Vesturbæjarblaðið - 01.07.2008, Side 5
5VesturbæjarblaðiðJÚLÍ 2008
Skrúður / Radisson SAS Hótel Saga / Sími: 525 9900 / www.skrudur.is
Fjölbreyttur og girnilegur Skrúður
Nýr matseðill
Fjölbreyttir og spennandi réttir. Komdu og njóttu góðrar stundar yfir góðum mat.
Brunch í hádeginu á sunnudögum
Frábært fyrir alla fjölskylduna. Frítt fyrir börn yngri en 6 ára, 50 % afsláttur fyrir börn 6 -12 ára.
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 70765
skildu. Landsmönnum er að fjölga
en meira með innflutningi fólks en
það fólk er fæst í þjóðkirkjunni,
því það kemur mikið frá löndum
þar sem flestir eru kaþólskir. Þess-
ari staðreynd er ekki haldið á lofti,
heldur er hún rangtúlkuð, Íslend-
ingum fjölgar sem eru ekki í þjóð-
kirkjunni en mjög fáir segja sig úr
henni. Það er hins vegar enginn í
þjóðkirkjunni nema hann vilji það
sjálfur, það kostar ekki nema eitt
símtal að fara úr þjóðkirkjunni.
Það eru hins vegar aðrir söfnuð-
ir sem halda því að fólki að ganga
í þá. Pétur í Óháða söfnuðinum og
Hjörtur Magni í Fríkirkjunni ganga
með eyðublöðin á sér og ota þeim
að fólki í tíma og ótíma, jafnvel fyr-
ir og eftir giftingarathöfn sem far-
ið hefur fram hér í Dómkirkjunni.
Það finnst mér mjög óviðurkvæmi-
legt en það hefur ríkt friður milli
Dómkirkju og Fríkirkju í meira en
100 ár, en nú er allt i einu reynt að
nudda henni og þjóðkirkjunni upp
úr einhverju, sem er bara rugl og
misskilningur. Þjóðkirkjan á ekkert
sökótt við Fríkirkjuna, eða öfugt.
Þjóðkirkjan er ekki löggjafi á
Íslandi. Ef Hirti Magna fríkirkju-
presti finnst löggjafavaldið bregð-
ast í einhverju getur hann farið
dómstólaleiðina. Ég hef oft bent
honum á það en hann svarar því
ekki því hann veit að hann er að
fiska á gruggugu vatni. Litlir söfn-
uðir geta leyft sér þetta en þjóð-
kirkjan vill sinna sínu ábyrgðahlut-
verki og henda sér ekki út í ómerki-
legar deilur.”
Hjálmar segir þjóðkirkjuna afar
umburðalynda og þar megi benda
á samþykkt um samkynhneigða.
Þetta sé eina þjóðkirkjan í heim-
inum sem samþykkir hjónaband
samkynhneigðra. Hjálmar segist
ekki hafa fengið beiðni um að gefa
saman samkynhneigða en hann
mundi taka því vel. Þetta sé sjálf-
sagt skref hjá þjóðkirkjunni en
stóra málið sé ekki aðskilnaður
ríkis og kirkju, frekar að gott sam-
band sé milli þjóna og starfsfólks
kirkjunnar og fólksins í landinu.
- Þú býrð í Norðlingaholtinu. Hef-
ur komið til greina að flytja búferl-
um í nágrenni við Dómkirkjuna?
,,Nei, mér finnst eiginlega að ég
hafi ekki efni á því, þetta er svo
dýrt hverfi, ég þjóna svo dýru
fólki,” segir Hjálmar brosandi.
,,Dómkirkjan er safnaðarkirkja
en hún er líka andlit þjóðkirkjunn-
ar á svo mörgum sviðum, hún er
kirkja forseta Íslands og ríkisstjórn-
arinnar og hún er kirkjan þar sem
svo margt á sér stað í sem samein-
ar þjóðina í trú og menningu. Ég
tel því að ég sé að þjóna á víðara
sviði heldur en bara söfnuði. Það
búa nokkrir prestar í Vesturbæn-
um sem þjóna annars staðar, jafn-
vel ekki í Reykjavík, en ég býr sann-
arlega i Reykjavík. Ég mundi ekki
flytja í annað sveitarfélag.”
- Starf prests er oft mjög anna-
samt. Hefðurðu einhvern tíma fyrir
eitthvað tómstundagaman?
