Vesturbæjarblaðið - 01.07.2008, Qupperneq 16

Vesturbæjarblaðið - 01.07.2008, Qupperneq 16
16 Vesturbæjarblaðið JÚLÍ 2008 Plús Arkitektar báru sigur úr býtum í samkeppni um hönnun Listaháskóla Íslands á Frakka- stígsreitnum. Vonast er til þess að skólinn hefji starfsemi sína í byggingunni haustið 2011. Um var að ræða eina flóknustu hönn- unarsamkeppni sem hér hefur verið haldin en þarfagreining- in var afar umfangsmikil, enda lóðin á afar viðkvæmum stað í hjarta Reykjavíkur. Þá er mik- ill landhalli á lóðinni sem gerir þetta enn flóknara auk þess sem mikill lofthæðarmunur er milli rýma. Listaháskólinn verður um 13.500 fermetrar m á reitnum sjálf- um auk 2.000 fermetra bygging- ar norðan Hverfisgötu en húsin verða tengd saman með undir- göngum. Á lóðinni standa bygging- ar við Laugaveg 41, 43 og 45. Til stendur að flytja burt húsið nr. 45, sem er bárujárnsklætt timburhús, en rífa nr. 43, þar sem Vínberið er til húsa. Fyrir liggur tillaga um frið- un Laugavegar 41 og tóku Plús Arkitektar tillit til þess og sniðu nýbygginguna í kringum húsið. Á horni Laugavegar og Frakka- stígs verður sýningarsalur þar sem hægt verður að sýna mynd- list, hönnun og arkitektúr. Suður- hlið salarins verður úr stórum gluggum sem hægt verð- ur að opna út á götu. Á Laugavegi 41 er gert ráð fyrir kaffihúsi sem hefur hurð út úr gaflinum og á torgið sem er aðalinngang- ur hússins. Í aðalanddyr- inu er opið rými baðað dagsbirtu og þaðan má sjá meira og minna alla starf- semi skólans á efri hæðun- um. Niðri verður listamið- stöð, opin almenningi. Að undanförnu hefur eldri borgurum á höfuðborgarsvæð- inu verið boðið í heimsókn til Toyota í Kópavogi. Þar hefur Magnús Kristinsson, stjórnarfor- maður Toyota á Íslandi og starfs- fólk Toyota í Kópavogi tekið á móti hópnum og boðið gest- um að hlusta á fyrirlestur Jóns Björns Skúlasonar, framkvæmda- stjóra Nýorku um áhrif koltvísý- ings á umhverfið. Jón fjallar í fyrirlestrinum um lausnir sem verið er að þróa til að draga úr koltvísýringi í andrúms- loftinu og segir frá rafmagnsbíl- um, tvinnbílum og vetnisbílum. Fjörlegar umræður hafa spunnist í hópnum að fyrirlestrinum lokn- um og hefur Jón svarað fjölda fyr- irspurna. Það er því greinilegt er að eldri borgarar hafa ekki minni áhuga á umhverfismálum en þeir sem yngri eru. Miðvikudaginn 16. júlí sóttu eldri borgarar frá félagsmiðstöð- inni Aflagranda og frá félagsmið- stöðinni Hraunbæ Toyota heim. Að fyrirlestrinum loknum þáðu gestir kaffiveitingar. Meðfylgjandi myndir voru teknar við það til- efni. ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Þorsteinn Elísson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta Unnu samkeppni um hönnun Lista- háskóla á Frakkastígsreitnum Listaháskólinn verður glæsileg bygging sem fellur vel inn í umhverfið og verður listalífi miðborgar Reykjavíkur til verulegar framdráttar. Horft eftir Laugarveginum. Eldri borgarar heimsækja Toyota borgarblod.is Hver er ég? Hvaðan kem ég? Hefur lífið einhvern sérstakan tilgang? Hvað verður um mig? Hver var Jesús? Þessar spurning- ar og hugsanleg svör líka verða á dagskrá í sumarnámskeiði fermingarbarna Neskirkju, sem nú er farið að skrá í. Námskeiðið hefst sunnudaginn 17. ágúst og stendur í eina viku. Þrettán - fjórtán ára börn standa gjarnan frammi fyrir spurningum sem þessum: Ætlar þú að fermast næsta vor? Ertu í vafa um hvort þú ætlir að ferm- ast? Við báðum þessum spurn- ingum er bent á að þátttaka í líflegu og skemmtilegu ferming- arnámskeiði getur hjálpað til við taka ákvörðun um stefnu. Á námskeiðinu er lögð áhersla á hefðbundna fræðslu, leik og upplifun. Síðasta atriðið skipt- ir ekki minnstu máli því upplif- un og bein þátttaka skilar oft mestum árangri. Byggt er á hug- myndafræði sem nefna má lær- dóm í verki. Í fermingarfræðslunni verður fjallað um grundvallaratriði krist- innar trúar og menningararfinn sem íslensk þjóð hefur haldið í heiðri í þúsund ár. Ræddar verða tilvistarspurningar eins og t.d.: • Hver er ég? • Hvaðan kem ég? • Hefur lífið einhvern sérstak- an tilgang? • Hvað verður um mig? • Hver var Jesús? • Hvaða máli skiptir Jesús og kenningar hans nú á dögum? • Hvert er hlutverk kirkju og kristinnar trúar í samtímanum? • Hvers vegna að lifa trúarlífi? • Hvers vegna játar stór hluti mannkyns trú á Krist? Stuðst verður við Biblíuna, verkefnabók og kvikmynd um ævi Jesú. Leyst verða ýmis verk- efni, farið verður í svonefnt ljós- myndarallý og fleira. Nánari upp- lýsingar eru á heimasíðu kirkj- unnar: http://www.neskirkja. is Skráning er í Neskirkju og síminn er 511-1560. Skemmtilegt tími er framundan hjá fermingar- börnum og starfsfólki Neskirkju. Fermingarnámskeið Neskirkju í ágúst Reykjavík Art Gallery opnar á Skúlagötu Þann 6. júní sl. var opnaður nýr sýningarsalur að Skúlagötu 30 sem heitir Reykjavík Art Gall- ery. Galleríið hefur tekið í notk- un átta sýningarsali fyrir minni og stærri sýningar. Meðal þeirra listamanna sem kynntir voru á þessari fyrstu sýningu í Reykja- vík Art Gallery eru Árni Rúnar Sverrisson, Hulda Vilhjálmsdótt- ir, Magnús Tómasson, Ólafur Lár- usson, Ómar Stefánsson, Pétur Halldórsson, Pétur Már Péturs- son, Stefán Boulter og Tolli. Meðal verka á sýningunni voru íslenskir peningar í kistli sem fengu loft frá öndunarvél sem gerði það að verkum að pening- arnir voru sífellt á hreyfingu. En hvort um listaverk er að ræða verður hver og einn að dæma um. Krónunar í verki Bergs Thorberg eru aðframkomnar. Þær liggja í svörtum kistli sínum og þurfa önd- unarvél til að halda lífi. Krónurnar eru dauðþreyttar eftir gengisfall síðustu mánuða, eftir útrásarævin- týrin, eftir kaupæðið heima fyrir, eftir endalaust kapphlaupið við evruna, dollarann og hinar krón- urnar. Myndverk eftir Huldu Vilhjálmsdóttur á sýningunni. Eldri borgarar frá félagsmiðstöðinni Aflagranda og Hraunbæ þáðu veitingar að loknum fyrirlestri. Glæsilegt útsýni frá bókasafninu út á Laugarveginn.

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.