot þar af 2 víti.