Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Side 23
23VesturbæjarblaðiðDESEMBER 2006
KR-SÍÐAN
GETRAUNANÚMER
KR ER 107
Evrópukeppni á næsta ári
Ég vill byrja með að þakka ykk-
ur öllum fyrir góðan stuðning
við liðið á síðastliðnu keppnis-
tímabili. Að mínu mati rættist
nokkuð vel úr tímabilinu. Annað
sæti í deildinni og bikarúrslit
er kannski ekki svo slæmt, en
samt finnst mér eins og að við
hefðum átt að gera ennþá bet-
ur. Mér fannst við ekki ná þeim
úrslitum úr leikjunum í vor sem
við áttum skilið miðað við gang
flestra leikjanna, en með því að
gera nokkrar breytingar á leikað-
ferð liðsins þá snérist þetta allt
saman hægt og sígandi okkur í
vil og var seinni hluti mótsins
frábær. Við töpuðum ekki leik
í deildinni frá því um miðjan
júlí þegar við töpuðum fyrir ÍA
á heimavelli í einum besta leik
sumarsins.
Gleði okkar yfir jafnteflinu við
Val í síðasta leiknum var gífurleg,
þar sem við náðum að tryggja okk-
ur annað sætið í deildinni og þar
með Evrópukeppni á næsta ári,
sem var eitt af markmiðum liðsins
fyrir tímabilið.
Mestu vonbrigði tímabilsins
voru í bikarúrslitaleiknum, þar
sem við vorum langt frá því að
sýna hvað í okkur bjó. Það virkaði
hreinlega eins og að við værum
ekki með í leiknum og er það mjög
svekkjandi svona eftirá, að hugsa
til þess að við skildum á einhvern
hátt glopra þessu frábæra tæki-
færi til að ná okkur í titil.
Leikmannamál
Það er eðlilega mikið rætt um
leikmannamál á þessum tíma árs
og leikmenn bæði koma og fara.
Nokkrir leikmenn úr hópnum í ár
verða ekki með okkur næsta ár og
eru misjafnar ástæður fyrir því.
- Gunnar Einarsson var með
samning sem rann út eftir tímabil-
ið og var ákveðið að framlengja
honum ekki og hefur Gunnar nú
gengið til liðs við Val.
- Mario Cizmek var með samn-
ing sem rann út eftir tímabilið og
var ákveðið að framlengja honum
ekki.
- Sölvi Davíðsson var með samn-
ing sem lauk að tímabili loknu.
Hann var mikið á bekknum í sum-
ar og vildi þar af leiðandi reyna
fyrir sér annarsstaðar þar sem
hann fengi að spila meira.
- Sölvi Sturluson var með samn-
ing við KR út 2007, en þar sem
hann spilaði ekki mikið í ár vildi
hann einnig reyna fyrir sér annars-
staðar og hefur hann nú gengið til
liðs við Fjölni ásamt Ásgeiri Aroni
Ásgeirssyni.
- Gunnar Kristjánsson var með
samning sem rann út eftir tíma-
bilið og vildi ég gjarnan fram-
lengja þeim samningi og vorum
við búnir að funda nokkuð í því
sambandi, en Gunnar vildi heldur
reyna fyrir sér hjá Víkingi þar sem
hann taldi líkur á að hann fengi
að spila meira þar heldur en hjá
okkur.
Ég vill þakka þeim öllum fyrir
þann tíma sem við höfum verið
saman í KR og óska þeim öllum
góðs gengis í þeim liðum sem þeir
koma til með að spila með.
Ef litið er yfir þann hóp sem
byrjaði undirbúning síðasta leik-
tímabils þá eru tíu leikmenn horfn-
ir úr þeim hóp, þeir eru :
Bjarni Þorsteinsson, Rogve
Jacobsen, Bjarki Gunnlaugsson,
Gunnar Einarsson, Garðar Jóhann-
esson, Sölvi Davíðsson, Mario Ciz-
mek, Gunnar Kristjánsson, Sölvi
Sturluson og Ásgeir Aron Ásgeirs-
son.
Nýir leikmenn eru Pétur H Mart-
einsson frá Hammarby í Svíþjóð,
Jóhann Þórhallsson og Óskar
Örn Hauksson frá Grindavík, Atli
Jóhannsson frá ÍBV og Stefán Logi
Magnússon frá KS á Siglufirði.
Allir hafa þeir nefnt að ástæð-
an fyrir því að þeir völdu KR var
að hér væru spennandi verkefni
framundan og þeim fannst mjög
áhugavert það sem við erum
að gera knattspyrnulega séð og
síðast en ekki síst vilja þeir allir
vinna titla.
Ég vil óska öllum okkar nýju leik-
mönnum hjartanlega velkomna til
KR og ég er viss um að þeir eiga
eftir að vera ánægðir hjá okkur.
