Nesfréttir - 27.08.1988, Page 2

Nesfréttir - 27.08.1988, Page 2
NES 2 um FRETTIR Útgefandi. Prentsmiðjan NES, Hrólfsskálavör 14. 170 Seltjarnarnesi. Sími 611594. Ábyrgðarmaður: Kristján Jóhannsson. Blaðamaður: Guðrún Kristjánsdóttir. Útlit: MERKILEGT Bömin eru mínlr bestu „kritikerar“ Sigríður Gyða sýnir á Kjarvalsstöðum „Það er mér mikill heiður að fá að sýna á Kjarvalsstöðum,“ sagði Sigríður Gyða Sigurðardóttir, Seltirningur, sem sýnir á fyrstu einkasýningu sinni að Kjarvalsstöðum dagana frá 27. ágúst til 11. september. Sigríður er búsett að Mið- Sigurðssonar bæjarstjóra, svona braut og er eiginkona Sigurgeirs fyrir þá sem ekki vita. SKOSMIÐUR - SKINNUN - SKOUN SKÓVERSLUN EIÐISTORGI S . 611944 SKÓR Á ALLA FJÖLSKYLDUNA EINNIG NOKIA STÍGVÉL „Ég hef málað mikið í gegn um tíðina. Þetta er eins og einhver hvöt sem maður ræður ekki við og kemur innan frá,“ sagði Sigríður. „Myndlistin gef- ur mér mjög mikið.“ Sigríður hefur málað allt frá blautu barnsbeini og fór í frí- stundaskólann til Axels Helga- sonar 11 ára gömul. Síðar giftist Sigríður og fór að eiga börn. Og nú, 30 árum ríkari, heldur hún sína 1. einkasýningu. Hún var einn af stofnendum Myndlistarklúbbs Seltjarnar- ness, árið 1971, og á árunum 1972 til 1978 stundaði hún kvöld- skóla Myndlistarskóla Reykja- víkur þar sem ekki minni menn en Hringur Jóhannesson og Þor- björg Höskuldsdóttir kenndu. Aðspurð um hver væru henn- ar helstu viðfangsefni sagði Sig- ríður að sínar myndir væru mikið úr Reykjavík og af fólki. Þetta væru stíliseraðar myndir þar sem hugmyndaflugið réði ferðinni. „Ég á góða að sem hjálpa mér að byggja upp mínar myndir og það eru börnin mín sem eru mínir bestu krítikerar. þau hafa þó ekki lagt sig við að mála en mer sýmst að aótturdóttir mín ætli að lofa góðu. Hún er 7 ára og ég er búin að lofa að kosta hana í myndlistarnám.“ Þessi sýning er þó aldeilis ekki fyrsta opinbera sýning Sigríðar því hún hefur þegar sýnt tvisvar á samsýningum FÍM, árið 1980 og 1982, og haft þar tvö verk í bæði skiptin. Einnig hefur hún sýnt 7 sinnum í Þrastalundi. Hún á einnig heiðurinn af fjór- um kortum sem Svölurnar, upp- gjafarflugfreyjur eins og hún segir sjálf frá, hafa selt til styrkt- ar fjölfötluðum börnum. Sigríður málar olíu- og vatns- litamyndir og mun hún sýna rúmlega 30 myndir á Kjarvals- stöðum, sjö þeirra eru gamlar en hinar eru málaðar á þessu ári. TILKYNNING Drengja- eöa karlmannsúr, fannst á Eiðistorgi u x u-.-i 17. júní Hrafnhildur. Sími626497 Prentsmiðjan Ilrólfskálavör 14, Seltjarnarnesi • Sími 611594 Öll almenn prentun Sparisjóóur Reykjavíkur og nágrennis

x

Nesfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.