Nesfréttir - 27.08.1988, Qupperneq 5

Nesfréttir - 27.08.1988, Qupperneq 5
5 NES Knattspyrna Gróttu: Yngstu og elstu flokkarnir hafa staðið sig best í sumar Knattspyrnan innan Gróttu hefur verið í fullu fjöri í allt sumar og það sem meira er 3ju deildar lið Gróttu hefur staðið sig með ágætum. Þeir komust sem kunnugt er upp í þriðju deildina á síðasta keppnistímabili og eru nú í 3ja sæti 3ju deildar. Sumarið byrjaði mjög vel hjá strákunum og unnu þeir sína fyrstu 5 leiki og voru í efsta sæti. En síðar gekk upp og ofan hjá þeim og Stjarnan er svo til örugg upp í aðra deild. Samkvæmt þessum árangri eiga Gróttu-strákarnir góða möguleika á að komast upp í aðra deildina á næsta ári. Á næsta ári verður grasvöllurinn á Seltjarnarnesi tekinn að fullu í notkun en líklegt er að síðasti leikur sumarsins verði þar haldin um helgina. Aðrir flokkar hafa staðið sig misvel í sumar. Yngsti flokkur- inn, og sá efnilegasti, stóð sig með ágætum á Hi-C Skagamót- inu í knattspyrnu sem haldið var um miðjan ágúst. Á mótinu voru mörg sterkustu lið 6. flokks. í allt voru þar saman komin 13 félög hvert með A og B lið. A-lið Gróttu sigraði 4 leiki af 7 og sigraði lið Týs frá Vest- mannaeyjum í keppni um 7. sætið með 4 mörkum gegn einu. Markahæstu menn A-liðsins voru þeir Magnús Örn Guð- mundsson, sem skoraði 8 mörk, og Pétur Árni Jónsson, sem skoraði 6 mörk. B-lið Gróttu sigraði 3 af 7 leikjum, en vegna óhagstæðrar markatölu kepptu þeir aðeins um 11. sætið og unnu þann leik með yfirburðum, eða 6-0. Markahæstu menn 6-liðsins voru Hallgrímur Steinsson, sem skoraði 4 mörk og Jóhann Frið- rik Haraldsson, sem skoraði 2 mörk. Þjálfari 6. flokks er Lárus Grétarsson. Fyrstu helgina í september munu svo A og B lið Gróttu keppa á UMSK-móti sem haldið verður í Mosfellsbæ ásamt Aftureldingu, Stjörnunni frá Garðabæ og ÍK og Breiðabliki frá Kópavogi. Handboltatímabilið nálgast Nú þegar sól fer að lækka á lofti, fara handknattleiksmenn að undirbúa sig undir átök vetrarins. Áformað er, að yngri fiokkar Gróttu, byrji æfingar að fullum krafti 1. september n.k., en nú þegar hafa nokkrir flokkar hafið æfingar. Mfl. karla, (þeir sem heima eru) hefur æft 6 daga vikunnar allan ágústmánuð, undir stjórn Árna Indriðasonar, verða æfingar ekki færri í vetur, svo menn verða að vera til búnir að leggja mikið á sig vilji þeir vera með í toppbaráttunni. Mikil gleði ríkti í herbúðum mfl. Gróttu s.l. vor, svo mikil reyndar að helmingurinn af lið- inu pantaði sér sólarlandaferð í ágúst og hafa þar af leiðandi ekki hafið æfingar ennþá, sem er mikið kæruleysi af mönnum, sem eru að fara að spila í hinni hörðu keppni 1. deildarinnar. íslandsmótið hefst 2. nóv. svo vonandi verða menn komnir í góða æfingu fyrir þann tíma. Stúlkurnar okkar hafa ekki slegið slöku við í sumar. Fjórar úr Gróttu hafa æft og spilað með unglingalandsliði kvenna og fóru þær m.a. í keppnisferð til Ítalíu í sumar. Taka þær þátt í Atlantic Cup mótinu, sem nú er haldið í tenglsum við Flug- leiðamótið. Þjálfarar hafa verið ráðnir. Var mikið kapp lagt á, að fá reynda og góða þjálfara til starfa og eru þeir eftirtaldir: 2. fl. karla Willum ÞórÁrnason. 3. fl. karla Stefán Arnarson. 4. fl. karla Halldór Ingólfsson. 5. fl. karla Guðmundur Sigfús- son. 6. fl. karla Hildigunnur Hilmars- dóttir. Mfl. og 2. fl. kvenna Kristján Halldórsson. 3. fl. kvennaSvavarMagnússon. 4. fl. kvenna Ólafur Sveinsson. 5. fl. kvenna Hildigunnur Hilm- arsdóttir. Krakkar, nú er bara að bíða og sjá, hvenær þið eigið að mæta á æfingar. Allir fá bolta eða Pumatösku í byrjun, þið komið með skóna. Hittumst hress um mánaðamótin. M.K. A og B lið 6. tlokks Grottu uppsiiui og sæu með lok mótsins. Eins og sjá má stilltu nokkrir stoltir aðstandendur sér upp með afkvæmunum. Lúnir eftir erfiða helgi. Þessa skemmtilegu myndir tók Steinn Jónsson sem er í stjórn Gróttu. A-lið Gróttu sigraði sinn úrslitaleik með 4 mörkum gegn 1 en B-Iiðið með 11 mörkum gegn engu. Þama sjást kapparnir leika einn leikjanna á Skagamótinu.

x

Nesfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.