Þetta eru miklar breytingar á
hópnum á einu ári og það er auð-
vitað ekki æskilegt að svo stórar
breytingar séu á hverju ári.
Ég sé og heyri að það er mikið
talað um að nú sé KR aftur byrjað
að sækja leikmenn og samtímis er
verið að tala um hvernig þessu sé
farið með ungu leikmennina okk-
ar sem áttu að fá möguleika á að
spreyta sig. Í ár verðum við með
22 til 23 leikmenn í meistaraflokks-
hópnum og með þeim aðgerðum
og breytingum sem við erum að
gera núna á leikmannahópnum
þá mun 14-15 manna hópur okk-
ar styrkjast talsvert, en um leið
munu opnast möguleikar fyrir
fleiri unga og efnilega leikmenn
til að fá að spreyta sig þegar þeir
þykja nógu góðir til þess.
Við vorum með marga unga leik-
menn í hópnum á nýloknu keppn-
istímabili og það voru ekki mörg
lið sem spiluðu með jafn ungt lið
og við, en núna eru þeir orðnir
ennþá fleiri og vil ég gjarnan telja
þá upp svo að allir geri sér grein
fyrir hverjir þeir voru: Vigfús A.
Josepsson, Guðmund Reyni Gunn-
arsson, Skúli Jón Friðgeirsson,
Guðmund Pétursson, Atli Jónas-
son, Gunnar Kristjánsson og Sölvi
Sturluson, en í viðbót mætti hæg-
lega telja leikmenn eins og Krist-
inn Magnússon, Sölva Davíðsson,
Tryggva Bjarnason og Sigmund
Kristjánsson sem eru ekki nema
rétt rúmlega tvítugir. Eins og hægt
er að sjá af þessum lista þá held
ég að óhætt sé að segja að við
séum að gera allt sem hægt er til
að gefa ungu strákunum mögu-
leika til að ná árangri og nú þeg-
ar Akademían okkar er kominn
í gang og gengur mjög vel, þá
munu ennþá fleiri ungir strákar
fá að æfa með meistaraflokknum
í vetur.
Þá vil ég einnig lýsa ánægju
minni með að nokkrir af þeim leik-
mönnum sem voru með samninga
út tímabilið en við vildum gjarnan
halda hjá okkur lengur, völdu að
framlengja samninga sína. Þeir
eru Kristján Finnbogason, Sigþór
Júliusson og Ágúst Gylfason og
að auki er verið að vinna í því að
halda Guðmundi Péturssyni hjá
okkur áfram.
Í viðbót við þennan hóp eru
nokkrir ungir KR-ingar sem æfa
með meistaraflokki, sumir þess-
ara stráka eru að æfa fast með
okkur og aðrir að hluta til. Þeir
eru Tómas Agnarsson, Ásgeir Örn
Ólafsson, Björn Jakob Magnússon
og Eggert Rafn Einarsson.
Undirbúningur á fullt
Undirbúningur næsta leiktíma-
bils er kominn á fullt og er þetta
allt með mjög svipuðum hætti
og síðastliðinn vetur, sem ég var
mjög ánægður með. Þetta er eðli-
lega gífurlegt álag fyrir stráka sem
eru í fullri vinnu með þessu, en ég
þekki ekki neinar aðrar leiðir til
að ná árangri en að æfa mikið og
vel, þ.e.a.s. að gera hlutina rétt. Í
framtíðinni er þetta mikið spurn-
ing um rétt hugarfar og vilja til
að leggja þetta á sig og þá kemur
árangurinn.
Æfingabúðir verða á La Manga
á Spáni eins og síðastliðinn vetur,
þar sem við munum taka þátt í
öflugu móti þar sem við munum
fá frábæra æfingaleiki við góðar
aðstæður, sem gefa okkur mikið.
Keppnin verður á bilinu 10-24
febrúar og þau lið sem verða í
þessari keppni verða Rósenborg,
Brann, Valerengen og Lilleström
frá Noregi, auk tveggja liða frá
Rrússlandi, Zenith St. Petersburg
og Rubin Kazan og svo eitt lið frá
Úkraínu sem heitir Metallist.
Spilað verður í tveimur riðlum
þar sem fyrsti leikur okkar er
gegn Noregsmeisturunum í Rósen-
borg.
Framundan er mjög skemmti-
legt tímabil þar sem við verðum
að standa saman til að ná settum
markmiðum, en það er að gera
betur en á síðastliðnu tímabili.
Það skiptir okkur gríðarlega miklu
máli að hafa þann stuðning sem
þið KR ingar sýndu okkur í sumar
og saman getum við lagt grunn-
inn að skemmtilegu sumri á árinu
2007.
Ég hef ætlað mér að halda
opinn fund með stuðningmönnum
okkar en vegna anna ekki komið
honum fyrir. Ég mun halda þenn-
an fund strax á nýju ári þar sem
farið verður yfir verkefni sumars-
ins, hópinn og annað efni tengt
næsta keppnistímabili. Hlakka til
að sjá ykkur.
