Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 4

Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 4
Í húsi við Hringbraut 49, sem margir eldri Vesturbæingar kannast við sem verslun Silla & Valda, en á seinni árum í mörg- um tilfellum sjoppa, er í dag rekið fyrirtæki sem ber nafnið Klæðskerahöllin og er í eigu Berglindar Magnúsdóttur kjóla- og klæðskerameistara. Áður en Klæðskerahöllin hóf þarna starf- semi var í húsinu listagallerí. Starfsemin hefur verið þarna í liðlega eitt ár, en var áður stað- sett á Laugavegi. Berglind seg- ir staðsetninguna frábæra, nú hafi þær auk þess útsýni yfir fjölbreytt mannlíf en áður var starfsemin í gluggalausum kjall- ara. Það er ekki óalgengt að fólk heilsi upp á þær og vilji fræðast um hvaða starfsemi sé í húsinu. Berglind segir að í Klæðskera- höllinni sé veitt öll þjónusta sem viðkemur saumaskap, en allir starfsmennirnir eru iðnmennt- aðir. Starfsemin fellst í sérsaum á fötum fyrir einstaklinga og fyr- irtæki, en einnig eru tekin föt til breytinga og lagfæringa. - Er stór hluti starfseminnar lag- færingar og breytingar á fötum? “Það er alltaf að aukast, margir kaupa sér dýr og vönduð föt sem þarf að aðlaga að einstaklingnum svo þau fari betur og þegar þau eldast vill fólk lengja líftíma þeir- ra með viðhaldi og breytingum. Svo færist það í aukana að fólk hreinlega kann ekki að breyta eða lagfæra fatnað, jafnvel kann ekki að festa á eina tölu. Það er t.d. orðið mun sjaldgæfara að konur eigi saumavélar og því er því ein- faldlega vandi á höndum ef það vill gera einhverjar breytingar á fatnaði. Þess eru oft dæmi að fólk kaupir föt sem það passar ekki fullkomlega í og þá erum við fengnar til að laga þau. Við höfum þekkinguna sem til þarf til þess að þau fari eins vel og nokkurs er kostur,” segir Berglind Magnús- dóttir. Föt við sérstök tækifæri - Er meira um það að til ykkar kemur fólk sem er ekki “venjulegt” í laginu, þ.e. feitlagið eða þannig vaxið að það á erfitt með að finna á sig passlegan klæðnað og biður um að að láta sérsauma á sig? “Nei, ekkert frekar, en almennt er það að aukast að fólk láti sér- sauma á sig föt. Margir koma til að láta sauma á sig föt fyrir sér- stök tækifæri, eins og t.d. brúð- kaup, afmæli og önnur hátíðleg tækifæri. Ferlið er þannig að mál eru tekin af viðskiptavininum sem síðan er teiknað snið eftir. Síðan er sniðið mátað í léreft. Sniðið er aðlagað að manneskjunni og fötin síðan saumuð. Þeir sem láta einu sinni sauma á sig koma flestir aftur. Klæðskerasniðin fatnaður fæst ekki út í búð. Klæðskerasnið- in flík er einstök flík.” - Eru þetta eingöngu konur sem eru ykkar viðskiptavinir? “Alls ekki, karlmenn koma líka þó það sé í mun minna mæli. Karlmenn láta sauma á jakkaföt, smókingföt og kjólföt.” Jakkaföt á kött - Hvað er það óvenjulegasta sem þið hafið verið beðnar um að sauma? “Eitt af því er 260 sængur, eins konar “rúllupylsa,” í tengslum við upptöku á erlendri auglýsingu. Það voru allir naktir í auglýsing- unni sem var tekin upp víðs veg- ar um landið og sængurnar voru saumaðar til að halda hita á fólk- inu. Það er ekki gott vera nakin út í íslenskri náttúru, allra síst á köldu haustkvöldi. Það óvenjulegasta er örugglega jakkaföt á kött sem notað var í myndband hjá Björk Guðmunds- dóttur söngkonu. Við tókum mát af gerviketti sem var svipaður af stærð og kötturinn sem kom fram í myndbandinu. Við sáum hins vegar köttinn aldrei fyrr en í myndbandinu, en það var þar ekki annað að sjá en jakkafötin hefðu smellpassað á hann!” Berglind segir að enn gæti nokk- uð “saumakonuímyndarinnar” í þessu fagi, þetta eigi helst ekki að kosta neitt. Þetta er fjögurra ára nám í Iðnskólanum í Reykjavík auk meistaranáms og auðvitað eigi að borga fyrir þessa vinnu eins og aðra vinnu iðnlærðs fólks. Mikil vinna liggur að baki hverri flík. Berglind segir alla velkomna að kíkja við og skoða starfssem- ina. 4 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2006 Í Klæðskerahöllinni við Hringbraut eru sérsaumuð föt á dömur og herra Starfsmenn Klæðskerahallarinnar. Fjærst stendur eigandinn Berglind Magnúsdóttir, við hlið hennar Laufey Jónsdóttir en nær Lilja Ósk Björnsdóttir.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.