Vesturbæjarblaðið - 01.07.2008, Blaðsíða 1

Vesturbæjarblaðið - 01.07.2008, Blaðsíða 1
Milli Bauganess og Skildinga- ness er skipulagt grænt svæði skv. aðalskipulagi Reykjavíkur- borgar og fyrir liggur samþykkt frá árinu 2004 hjá Íþrótta- og tomstundaráði Reykjavíkur um að þarna verði sparkvöllur með mörkum. Þetta svæði er miðsvæð- is í hverfinu, það liggur ekki beint að götu og er því öruggt svæði fyrir börnin auk þess sem þar er mikil veðursæld. Á þessu svæði er því kjörið að koma upp sparkvelli að mati margra Skerfirðinga. Þann 19. apríl sl var haldinn fundur á Aflagranda með borgar- stjóra, garðyrkjustjóra og fleirum þar sem engar aðrar ábendingar komu um nýtingu á svæðinu en að þar yrði gerður sparkvöllur. Mörk- in yrðu ekki í fullri stærð svo engin hætta á að vera á því að fullorðnir knattspyrnuáhugamenn séu að spila þarna knattspyrnu langt fram eftir kvöldi. Íbúar í Skerjafirði búa við þær aðstæður að langt er út á KR-svæð- ið og almenningssamgöngur eru slakar þar sem ekki er hægt að taka einn strætisvagn þangað. Í hverfinu er enginn almennilegur fótboltavöllur og búið er að herja á Reykjavíkurborg undanfarin ár um úrbætur, en algjörlega án árang- urs. Eini völlurinn er niðri við sjó, í útjaðri hverfisins við stórt bíla- plan þar sem áður var Shell. Þessi völlur er í mjög slæmu ásigkomu- lagi, moldarflag er við mörkin og grasið lélegt. Að auki er svæðið opið fyrir sjó og því oft vindasamt þarna enda völlurinn nánast aldrei notaður. Margrét Gunnarsdóttir, íbúi við Bauganes í Skerjafirði, bendir á að nýta mætti betur Starhagasvæð- ið og þar væri auðveldlega hægt að koma upp battavelli. Með því gætu krakkar í Skerjafirði, Eggerts- götu, Aragötu og Oddagötu, auk Haganna, Ægissíðu og Faxaskjóls komið saman til að spila fótbolta allan ársins hring. Sjálfsagt væri að æfingasvæði KR væri afgirt en að battavöllurinn væri opinn öll- um til notkunar. Mótmæli og undirskriftarlistar Nýlega mættu starfsmenn Reykja- víkurborgar á svæðið til að tyrfa það og búa það þannig sem best undir að þarna verði sparkvöllur til framtíðar. Þá brá svo við að tveir af nágrönnum svæðisins, Örnólfur Thorsson og Pálmi Jónas- son, mótmæltu þessum áformum og því var gert hlé á framkvæmd- unum. Í kjölfarið var farið af stað með undirskriftarlista til stuðnings framkvæmdunum og náðist í um 70% allra forsvarsmanna íbúða á svæðinu en um 220 íbúðir eru í hverfinu. Greinagerð hefur verið send til borgaryfirvalda. framhald á bls. 5 7. tbl. 11. árg. JÚLÍ 2008Dreift frítt í öll hús í póstnúmer 101 og 107 - bls. 4-5 Viðtal við sr. Hjálmar Jónsson Dómkirkjuprest Íbúar deila um sparkvöll í Skerjafirði Hressir krakkar voru að leika sér á túninu sunnan Starhaga nýverið þegar ljósmyndari Vesturbæjarblað- sins átti þar leið um. borgarblod.is 1 M er ki o g le tu r Merki og letur Grafískt tákn LETUR LITIR Avenir LT Std 35 Light Pantone Black 6 CMYK 50-0-0-100 Merki án slagorðs Merki með slagorði Merki án slagorðs Merki með slagorði ABCDÐEFGHIJKLMNOPQRSTUVXYZÞÆÖ abcdðefghijklmnopqrstuvxyzþæö 123456789!@#$%&/()=*„“?,;:” ABCDÐEFGHIJKLMNOPQRSTUVXYZÞÆÖ abcdðefghijklmnopqrstuvxyzþæö 123456789!@#$%&/()=*„“?,;:” Avenir LT Std 85 Heavy Grafískt tákn ����������������������������������������� St af ræ na p re nt sm ið ja n- 45 38 Fjallalamb á grillið - flott tilboð fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag ...gildir 24. til 27. júlí eða á meðan birgðir endast Úrvals lambafile með fitu 2.498k g

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.