Allir sem einn .... áfram KR!
Teitur
Sundkona ársins
úr röðum KR-inga
Sterkur hópur KR sundmanna á
aldrinum 13-15 ára hefur unnið til
margra verðlauna í sínum aldur-
flokki á þessu ári. KR telpnaveit-
in staðfesti þennan árangur sinn
á Íslandsmótinu sem fram fór i
Laugardal í lok nóvembermánað-
ar þegar sveitin setti Íslandsmet
i telpnaflokki 13- 14 ára í 4 x 50
m skriðsundi á tímanum 1.55.86
Sveitina skipuðu Elín Melgar,
Helga Valgerður Gunnarsdóttir,
Sif Pétursdóttir og Arna Margrét
Ægisdóttir. KR-telpnasveitin bætti
einnig telpnametið í 4 x 50 m fjór-
sundi þegar hún synti á tíman-
um 2.08.62. Eldra metið átti ÍRB,
2.11.80 sek., sett 2005.
Hrefna Hörn efnilegust
og Ragnheiður sundkona
ársins
Sunddeild KR fékk tvær góðar
viðurkenningar á uppskeruhátíð
Sundsambands Íslands sem fram
fór í lok Íslandsmótsins. Hrefna
Hörn Leifsdóttir var kjörin efnileg-
asta sundkona Íslands og Ragn-
heiður Ragnardóttir var útnefnd
Sundkona ársins 2006 fyrir stiga-
hæsta sund íslenkra sundkvenna
á tímabilinu.
Ragnheiður í úrslitum og
með 3 Íslandsmet á EM
Fjórir íslenskir sundmenn tóku
þátt í Evrópumeistaramótinu i
sundi í Finnlandi 7 - 10 desember.
Ragnheiður Ragnarsdóttir setti
Íslandsmet í 50 m og 100 m skrið-
sundi og 100 m fjórsundi. Ragn-
heiður náði inn 16 manna úrslit í
50 m skriðsundi á tímanum 25.59
sek.
Hrefna Hörn Leifsdóttir á
NMU
Norðurlandamót unglinga í
sundi fór fram í Finnlandi 2. - 3.
desember. Hrefna Hörn Leifsdótt-
ir, 14 ára, var ein þeirra 7 íslensku
sundmanna sem tóku þátt.
Hrefna synti 50 m, 100 m og 200 m
baksund á mótinu og náði 8. sæti
þegar hún setti Reykjavikurmet í
telpnaflokki á tímanum 35.21 sek.
Viðurkenningar til ungra
sundmanna
Yngstu sundmenn félagsins hitt-
ast reglulega i KR heimilinu þar
sem veittar eru viðurkenningar
fyrir góða ástundun og framfarir
i hverjum hópi fyrir sig. Afhentur
er farandbikar fyrir 1. sætið auk
þess sem sundmenn i 2 og 3 sæti
fá viðurkenningaskjal fyrir frammi-
stöðuna.
KR rekur sundskóla fyrir börn
á aldrinum 4 -7 ára, þar sem
kennsla fer fram tvisvar i viku í
Austurbæjarskóla og Sundhöll-
inni. Í hverjum hóp eru 8 - 10
nemendur sem læra réttu sund-
tökin undir handleiðslu tveggja
kennara. Skráning á vorönn fer
fram hjá sund@kr.is eða í síma
690 - 6500. Gjald fyrir vorönnina
er 14.800 krónur.
Árlegt stjörnuljósasund KR
og Vesturbæjarlaugar fer fram
fimmtudaginn 28. desember kl.
17.00. Þá hittast sundmenn, for-
eldrar og laugargestir og synda í
lauginni með stjörnuljós i hendi.
Allir eru velkomnir, veitingar í
boði KR og Vesturbæjarlaugar.
Öllum sundmönnum KR er boð-
ið að taka þátt í Jólamóti félagsins
sem fram fer i Laugardalslaug 17.
desember kl. 13.- 16.00. Á mótinu
er keppt i 50 m skriðsundi og 100
m fjórsundi auk þess sem, eldri
sundmennirnir keppa i nokkrum
aukagreinum. Þá fer einnig fram
keppni i boðsundi milli stjórnar
og þjálfara félagsins.
Ragnheiður Ragnardóttir var
útnefnd Sundkona ársins 2006
fyrir stigahæsta sund íslenskra
sundkvenna á tímabilinu og
Hrefna Hörn Leifsdóttir var
kjörin efnilegasta sundkona
Íslands.
www.kr.is
Teitur Þórðarson, þjálfari meistaraflokks KR í karlaflokki.
Hópur KR-inga með viðurkenning-
ar fyrir ástundun og framfarir.
Gengið á eins konar stultum. Stolt móðir fylgist með af athygli.
Líf og fjör í íþróttaskóla barnanna
í KR-heimilinu