Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Page 16

Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Page 16
Ágústa Pétursdóttir Snæland er fædd í Tjarnargötu 14 þann 19. febrúar 1915, eða þegar fyrri heimstyrjöldin stóð sem hæst. Hún er að mestu alin upp í Tún- götu 38, við hornið á Unnarstíg, en það hús keyptu foreldrar henn- ar 1918. Hún ólst upp hjá hjá for- eldrum sínum, Pétri Halldórssyni bæjarstjóra og konu hans, Ólöfu Björnsdóttur. Pétur Halldórsson sat á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokk- inn frá 1932 til 1940, í bæjarstjórn Reykjavíkur frá 1930 til 1938 og bæjarstjóri frá 1935 til æviloka 1940. Pétur keypti Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar í Reykja- vík 1909 og rak hana til æviloka og var stórtemplar IOGT 1917- 1922. Systkini Ágústu voru Björn, sem var elstur, síðan kom Ágústa, þá Halldór sem varð landsþekkt- ur teiknari og loks Kristjana. Ágústa bjó í Túngötu 38 í hart- nær sjö áratugi, eða þar til hún varð sjötug. Eftir það bjó sonur hennar í húsinu um skeið þar til það var selt. Ágústa tók við hús- inu þegar faðir hennar dó, en þá var hún nýgift í annað sinn. Móðir hennar bjó áfram hjá henni um skeið. Ágústa segir að hún hafi alla tíð búið í Vesturbænum, aldrei farið austur fyrir læk. Þegar hún varð sjötug byggði hún í Skilding- arnesinu með syni sínum og þar bjó hún í ein átta ár. Hún segir að hún hafi aldrei búið lengur frá mið- bænum en þann tíma sem hún var í Skerjafirðinum. Þá flutti hún á dvalarheimilið Grund, þ.e. endað hinu megin við Landakotstúnið. Hún sé ákaflega sátt við þá dvöl, það séu raunar forréttindi að fá að búa á Grund. Ágústa á fjóra syni, sem sumir búa eigi langt frá henni, m.a. í Vest- urbænum og á Seltjarnarnesi. “Þegar ég fer í göngutúra hér um nágrennið man ég hver bjó í hverju húsi Göngutúrarnir eru ekki orðnir langir, meira svona stuttir hring- ir í næsta ágrenni við Grund eða upp á Landakotstúnið. Það er mjög notarlegt að setjast þar á bekk og rifja upp gamlar endurminningar, bara “slökkva” á sér og hverfa í huganum marga áratugi aftur í tím- anum.” Hestar á túninu við Túngötu - Þegar þú ert að alast upp á Tún- götunni fyrir 90 árum hefur Reykja- vík litið verulega öðru vísi út? “Það er ekki hægt að bera það saman. T.d. hét Túngatan þessu nafni vegna þess að voru tún beggja vegna hennar allt frá Garða- stræti og vestur úr. Á Garðastræt- ishorninu stóð Thoroddsenshúsið þar sem Þórður Thoroddsen lækn- ir bjó og síðan ekkert hús fyrr en komið var að Landakoti. Á þessari leið var yfirleitt að finna hesta sem notaðir voru bæði til útreiða og dráttar. En kannski er mesta breytingin sú hvað ég er orðin ein innan um allt þetta fólk. Áður þekkti mað- ur alla, og flesta með nafni, enda gengu allir í sama skóla. Nú þekki maður stundum ekki dögum sam- an eitt einasta andlit þegar mað- ur fer niður í bæ. Nú er það líka þannig að margir Reykvíkingar eru einhvers staðar að af landsbyggð- inni, og mér finnst það gremjulegt að sumum finnst það eitthvað betra. Er maður eitthvað betri ef maður er einhvers staðar að? Ég er úr Kvosinni og er stolt af því. Ég er líka stolt af Esjunni, hún er einkenni Reykjavíkur, eins og hún liggi fram á lappirnar og verndi okkur. Ég klappa henni oft í hug- anum. Ég gekk oft á Esjuna á fyrri árum og við vinkonurnar sem vor- um saman í gagnfræðaskóla fórum oft með tjald upp að Mógilsá og vorum þar um helgi. Vinkonurnar voru Helga Kalmann sem seinna fór í sendiráðið í Frakklandi, Anna Claessen, dóttir Gunnlaugs Claes- sen læknis sem giftist til Danmerk- ur, Eyja Arnalds og svo hún Nanna sem seinna varð mikill kommún- istaleiðtogi. Ferðalagið hófst með því að við fórum með dótið okkar niður að mjólkurstöðinni í Hafnar- stræti, þar stoppuðu allir vörubíl- arnir sem fóru með mjólkurbrús- ana til bænda og sóttu mjólk í þá. Við fengum far með vörubílnum sem fór upp á Kjalarnes, sátum aft- an á honum.” Tennisdrottning Á veturna var Ágústa mikið á skíðum og í leikfimi hjá Jóni Þor- steinssyni í sérflokki ásamt fleiri stelpum sem sýndu víða. Eitt sinn var Ásmundur Sveinsson mynd- höggvari að fylgjast með þeim og eftir sýninguna spurði hann Ágústu hvort hún vildi vera ekki vera mód- el að einni mynd, en hún neitaði. “Ég var einnig í tennis, og tókst að verða Tennisdrottning Íslands, en keppt var á svæði á Melavellin- um, sunnan við knattspyrnuvöll- 16 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2006 Stór pizza með 2 áleggjum og brauðstangir 1.590,- kr. Stór pizza m 3 áleggjum 1.590,- kr. Stór pizza 3 áleggjum, stór skammtur af brauðstöngum og 2.l gos 1.890,- kr. Upplagt fyrir fyrirtæki, hópa, saumaklúbba og partí! 3 stórar pizzur með 2 áleggjum 3900.kr 5 stórar pizzur með 2 áleggjum 5900.kr Sæktu Fáðu sent Tilboð sem bragð er að! Fyrsti íslenski auglýsingateiknarinn Tennisdrottningin Ágústa ásamt Frissa í Ási, bróður Gísla sem stofnaði Grund. Fjölskyldan á Túngötu 38. Pétur Halldórsson og Ólöf Björnsdóttir ásamt börnum sínum. Ágústa Pétursdóttir Snæland býr á Litlu-Grund, og lætur vel af sér. - Ágústa Pétursdóttir Snæland, dóttir Péturs Halldórssonar fyrrverandi bæjarstjóra í Reykjavík

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.