,,Það er hringt í mig á öllum
mögulegum tímum, en þó minna
en var í pólitíkinni og mun minna
en var á Sauðárkróki. Það er sér-
hæfðara að vera prestur í Reykja-
vík en stundum er maður beðinn
um að inna af hendi störf, s.s. jarð-
arfarir, sem maður vill ekki neita,
jafnvel þótt maður sé í sumarfríi.
Golfið er mikið áhugamál og
hentar mér ákaflega vel. Það er í
fyrsta lagi útiveran og síðan félags-
skapurinn og svo reynir maður eitt-
hvað á sig sem er auðvitað gott.
Við fórum um daginn fjórar félag-
ar á Urriðaholtsvöllinn, Þorsteinn
Pálsson, Vilhjálmur Vilhjálmsson,
Friðrik Zophusson og ég, og það
gekk furðanlega. Röðin eftir 18 hol-
ur var Þorsteinn, Hjálmar, Vilhjálm-
ur og Friðrik, en litlu munaði eins
og hjá öðrum meisturum. Við fjór-
menningar höfum leikið nokkrum
sinnum í sumar, einkum á Korpu.
Nú var komið að mér að bjóða á
heimavöllinn minn, Urriðavöll. En
veðrið var ekki það besta, og því
varð þessi vísa til við upphaf leiks:
Yfir vofa skúraský,
skín þó yfir grundum.
Þorsteinn hleður höggin í
og hittir boltann stundum.
Fljótlega var Þorsteinn farinn að
standa sig svo vel að nauðsynlegt
var, sannleikans vegna, að breyta
vísunni:
Yfir vofa skúraský
skelfingu lostnum gestum.
Þorsteinn hleður höggin í
og hittir úr þeim flestum.
Vilhjálmur átti sín augnablik.
Upphafshöggin voru sum hver
mjög löng, stundum fóru þau eitt-
hvað afsíðis, stundum ekki. Sum-
ir eru bestir undir pressu og það
sannaðist hér:
Einbeittur inn á teig
og ábyrgur Vilhjálmur steig.
Ef slæsið og húkkið
voru slæm fyrir lúkkið
þá tók hann þrumufleyg.
Ég var eldheitur áhugamaður
um fjallgöngur en það er einfald-
lega miklu meira gaman í golfi með
góðum félögum. Ég fylgist vel með
íþróttum, sérstaklega knattspyrnu,
og áður fyrr mætti maður á völlinn
til að fylgjast með börnunum, og
nú fer maður til að fylgjast með
barnabörnunum á íþróttavellin-
um. Það er svo dýrmætt að sinna
afahlutverkinu og vera sæmilegur
afi.
Svo hef ég lengi haft áhuga á
ljóðagerð og nokkrir vinir mínir
hafa samið lög svo út hefur orðið
nokkrir sálmar. Þannig hafa orðið
til minningarljóð, ljóð við hjóna-
vígslur eða á öðrum gleðistundum,
en vænst þykir mér alltaf um skírn-
arkveðjurnar sem ég sendi skírn-
arbörnunum af því að það er bæn
sem ég orða eða bý til í athöfninni
eða í framhaldi af henni. Það er
nokkuð sem mann langar til að
gefa börnunum.
Mér finnst ég vera orðinn svolít-
ill prestur þegar maður hittir full-
orðið fólk sem kann þessa bæn
sem ég færði þeim í bernsku,” seg-
ir sr. Hjálmar Jónsson, sóknarprest-
ur í Dómkirkjunni.Glæsileg sveifla hjá Hjálmari á upphafsteig.
Það vekur nokkra athygli að á fundi borgarráðs 3. júlí sl. létu full-
trúar Samfylkingar, VG og Framsóknarflokks bóka fyrirspurn um
framkvæmdir vegna sparkvallar í Skerjafirði, hver bæri ábyrgð og
hvort þær hefðu verið grenndarkynntar, þrátt fyrir samþykkt í aðal-
skipulagi Reykjavíkurborgar.
Það verður hins vegar fróðlegt að fylgjast með framgangi mála,
og hvort börnin í Skerjafirði fá sparkvöll, eða hvort svæðið verður
nýtt á annan hátt.
Íbúar deila
Sparkvallarsvæðið, sem hefur að mestu verið tyrft.
framhald af forsíðu